Beint í efni

3. fundur

14.10.2024
Öldungaráð

3. fundur

Öldungaráð

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

14.10.2024

Kl. 08:00 - 09:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
  • Eysteinn Haraldsson - aðalmaður
  • Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
  • Anna Ragnheiður Möller - aðalmaður
  • Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
  • Margrét Björnsdóttir - aðalmaður
  • Sæbjörg Einarsdóttir - aðalmaður
  • Þóra Gunnarsdóttir - forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu

Starfsmenn

  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs

Ritari

  • Svanhildur Þengilsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2304082

01

Fjölgun rýma í dagdvöl Ísafoldar

Staðan á dagdvalarrýmum Hrafnistu Ísafoldar, tekin til umræðu.

Beiðni Hrafnistu Ísafold til Sjúkratrygginga Íslands dags 1.06.2023 um að fjölga dagdvalarrýmum úr 20 í 30, tekin til umræðu. Á fundinn kom María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistu og fór yfir stöðu málsins í dag. Rýmin hafa ekki verið opnuð og lítur öldungaráð málið alvarlegum augum og telur stöðuna vera óásættanlega.

Málsnúmer 2311253

02

Samskiptasáttmáli Garðabæjar 2023

Samskiptasáttmáli Garðabæjar lagður fram til kynningar.

Linda Udengard sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs kynnir Samskiptasáttmála Garðabæjar 2023.

Málsnúmer 2309191

03

Kynning á haustdagskrá félaga eldri borgara

Félag eldri borgara í Garðabæ (FEBG) og Félag eldri borgara á Álftanesi (FEBÁ) kynna haustdagskrá félaganna.

Anna Möller fulltrúi í öldungaráði og formaður félags eldri borgara í Garðabæ og Sæbjörg Einarsdóttir fulltrúi í öldungaráði og gjaldkeri félags eldri borgara á Álftanesi kynna starf og haustdagskrá félaganna.

Málsnúmer 2408585

04

Uppbygging lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara

Erindi frá Sjómannadagsráði, Hrafnistu og Naustavör um uppbyggingu lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara lagt fram til umræðu.

Öldungaráð Garðabæjar, samþykkir fundarboð Sjómannadagsráðs, Hrafnistu og Naustavarar þar sem fara á yfir sjónarmið vegna uppbyggingaráætlunar á lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara og það starf sem unnið hefur verið að á síðustu mánuðum tengt uppbyggingu lífsgæðakjarna.

Málsnúmer 2403474

05

Hönnun - Útboð - Lambamýri fjölnota aðstaða fyrir eldri borgara

Fjölnota aðstaða fyrir eldri borgara í Lambamýri.

Fjölnota aðstaða fyrir eldri borgara í Lambamýri og skipulag aðstöðunnar lagt fram til kynningar.

Málsnúmer 1710101

06

Stefna í málefnum eldri borgara - Aðgerðaráætlun

Staða aðgerðaráætlunar tengd stefnu í málefnum eldri borgara 2016-1026 til umræðu.

Staða aðgerðaráætlunar tengd stefnu í málefnum eldri borgara 2016-2026 til umræðu og línur lagðar varðandi hvenær drög að nýrri áætlun liggi fyrir. Samþykkt er að drög að áætlun verði unnin af fulltrúum úr öldungaráði í samvinnu við starfsmenn á velferðarsviði.