3. fundur
3. fundur
Öldungaráð
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
15.09.2025
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
- Anna Ragnheiður Möller - aðalmaður
- Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
- Margrét Björnsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Þóra Gunnarsdóttir - forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
01
Þjónusta við fólk sem bíður eftir hjúkrunarrými
Þjónusta við fólk sem bíður eftir hjúkrunarrými.
Fyrirhugað samstarfsverkefni Heilbrigðisráðuneytis, heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, heimahjúkrunar og félagsþjónustu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu kynnt fyrir nefndarmönnum. Öldungaráð leggur mikla áherslu á að samtali við heilbrigðisráðuneytið um uppbyggingu hjúkrunarheimilis verði hraðað eins og kostur er.
02
Heldriborgarakvöld Snorra goða - Velferðarsviðs Garðabæjar
Erindi frá Oddfellow stúkunni Snorra Goða þar sem óskað er eftir samstarfi við Garðabæ í að endurvekja Heldri borgara kvöld Snorra Goða.
Öldungaráði líst vel á hugmyndina en telur æskilegt að eiga samstarf við ungmennaráð um framkvæmd og skipulag verkefnis.
03
Íbúaþing eldra fólks 2025
Undirbúningur íbúaþings eldra fólks 2025
Öldungaráð leggur til að íbúaþing verði haldið fimmtudaginn 5.febrúar 2026 á milli kl 13-16.
04
Lambamýri fjölnota aðstaða fyrir eldri borgara
Staða verkefnis.
Harpa Rós Gísladóttir, formaður öldungaráðs og Þóra Gunnarsdóttir, forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu fóru yfir stöðu verkefnis tengt fjölnota aðstöðu fyrir eldri borgara í Lambamýri og svöruðu fyrirspurnum nefndarmanna.
05
Stefna í málefnum eldri borgara - Aðgerðaráætlun 2025 -2026
Farið yfir verkefni aðgerðaráætlunar haust 2025.
Farið yfir þau verkefni sem eru framundan og lagt er upp með í aðgerðaráætlun eldra fólks haust 2025.
06
Kynning á félagsstarfi fyrir eldra fólk í Jónshúsi og Smiðjunni
Haustdagskrá félagstarf eldra fólks lögð fram til kynningar.
Öldungaráð fór yfir fjölbreytta dagskrá félagsstarfs sem eldra fólki í Garðabæ stendur til boða á næsta misseri.