Stefna í málefnum eldri borgara - Aðgerðaráætlun
Ferill máls
Öldungaráð
01
1. fundur
Aðgerðaráætlun í málefnum eldri borgara.
Drög að aðgerðaráætlun í málefnum eldri fólks, lögð fram til kynningar og umræðu. Stefnt skal að því að leggja aðgerðaráætlunina fram til samþykktar hjá bæjarráði/bæjarstjórn í næsta mánuði.
Öldungaráð
02
4. fundur
Drög að aðgerðaráætlun 2025-2026 lögð fram til umræðu.
Drög að aðgerðaráætlun 2025-2026, í málefnum eldri borgara lögð fram til umræðu. Vinnu við áætlun verður haldið áfram og nefndarmenn hvattir til að koma ábendingum til velferðarsviðs.
Öldungaráð
03
3. fundur
Staða aðgerðaráætlunar tengd stefnu í málefnum eldri borgara 2016-1026 til umræðu.
Staða aðgerðaráætlunar tengd stefnu í málefnum eldri borgara 2016-2026 til umræðu og línur lagðar varðandi hvenær drög að nýrri áætlun liggi fyrir. Samþykkt er að drög að áætlun verði unnin af fulltrúum úr öldungaráði í samvinnu við starfsmenn á velferðarsviði.
Öldungaráð
04
2. fundur
Aðgerðaáætlun tengd stefnu í málefnum eldri borgara í Garðabæ lögð fram til endurskoðunar.
Farið yfir aðgerðaráætlun 2017-2020 og tillögur að nýrri aðgerðaráætlun fyrir 2024-2026 ræddar. Lagt til að þrír aðilar úr öldungaráði ásamt sviðsstjóra velferðarsviðs fari yfir endurskoðaðar aðgerðir fyrir næsta fund öldungaráðs.
Öldungaráð
05
1. fundur
Aðgerðaráætlun tengd stefnu í málefnum eldri borgara í Garðabæ, næstu skref í framkvæmd.
Farið yfir næstu skref í aðgerðaráætlun, lagt til að hver og einn ráðsmaður fari yfir áætlunina og á næsta fundi öldungaráðs verði farið yfir punkta hvers og eins, sem innlegg inn í nýja aðgerðaráætlun 2024-2026.
Öldungaráð
06
4. fundur
Aðgerðaráætlun tengd stefnu í málefnum eldri borgara í Garðabæ, rætt um næstu skref í framkvæmd.
Umræðum um aðgerðaráætlun er frestað til næsta fundar öldungaráðs.
Öldungaráð
07
4. fundur
Fyrir liggur aðgerðaáætlun tengd stefnu í málefnum eldri borgara í Garðabæ. Farið er yfir þá áætlun og næstu skref í framkvæmd.
Mál nr. 1710101, lagt fram til umræðu.
Öldungaráð
08
3. fundur
Mál nr. 1710101, lagt fram til kynningar og umræðu. Hver eru næstu skref í aðgerðaráætlun tengt stefnu í málefnum eldri borgara.
Mál nr. 1710101, lagt fram til umræðu. Lagt til að nýtt öldungaráð muni rýna stefnuna og fyrirliggjandi aðgerðaráætlun fyrir næsta fund og í framhaldi af því verði haldið áfram að endurskoða aðgerðaráætlun og fylgja stefnumálum eftir.
Öldungaráð
09
1. fundur
Mál nr. 1710101 lagt fram til umræðu, stefna í málefnum eldri borgara aðgerðaráætlun. Haldnir hafa þrír fundir með aðilum úr Öldungaráði þar sem fjallað hefur verið um stöðu aðgerðaráætlunar.
Mál nr. 1710101 lagt fram til umræðu, stefna í málefnum eldri borgara aðgerðaráætlun. Minnisblað vinnuhóps um aðgerðaráætlun lagt fram til kynningar, vinnuhóp þökkuð góð vinna. Öldungaráð ákveður að áframhaldandi umræður og úrvinnslu aðgerðaráætlunar fari fram á fundum ráðsins.
Öldungaráð
10
3. fundur
Staða aðgerðaráætlunar í málefnum eldri borgara lögð fram til kynningar og umfjöllunar hjá Öldungaráði. Til skoðunar eru þau stefnumál sem samþykkt var að setja í forgang á fundi ráðsins þann 8.1.2020. Það sem um ræðir er;
1. Upplýsingaflæði. 2. Félagsleg þátttaka. 3. Forvarnir og heilsuefling. 4. Búsetuúrræði. 5. Velferðartækni
Mál nr. 1710101, staða aðgerðaráætlunar í málefnum eldri borgara tekin til umfjöllunar. Lagt fram skjal sem sýnir stöðuna á þeim verkefnum sem unnið er með. Nokkur verkefni hafa verið í góðum framgangi en öðrum hefur ekki reynst unnt að koma í skipulagðan farveg. Öldungaráð leggur til að forstöðumanni stuðnings- og öldrunarþjónustu verið falið að endurmeta stöðu þeirra 5 stefnumála sem sett voru í forgang og leggja fram fyrir næsta fund ráðsins í samstarfi við vinnuhóp.
Öldungaráð
11
2. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 1710101 Stefna í málefnum eldri borgara - aðgerðaráaætlun.
Á síðasta fundi Öldungaráðs var samþykkt að leggja fram nýja aðgerðaráætlun í þeim 5 stefnumálum sem sett voru í forgang. Í forgangi eru;
1. Upplýsingaflæði.
2. Félagsleg þátttaka.
3. Forvarnir og heilsuefling.
4. Búsetuúrræði.
5. Velferðartækni.
Formleg vinna vinnuhóps vegna aðgerðaráætlunar hefur ekki farið fram að undanförnu vegna aðstæðna í samfélaginu en í sumar var unnið að verkefnum tengdum stefnumálum nr. 2 og 3 með góðum árangri sem vert að skoða betur.
Í sumar var í gangi verkefni þar sem lögð var áhersla á að hafa samaband við eldri borgara, 80 ára og eldri, með ýmsum hætti og mikilvægt að halda slíkri vinnu áfram eins og mögulegt er. Á næsta fundi mun verða lögð fram samantekt á þeim verkefnum.
Öldungaráð
12
1. fundur
Lagt var til á síðasta fundi öldungaráðs að vinna nýja aðgerðaráætlun fyrir þau 5 stefnumál sem sett hafa verið í forgang. Hópurinn kom saman 18.12. og setti saman nýja áætlun fyrir árið 2020.
Aðgerðaráætlun lögð fram, rædd og samþykkt og forstöðumanni stuðningsþjónustu falið að fylgja henni eftir.
Öldungaráð
13
4. fundur
Forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu fer yfir aðgerðaráætlun í málefnum aldraðra.
Mál nr. 1710101 lagt fyrir Öldungaráð, aðgerðaráætlun í málefnum aldraðra. Tveir fulltrúar úr Öldungaráði fóru yfir stefnuna ásamt forstöðumanni stuðnings- og öldrunarþjónustu og settu niður áhersluatriði fyrir næstu tvö ár: upplýsingaflæði,Forvarnir og heilsuefling, búsetuúrræði og lífsgæði og innleiðing velferðartækni. Ný tímalína á grundvelli stefnunnar verður lögð fyrir næsta fund. Umræða skapaðist um upplýsingaflæði og voru upplýsingar um þjónustu heilsugæslunnar nefndar í því sambandi. Fram kom að eftir áramót verða fræðslufundir í Jónshúsi og mun heilsugæslan m.a. vera með erindi og kynna þá þjónustu sem þar er í boði fyrir eldri borgara í Garðabæ.
Öldungaráð
14
3. fundur
Svanhildur Þengilsdóttir fer yfir aðgerðaráætlun í málefnum eldri borgara og stöðu verkefna.
Svanhildur Þengilsdóttir fór yfir stöðu aðgerðaráætlunar. Svanhildur mun boða til vinnufunda vegna endurskoðunar áætlunarinnar og munu Ástbjörn Egilsson og Ólafur S. Proppé vera fulltrúar eldri borgara í þeirri vinnu. Drög að nýrri aðgerðaráætlun verður lögð fram á næsta fundi öldungaráðs.
Öldungaráð
15
2. fundur
Aðgerðaráætlun
Almenn umræða um þau verkefni sem voru sett á áætlun árið 2018, staða þeirra og þau verkefni sem sett voru á oddinn 2019. Nýr forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu mun koma inn á næsta fund Öldungaráðs og gera grein fyrir þeim verkefnum sem komin eru af stað og aðgerðum árið 2019.
Fjölskylduráð Garðabæjar
16
9. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 1710101 Stefna í málefnum eldri borgara - aðgerðaráætlun. Á fundi sínum 21.11. 2017 vísaði bæjarráð Garðabæjar aðgerðaráætluninni til umfjöllunar í fjölskylduráði og til frekari úrvinnslu á fjölskyldusviði.
Formaður gerir grein fyrir helstu þáttum aðgerðaráætlunar. Fjölskylduráð fjallar um málið og lýsir yfir ánægju sinni með fyrirliggjandi aðgerðaráætlun og mælir með því að hún verði gerð aðgengileg íbúum Garðabæjar.
Bæjarráð Garðabæjar
17
45 (1811). fundur
Bæjarráð vísar aðgerðaráætluninni til umfjöllunar í fjölskylduráði og til frekari úrvinnslu á fjölskyldusviði.
Áætlun um kostnað að fjárhæð kr. 1.320.000 til útgáfu á upplýsingarbæklingi, málþingi, þjónustukönnun er vísað til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.