Beint í efni

Ísafold - Fjölgun hjúkrunarrýma

Málsnúmer 2508367

Ferill máls

Öldungaráð

01

4. fundur

Fjölgun hjúkrunarrýma á Ísafold.

Farið yfir bókun bæjarráðs, dags. 28.10.2025 um fjölgun hjúkrunarrýma á Ísafold úr 60 í 64, ásamt fylgiskjölum tengt teikningum og kostnaðaráætlun. Öldungaráð lýsir yfir ánægju með fyrirhugaðar framkvæmdir þar sem fjölgun hjúkrunarrýma sé brýnt verkefni.

Bæjarráð Garðabæjar

02

39. (2187). fundur

Lögð fram til kynningar drög að breytingum á Ísafold, hjúkrunarheimili fyrir aldraða. Tillögurnar gera ráð fyrir fjölgun hjúkrunarrýma úr 60 í 64 rými á kostnað þess að skrifstofur og fundarherbergi á deild færist niður á 1. hæð þar sem Garðabær hefur verið með skrifstofur og fundaraðstöðu. Jafnframt var kostnaðaráætlun kynnt vegna hinna áætluðu framkvæmda.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi kostnaðaráætlun verkefnisins með fyrirvara um að breyting verði gerð á gildandi samningi við Félags- og húsnæðismálaráðuneytið frá 14. maí 2010 í formi viðauka við þann samning, þar sem gert verði ráð fyrir framangreindum viðbótarrýmum.