4. fundur
4. fundur
Öldungaráð
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
09.12.2024
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
- Eysteinn Haraldsson - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
- Anna Ragnheiður Möller - aðalmaður
- Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
- Margrét Björnsdóttir - aðalmaður
- Sæbjörg Einarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Þóra Gunnarsdóttir - forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu
- Elín Þuríður Þorsteinsdóttir - umsjónarmaður félagsstarfs eldri borgara
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2301082
01
Aðgerðaáætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026
Kynning á aðgerðaáætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026.
Kynning á aðgerðaáætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026. Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á velferðarsviði sat fundinn undir þessum lið, kynnti aðgerðaráætlunina og svaraði fyrirspurnum fundarmanna.
Málsnúmer 2412035
02
Staða framkvæmdaáætlunar um byggingu hjúkrunarrýma og framhald til ársins 2028
Staða framkvæmdaáætlunar um byggingu hjúkrunarrýma og
framhald til ársins 2028 - Skýrsla heilbrigðisráðuneytis frá nóvember 2024, lögð fram til kynningar.
Staða framkvæmdaáætlunar um byggingu hjúkrunarrýma og framhald til ársins 2028 - Skýrsla heilbrigðisráðuneytis frá nóvember 2024, lögð fram til kynningar.
Málsnúmer 2408585
03
Uppbygging lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara
Umræður um uppbyggingu lífsgæðakjarna í Garðabæ.
„Umræður um lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara í Garðabæ. Almar Guðmundsson bæjarstjóri sat fundinn undir þessum lið og ræddi meðal annars framtíðarmöguleika í uppbyggingu búsetu- og þjónustuúrræða fyrir eldri borgara í Garðabæ, ásamt því að svara fyrirspurnum fundarmanna.
Í ljósi þess að ekki hefur tekist að ljúka samningum á milli Sjúkratrygginga Íslands og Hrafnistu vegna tíu samþykktra dagdvalarrýma Hrafnistu Ísafoldar vill öldungaráð leggja áherslu á að mikilvægt sé að samningar náist sem allra fyrst, til að hægt sé að taka viðbótarrýmin í notkun og styðja á þann hátt við dagdvalarþjónustu eldri borgara í Garðabæ.
Málsnúmer 1710101
04
Stefna í málefnum eldri borgara - Aðgerðaráætlun
Drög að aðgerðaráætlun 2025-2026 lögð fram til umræðu.
Drög að aðgerðaráætlun 2025-2026, í málefnum eldri borgara lögð fram til umræðu. Vinnu við áætlun verður haldið áfram og nefndarmenn hvattir til að koma ábendingum til velferðarsviðs.