Íbúaþing eldra fólks 2026
Ferill máls
Velferðarráð Garðabæjar
01
5. fundur
Niðurstöður íbúaþings eldra fólks, frá 11. mars lagðar fram til kynningar og umræðu.
Niðurstöður íbúaþings eldra fólks, frá 11. mars lagðar fram til kynningar og umræðu. Almenn ánægja var með umgjörð, framkvæmd og skipulag fundarins og þá vinnu sem lagt var upp með þar.
Í niðurstöðum íbúaþings liggja fyrir margar ábendingar og tillögur um þætti sem eldra fólk vill leggja áherslu á til framtíðar. Horft verður til þeirra ábendinga og tillagna við mótun og endurskoðun á stefnu og aðgerðaráætlun í málefnum eldra fólks til næstu ára.
Bæjarráð Garðabæjar
03
16. (2211). fundur
Sviðsstjóri velferðarsviðs kynnti niðurstöður íbúaþings eldra fólks í Garðabæ sem haldið var í Sjálandi 11. mars 2026.
Öldungaráð
04
2. fundur
Niðustöður íbúaþings sem haldið var þann 11. mars lagðar fram til kynningar og umræðu.
Niðurstöður íbúaþings eldra fólks, frá 11. mars lagðar fram til kynningar og umræðu. Almenn ánægja var með umgjörð, framkvæmd og skipulag fundarins og þá vinnu sem lagt var upp með þar. Unnið var í borðavinnu þar sem meðal annars var rætt um búsetu og umhverfi, heilsu og vellíðan, stuðning og þjónustu sveitarfélagsins auk félagslegrar virkni og þátttöku í samfélaginu. Í niðurstöðum íbúaþings liggja fyrir margar ábendingar og tillögur um þætti sem eldra fólk vill leggja áherslu á til framtíðar. Horft verður til þessara lykiláherslna og tillagna við mótun og endurskoðun á stefnu og aðgerðaráætlun í málefnum eldra fólks til næstu ára. Öldungaráð leggur áherslu á að niðurstöður íbúaþings verði kynntar sem allra fyrst.
Velferðarráð Garðabæjar
05
2. fundur
Íbúaþing eldra fólks 11. mars 2026.
Sviðsstjóri velferðarsviðs kynnti fyrirhugað íbúaþing eldra fólks, sem fram fer í Sjálandi þann 11. mars næstkomandi.
Öldungaráð
06
1. fundur
Staða verkefnis.
Farið yfir stöðu, framgang og skipulag verkefnis.
Öldungaráð
07
4. fundur
Undirbúningur og staða vekefnis.
Farið yfir minnisblað tengt undirbúningi fyrir vinnustofu/íbúaþing í málefnum eldra fólks 2026 og samsetningu vinnuhóps sem kemur að undirbúningi verkefnisins.
Öldungaráð
08
3. fundur
Undirbúningur íbúaþings eldra fólks 2025
Öldungaráð leggur til að íbúaþing verði haldið fimmtudaginn 5.febrúar 2026 á milli kl 13-16.
Öldungaráð
09
1. fundur
Íbúaþing eldri borgara 2025.
Íbúaþing eldra fólks 2025, drög að skipulagi og dagskrá lögð fram til kynningar og umræðu.