39. (2187). fundur
39. (2187). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
28.10.2025
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Margrét Bjarnadóttir - varamaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Málsnúmer 2507256
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026 (2026 - 2029)
Á fund bæjarráðs kom Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir drögum að áætlunum málasviða, að undanskildum fræðslumálum, vegna vinnslu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2026. Frumvarp að fjárhagsáætlun verður lagt fram á fundi bæjarráðs 4. nóvember 2025 og til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar 6. nóvember 2025.
Málsnúmer 2407142
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025 (2025-2028) - Viðauki nr. 2.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir eftirfarandi viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2025. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun 2025 samkvæmt 2.mgr. 63.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 2
Velferðarsvið
Samtals er lagt til 103 m.kr. kostnaðarauka á Velferðarsviði sbr. neðangreinda sundurliðun.
02330 Vistgjöld vegna barnaverndar 70.000.000
02340 Úrræði á heimili v/barna, barnavernd 5.000.000
02150 Félagsleg heimaþjónusta 70.000.000
02564 Miðskógar sambýli fatlaðra 10.000.000
02568 Brekkuás íbúakjarni fatlað fólk 30.000.000
02415 Afsláttur fasteignagjalda -32.000.000
02567 Búsetuúrræði , sólarhringsþjónusta -50.000.000
Samtals kr. 103.000.000
Fræðslumál
Samtals er lagt til 167 m.kr. kostnaðarauka á Fræðslusviði sbr. neðangreinda sundurliðun.
04030 Niðurgreiðsla á skólamat 176.000.000
04030 Leikskóladeild Urriðaholtsskóla 40.000.000
04287 Frístund Urriðaholtsskóla 6.000.000
04290 Frístundaheimili önnur -55.000.000
Samtals kr. 167.000.000
Æskulýðs- og íþróttamál
Samtals er lagt til 31 m.kr. kostnaðarauka vegna æskulýðs- og íþróttamála sbr. neðangreinda sundurliðun.
06511 Orkukaup Ásgarðslaug 14.000.000
06271 Vinnuskóli laun 17.000.000
Samtals kr. 31.000.000
Hækkun lífeyrisskuldbindingar
Fyrir liggur útreikningur tryggingastærðfræðings á áætlaðri lífeyrisskuldbindingu Garðabæjar fyrir árin 2025 og 2026. Útreikningarnir gera ráð fyrir að gjaldfærsla vegna hækkunar verði á árinu 2025 490 m.kr. en áætlun gerði ráð fyrir 450 m.kr. Áætlun fyrir árið 2026 gerir hins vegar ráð fyrir 390 m.kr.
Hækkun gjaldfærslu lífeyrisskuldbindingar 2025 40.000.000
Samtals kr. 40.000.000
Kostnaðarauki samtals 341.000.000
341.000.000
Fjármögnun
00010 Útsvar -203.000.000
00060 Fasteignaskattur -63.000.000
00100 Jöfnunarsjóðu -68.000.000
00350 Lóðarleiga -7.000.000
Samtals -341.000.000
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2509213
03
Hvannalundur 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gilá ehf., kt. 650700-2790, leyfi fyrir viðbyggingu við einlyft einbýlishús með áföstum bílskúr að Hvannalundi 9.
Málsnúmer 2510325
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Stekkholt 8 - Deiliskipulag.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar frá fundi 22. október 2025 varðandi breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir því að svalir á efri hæð nái 1 metra út fyrir byggingarreit að norðanverðu og að sunnanverðu. Samkvæmt deiliskipulagi er heimilt að svalir nái 60 cm út fyrir byggingarreit.
Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2.mgr. 43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísaði henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum lóðanna Stekkholt 6, 10, 19 og 21 sem og Vorbraut 11 og 13.
Málsnúmer 2507428
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Ásgarður, dsk breyting, lýsing æfingavallar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar frá fundi 22. október 2025 varðandi tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulags Ásgarðs að lokinni grenndarkynningu ásamt þeim athugasemdum sem bárust. Tillagan gerir ráð fyrir ljósamöstrum við æfingavöll norðan við keppnisvöll.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna óbreytta sem óverulega breytingu deiliskipulags Ásgarðs.
Málsnúmer 2508367
06
Ísafold - Fjölgun hjúkrunarrýma
Lögð fram til kynningar drög að breytingum á Ísafold, hjúkrunarheimili fyrir aldraða. Tillögurnar gera ráð fyrir fjölgun hjúkrunarrýma úr 60 í 64 rými á kostnað þess að skrifstofur og fundarherbergi á deild færist niður á 1. hæð þar sem Garðabær hefur verið með skrifstofur og fundaraðstöðu. Jafnframt var kostnaðaráætlun kynnt vegna hinna áætluðu framkvæmda.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi kostnaðaráætlun verkefnisins með fyrirvara um að breyting verði gerð á gildandi samningi við Félags- og húsnæðismálaráðuneytið frá 14. maí 2010 í formi viðauka við þann samning, þar sem gert verði ráð fyrir framangreindum viðbótarrýmum.
Málsnúmer 2510400
07
Upplýsingabeiðni Samkeppniseftirlitsins, dags. 22.10.25.
Lagt fram bréf Samkeppniseftirlitsins vegna erindis Íslenska Gámafélagsins ehf. vegna meintra brota Sorpu bs. og aðildarsveitarfélaga byggðasamlagsins á samkeppnislögum.
Bæjarráð samþykkir að fela Juris lögmannsstofu að gæta hagsmuna Garðabæjar í málinu.
Málsnúmer 2510357
08
Umsagnarbeiðni Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála varðandi gæðaviðmið fyrir félagsþjónustu, dags. 21.10.25.
Lagt fram erindi Gæða- og eftirlitsstofnunar varðandi gerð gæðaviðmiða fyrir félagsþjónustu á Íslandi.
Bæjarráð vísar erindinu til úrvinnslu á Velferðarsviði.
Málsnúmer 2510358
09
Erindi Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um hjólaleið milli höfuðborgarsvæðisins og Suðurnesja, 87. mál., dags. 21.10.25.
Lagt fram.
Málsnúmer 2510421
10
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar UMF Stjörnunnar um tímabundið áfengisleyfi vegna lokahófs knattspyrnudeildar Stjörnunnar í Miðagarði
Lögð fram umsókn UMF Stjörnunnar vegna lokahófs knattspyrnudeildar Stjörnunnar, sem halda á 1. nóvember 2025 í Miðgarði, Vetrarbraut 30.
Bæjarráð gerir ekki fyrir sitt leyti athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.