Beint í efni

Stefna í málefnum eldri borgara - Aðgerðaráætlun 2025 -2026

Málsnúmer 2503150

Ferill máls

Öldungaráð

01

4. fundur

Farið yfir stöðu verkefna í aðgerðaráætlun eldra fólks 2025-2026.

Farið yfir þau verkefni sem eru framundan og lagt er upp með í aðgerðaráætlun eldra fólks haust 2025 og vor 2026.

Öldungaráð

02

3. fundur

Farið yfir verkefni aðgerðaráætlunar haust 2025.

Farið yfir þau verkefni sem eru framundan og lagt er upp með í aðgerðaráætlun eldra fólks haust 2025.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

40. fundur

Stefna í málefnum eldri borgara í Garðabæ - Aðgerðaráætlun 2025 - 2026. Samþykkt á fundi bæjarstjórnar 15.05 2025

Samþykkt í bæjarstjórn 15. maí sl. lögð hér fram til kynningar.
Sérstök athygli vakin á 4. kafla sem fjallar um félagslega þátttöku og 5. kafla sem fjallar um forvarnir og heilsueflingu. Einnig má nefna 8. kafla sem fjallar um miðlun þekkingar, sem tengist inn í félagsstarf í félagsmiðstöðvum, leik- og grunnskólum. Íþrótta- og tómstundaráð áréttar mikilvægi þess að áfram sé unnið markvisst að því að efla félagslega virkni og þátttöku eldri borgara í fjölbreyttu félagsstarfi.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

7. (959). fundur

Lokadrög aðgerðaráætlunar í málefnum eldra fólks 2025-2026 lögð fram.

Bæjarstjórn staðfestir stefnu Garðabæjar í málefnum eldri borgara - Aðgerðaráætlun 2025-2026.

Bæjarráð Garðabæjar

05

18. (2166). fundur

Lokadrög aðgerðaráætlunar í málefnum eldra fólks 2025-2026 lögð fram.

Sviðsstjóri velferðarsviðs kynnti lokadrög aðgerðaráætlunar í málefnum eldra fólks 2025-2026.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að staðfesta stefnu Garðabæjar í málefnum eldri borgara - Aðgerðaráætlun 2025-2026.

Fylgiskjöl

Öldungaráð

06

2. fundur

Lokadrög aðgerðaráætlunar í málefnum eldra fólks 2025-2026 lögð fram.

Öldungaráð staðfestir framlögð lokadrög aðgerðaráætlunar í málefnum eldra fólks 2025-2026 sem verða í framhaldi lögð fyrir bæjarráð og bæjarstjórn til samþykktar.