Beint í efni

Fjölgun rýma í dagdvöl Ísafoldar

Málsnúmer 2304082

Ferill máls

Öldungaráð

01

1. fundur

Fjölgun dagdvalarrýma Hrafnistu Garðabæ - Ísafold.

Á fundinum var lagt fram bréf sem sent var til heilbrigðisráðherra 25.febrúar sl. Í bréfinu er bókun öldungaráðs tengt fjölgun rýma í dagdvöl Hrafnistu Ísafoldar, frá desember 2024, lögð fram og vonbrigðum lýst með að ekki sé búið að taka rýmin í notkun. Jafnframt er þess farið á leit við ráðuneytið að það taki málið til skoðunar. Öldungaráð mun fylgja málinu eftir enda um að ræða afar mikilvæga þjónustu til eldra fólks í Garðabæ.

Öldungaráð

02

3. fundur

Staðan á dagdvalarrýmum Hrafnistu Ísafoldar, tekin til umræðu.

Beiðni Hrafnistu Ísafold til Sjúkratrygginga Íslands dags 1.06.2023 um að fjölga dagdvalarrýmum úr 20 í 30, tekin til umræðu. Á fundinn kom María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistu og fór yfir stöðu málsins í dag. Rýmin hafa ekki verið opnuð og lítur öldungaráð málið alvarlegum augum og telur stöðuna vera óásættanlega.

Bæjarráð Garðabæjar

03

44.(2097). fundur

Í minnisblaðinu er lýsing á framkvæmdum og búnaðarkaupum vegna stækkunar dagdvalar Ísafoldar.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu bæjarstjóra.

Bæjarráð Garðabæjar

04

36. (2089). fundur

Lögð fram tilkynning Sjúkratrygginga þar sem fram kemur að samþykkt hefur verið að fjölga dagdvalarrýmum á Hrafnistu Ísafold úr 20 í 30. Almenn rými fara úr 16 í 22 og sérhæfð rými fyrir einstaklinga með heilabilunarsjúkdóm fari úr 4 í 8.

Bæjarráð lýsir yfir sérstakri ánægju með samþykkt Sjúkratrygginga um fjölgun dagdvalarrýma á Hrafnistu Ísafold.

Öldungaráð

05

2. fundur

Minnisblað um fjölgun rýma í dagdvöl Hrafnistu var til umræðu í bæjarráði þann 18. apríl sl. Bæjarráð samþykkti að Garðabær styddi við umsókn Hrafnistu um fjölgun á dagdvalarrýmum á Ísafold úr 20 í 30 enda lægi fyrir að þörfin væri brýn og almenn ánægja væri með þjónustu dagdvalar Ísafoldar hjá þjónustuþegum og aðstandendum.

Minnisblað um fjölgun rýma í dagdvöl Hrafnistu lagt fram til kynningar. Öldungaráð styður heilshugar við umsókn Hrafnistu og Garðabæjar um fjölgun dagdvalarrýma á Ísafold úr 20 í 30, enda þörfin afar brýn.

Fjölskylduráð Garðabæjar

06

4. fundur

Minnisblað um fjölgun rýma í dagdvöl Hrafnistu var til umræðu í bæjarráði þann 18. apríl sl. Bæjarráð samþykkti að Garðabær styddi við umsókn Hrafnistu um fjölgun á dagdvalarrýmum á Ísafold úr 20 í 30 enda lægi fyrir að þörfin væri brýn og almenn ánægja væri með þjónustu dagdvalar Ísafoldar hjá þjónustuþegum og aðstandendum.

Minnisblað um fjölgun rýma í dagdvöl Hrafnistu lagt fram til kynningar. Þóra Gunnarsdóttir, forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu sat fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð Garðabæjar

07

15. (2068). fundur

Í minnisblaðinu er lagt til að Garðabær og Hrafnista sæki sameiginlega um aukningu á dagdvalarrýmum á Ísafold.

Bæjarráð samþykkir að Garðabær styðji við umsókn Hrafnistu um fjölgun á dagdvalarrýmum á Ísafold úr 20 í 30 enda liggur fyrir að þörfin er brýn og almenn ánægja er með þjónustu dagdvalar Ísafoldar hjá þjónustuþegum og aðstandendum. Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra og til kynningar í fjölskylduráði og öldungaráði.

Fylgiskjöl