Beint í efni

Ásgarður, dsk breyting, lýsing æfingavallar.

Málsnúmer 2507428

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

15. (967). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar frá fundi 22. október 2025 varðandi tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulags Ásgarðs að lokinni grenndarkynningu ásamt þeim athugasemdum sem bárust. Tillagan gerir ráð fyrir ljósamöstrum við æfingavöll norðan við keppnisvöll. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna óbreytta sem óverulega breytingu deiliskipulags Ásgarðs.

Bæjarráð Garðabæjar

02

39. (2187). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar frá fundi 22. október 2025 varðandi tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulags Ásgarðs að lokinni grenndarkynningu ásamt þeim athugasemdum sem bárust. Tillagan gerir ráð fyrir ljósamöstrum við æfingavöll norðan við keppnisvöll.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna óbreytta sem óverulega breytingu deiliskipulags Ásgarðs.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

15. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Ásgarðs að lokinni grenndarkynningu ásamt þeim athugasemdum sem borist hafa. Tillagan gerir ráð fyrir ljósamöstrum við æfingavöll norðan við keppnisvöll.
Lögð fram greinagerð skipulagsstjóra þar sem fram koma svör við athugasemdum.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta sem óverulega breytingu deiliskipulags Ásgarðs.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

14. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

13. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Ásgarðs að lokinni grenndarkynningu ásamt þeim athugasemdum sem borist hafa.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

11. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

07

27. (2175). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsstjóra frá afgreiðslufyndi 25. júlí 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Ásgarðs sem gerir ráð fyrir fjórum ljósamöstrum við æfingavöll norðan aðalvallar. Hámarkshæð ljósamastranna er 21,5 metrar og heimilað birtumagn verður 180-300 lux. (til samanburðar eru ljós á aðalvelli 800 lux). Til að tryggja að lýsing trufli ekki íbúðarbyggð í nágrenni við völlinn skulu lampar vera með stefnuvirkri lýsingu með skermingu samskonar og núverandi lýsing aðalvallar.
Skipulagsstjóri mat breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Ásgarðs í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum við Stekkjarflöt.

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

08

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ásgarðs sem gerir ráð fyrir fjórum ljósamöstrum við æfingavöll norðan aðalvallar. Hámarkshæð ljósamastranna er 21,5 metrar og heimilað birtumagn verður 180-300 lux. (til samanburðar eru ljós á aðalvelli 800 lux). Til að tryggja að lýsing trufli ekki íbúðarbyggð í nágrenni við völlinn skulu lampar vera með stefnuvirkri lýsingu með skermingu samskonar og núverandi lýsing aðalvallar.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Ásgarðs í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum við Stekkjarflöt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.