Uppbygging lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara
Ferill máls
Öldungaráð
01
4. fundur
Umræður um uppbyggingu lífsgæðakjarna í Garðabæ.
„Umræður um lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara í Garðabæ. Almar Guðmundsson bæjarstjóri sat fundinn undir þessum lið og ræddi meðal annars framtíðarmöguleika í uppbyggingu búsetu- og þjónustuúrræða fyrir eldri borgara í Garðabæ, ásamt því að svara fyrirspurnum fundarmanna.
Í ljósi þess að ekki hefur tekist að ljúka samningum á milli Sjúkratrygginga Íslands og Hrafnistu vegna tíu samþykktra dagdvalarrýma Hrafnistu Ísafoldar vill öldungaráð leggja áherslu á að mikilvægt sé að samningar náist sem allra fyrst, til að hægt sé að taka viðbótarrýmin í notkun og styðja á þann hátt við dagdvalarþjónustu eldri borgara í Garðabæ.
Öldungaráð
02
3. fundur
Erindi frá Sjómannadagsráði, Hrafnistu og Naustavör um uppbyggingu lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara lagt fram til umræðu.
Öldungaráð Garðabæjar, samþykkir fundarboð Sjómannadagsráðs, Hrafnistu og Naustavarar þar sem fara á yfir sjónarmið vegna uppbyggingaráætlunar á lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara og það starf sem unnið hefur verið að á síðustu mánuðum tengt uppbyggingu lífsgæðakjarna.