4. fundur
4. fundur
Öldungaráð
í Ísafold, Strikinu 3
06.11.2019
Kl. 08:30 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Ástbjörn Egilsson - aðalmaður
- Ólafur J Proppé - aðalmaður
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - aðalmaður
- Svanhildur Þengilsdóttir - forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu
Ritari
- Hildigunnur Árnadóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1910177
01
Beiðni um umsögn Öldungaráðs vegna starfsleyfisumsóknar Sinnum
Beiðni um umsögn notendaráðs eldri borgara vegna starfsleyfisumsóknar Sinnum lögð fram.
Mál nr. 1910177, beiðni um umsögn öldungarás vegna starfsleyfisumsóknar Sinnum.
Samningur um félagslega þjónustu hefur verið við Sinnum síðan 2009. Sinnum hefur sinnt þeim verkefnum sem snúa að heimilisþrifum og félagslegum stuðningi af ábyrgð og vandvirkni og lagt áherslu á fagmennsku og þjónustulund. Sú þjónusta sem Sinnum býður upp á er góð viðbót við þá þjónustu sem fyrir er veitt af sveitarfélaginu og gefur möguleika á að bjóða upp á fjölbreyttari valkosti fyrir notendur þjónustunnar með velferð þeirra og vellíðan að leiðarljósi.
Málsnúmer 1910307
02
Beiðni um umsögn Öldungaráðs vegna starfsleyfisumsóknar Daga
Umsókn Daga um starfsleyfi vegna reksturs félagslegrar þjónustu lögð fram.
Mál nr. 1910307 lagt fram, umsókn Daga um starfsleyfi vegna reksturs félagslegrar þjónustu.
Samningur um félagslega þjónustu hefur verið við Daga (áður ISS ) síðan 2009. Dagar hafa sinnt þeim verkefnum sem snúa að heimilisþrifum og félagslegum stuðningi af ábyrgð og vandvirkni. Sú þjónusta sem Dagar bjóða upp á er góð viðbót við þá þjónustu sem fyrir er veitt af sveitarfélaginu og gefur möguleika á að bjóða upp á fjölbreyttari valkosti fyrir notendur þjónustunnar með velferð þeirra og vellíðan að leiðarljósi.
Málsnúmer 1710101
03
Stefna í málefnum eldri borgara - Aðgerðaráætlun
Forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu fer yfir aðgerðaráætlun í málefnum aldraðra.
Mál nr. 1710101 lagt fyrir Öldungaráð, aðgerðaráætlun í málefnum aldraðra. Tveir fulltrúar úr Öldungaráði fóru yfir stefnuna ásamt forstöðumanni stuðnings- og öldrunarþjónustu og settu niður áhersluatriði fyrir næstu tvö ár: upplýsingaflæði,Forvarnir og heilsuefling, búsetuúrræði og lífsgæði og innleiðing velferðartækni. Ný tímalína á grundvelli stefnunnar verður lögð fyrir næsta fund. Umræða skapaðist um upplýsingaflæði og voru upplýsingar um þjónustu heilsugæslunnar nefndar í því sambandi. Fram kom að eftir áramót verða fræðslufundir í Jónshúsi og mun heilsugæslan m.a. vera með erindi og kynna þá þjónustu sem þar er í boði fyrir eldri borgara í Garðabæ.
Málsnúmer 1910181
04
Styrkbeiðni vegna leikfimi eldri borgara.
Félag eldri borgara Garðabæ óskar eftir styrk vegna leikfimi eldri borgara.
Mál 1910181 lagt fram til umræðu, beiðni um styrk vegna leikfimi eldri borgara.