Kjarrprýði 1 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
3. fundur
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu einbýlishúss sem gerir ráð fyrir því að gólfkóti hússins verði lækkaður um 30 cm þannig að hæð húss sé í sömu hæð yfir sjávarmáli og sú hæð sem deiliskipulag kveður á um. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar um fyrirspurn.
Svar: Skipulagsnefnd telur að hæð útveggja yfir landi hafi áhrif á upplifun hússins og hún verði samkvæmt þessu 6,8 metrar en deiliskipulag kveði á um 6,5 metra. Hæð yfir sjávarmáli breytir því litlu um þá upplifun. Fram kemur í umsögn deiliskipulagshöfundar að "ríkjandi" hæð lóðarinnar sé 21 mys og er gólfkótinn 21,1 því eðlileg hæð og ekki ástæða til að lækka hús í landi til þess að ná fram því markmiði deiliskipulagsins að laga hæðarsetningu lóðar að náttúrulegu landslagi.
Skipulagsnefnd bendir auk þess á að samkvæmt uppdrætti eru tvær íbúðir í húsinu en í grein 2.2.2 í skipulagsgreinargerð segir að aðeins ein íbúð sé heimiluð.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
18. fundur
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu á einbýlishúsi að Kjarrprýði 1.
Skipulagsnefnd vísar fyrirspurn til umsagnar hjá deiliskipulagshöfundi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
13. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa og hönnuðar um tvær mismunandi útfærslur á einbýlishúsi.
Skipulagsnefnd telur að útfærsla með stölluðu þaki falli betur að ákvæðum deiliskipulagsins.