Beint í efni

1. fundur

03.03.2025
Öldungaráð

1. fundur

Öldungaráð

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

03.03.2025

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
  • Eysteinn Haraldsson - aðalmaður
  • Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
  • Anna Ragnheiður Möller - aðalmaður
  • Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
  • Margrét Björnsdóttir - aðalmaður
  • Sæbjörg Einarsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Þóra Gunnarsdóttir - forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu
  • Elín Þuríður Þorsteinsdóttir - umsjónarmaður félagsstarfs eldri borgara

Ritari

  • Svanhildur Þengilsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2407142

01

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025 (2025-2028)

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025.

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025, Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri, fór yfir áætlunina og svaraði fyrirspurnum fundarmanna.

Málsnúmer 2409477

02

Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2024

Þjónustukönnun Gallup 2024.

Þjónustukönnun Gallup 2024, Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar kynnti niðurstöður könnunar og svaraði fyrirspurnum fundarmanna.

Málsnúmer 2309191

03

Kynning á dagskrá í Jónshúsi fyrir eldri borgara

Dagskrá í Jónshúsi fyrir eldri borgara.

Kynning á félagsstarfi í Jónshúsi og Smiðjunni fyrir eldra fólk, Elín Þuríður Þorsteinsdóttir, umsjónarmaður félagsstarfs í Jónshúsi kynnir dagskrána og segir frá starfinu.

Málsnúmer 2304082

04

Fjölgun rýma í dagdvöl Ísafoldar

Fjölgun dagdvalarrýma Hrafnistu Garðabæ - Ísafold.

Á fundinum var lagt fram bréf sem sent var til heilbrigðisráðherra 25.febrúar sl. Í bréfinu er bókun öldungaráðs tengt fjölgun rýma í dagdvöl Hrafnistu Ísafoldar, frá desember 2024, lögð fram og vonbrigðum lýst með að ekki sé búið að taka rýmin í notkun. Jafnframt er þess farið á leit við ráðuneytið að það taki málið til skoðunar. Öldungaráð mun fylgja málinu eftir enda um að ræða afar mikilvæga þjónustu til eldra fólks í Garðabæ.

Málsnúmer 1710101

05

Stefna í málefnum eldri borgara - Aðgerðaráætlun

Aðgerðaráætlun í málefnum eldri borgara.

Drög að aðgerðaráætlun í málefnum eldri fólks, lögð fram til kynningar og umræðu. Stefnt skal að því að leggja aðgerðaráætlunina fram til samþykktar hjá bæjarráði/bæjarstjórn í næsta mánuði.

Málsnúmer 2502547

06

Íbúaþing eldri borgara 2025

Íbúaþing eldri borgara 2025.

Íbúaþing eldra fólks 2025, drög að skipulagi og dagskrá lögð fram til kynningar og umræðu.