Beint í efni

4. fundur

24.11.2025
Öldungaráð

4. fundur

Öldungaráð

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

24.11.2025

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
  • Eysteinn Haraldsson - aðalmaður
  • Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
  • Anna Ragnheiður Möller - aðalmaður
  • Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
  • Margrét Björnsdóttir - aðalmaður
  • Sæbjörg Einarsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Þóra Gunnarsdóttir - forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu
  • Sólveig Valgeirsdóttir - forstöðumaður

Ritari

  • Svanhildur Þengilsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2309191

01

Kynning á félagsstarfi fyrir eldra fólk í Jónshúsi og Smiðjunni

Kynning á dagskrá í Jónshúsi og Smiðjunni.

Sólveig Valgeirsdóttir, forstöðumaður félagsmiðstöðva eldra fólks í Garðabæ fór yfir starfið framundan í Jónshúsi og Smiðjunni.

Málsnúmer 2403474

02

Hönnun - Útboð - Lambamýri fjölnota aðstaða fyrir eldri borgara

Kynning á stöðu verkefnis.

Sviðsstjóri velferðarsviðs og forstöðumaður félagsmiðstöðva eldra fólks kynntu stöðu verkefnis.

Málsnúmer 2508367

03

Ísafold - Fjölgun hjúkrunarrýma

Fjölgun hjúkrunarrýma á Ísafold.

Farið yfir bókun bæjarráðs, dags. 28.10.2025 um fjölgun hjúkrunarrýma á Ísafold úr 60 í 64, ásamt fylgiskjölum tengt teikningum og kostnaðaráætlun. Öldungaráð lýsir yfir ánægju með fyrirhugaðar framkvæmdir þar sem fjölgun hjúkrunarrýma sé brýnt verkefni.

Málsnúmer 2502547

04

Íbúaþing eldra fólks 2025

Undirbúningur og staða vekefnis.

Farið yfir minnisblað tengt undirbúningi fyrir vinnustofu/íbúaþing í málefnum eldra fólks 2026 og samsetningu vinnuhóps sem kemur að undirbúningi verkefnisins.









Málsnúmer 2503150

05

Stefna í málefnum eldri borgara - Aðgerðaráætlun 2025 -2026

Farið yfir stöðu verkefna í aðgerðaráætlun eldra fólks 2025-2026.

Farið yfir þau verkefni sem eru framundan og lagt er upp með í aðgerðaráætlun eldra fólks haust 2025 og vor 2026.