Hjúkrunarheimili og þjónusta við fólk sem bíður eftir hjúkrunarrými.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
35. (2183). fundur
Farið yfir stöðu mála vegna hjúkrunarrýma, dvalartíma og fjölda einstaklinga sem bíða eftir þjónustu. Þóra Gunnarsdóttir forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu sat fundinn undir þessum dagskrárlið og fór yfir málefni fólks sem bíður eftir þjónustu.
Bæjarráð Garðabæjar kallar eftir ákvörðunum stjórnvalda um uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis í Garðabæ. Loforð sveitarfélagsins um lóð liggur fyrir og allar skipulagsforsendur sömuleiðis. Aðeins 60 hjúkrunarrými eru í dag í okkar vaxandi sveitarfélagi sem telur rúmlega 21 þúsund íbúa.
Þá hvetur bæjarráð yfirvöld til að standa við löngu gefið loforð um 10 ný dagdvalarrými á hjúkrunarheimilinu Ísafold. Tvö ár eru síðan heilbrigðisráðuneyti heimilaði fleiri rými, sem ekki hefur verið efnt.
Garðabær lýsir sig reiðubúinn í samstarf við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um mikilvæga samþættingu á heimahjúkrun og heimaþjónustu fyrir eldri íbúa, sem yrði til hagsbóta fyrir notendur þjónustunnar.
Fylgiskjöl
Öldungaráð
02
3. fundur
Þjónusta við fólk sem bíður eftir hjúkrunarrými.
Fyrirhugað samstarfsverkefni Heilbrigðisráðuneytis, heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, heimahjúkrunar og félagsþjónustu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu kynnt fyrir nefndarmönnum. Öldungaráð leggur mikla áherslu á að samtali við heilbrigðisráðuneytið um uppbyggingu hjúkrunarheimilis verði hraðað eins og kostur er.