Beint í efni

Beiðni um umsögn Öldungaráðs vegna starfsleyfisumsóknar Daga

Málsnúmer 1910307

Ferill máls

Öldungaráð

01

4. fundur

Umsókn Daga um starfsleyfi vegna reksturs félagslegrar þjónustu lögð fram.

Mál nr. 1910307 lagt fram, umsókn Daga um starfsleyfi vegna reksturs félagslegrar þjónustu.

Samningur um félagslega þjónustu hefur verið við Daga (áður ISS ) síðan 2009. Dagar hafa sinnt þeim verkefnum sem snúa að heimilisþrifum og félagslegum stuðningi af ábyrgð og vandvirkni. Sú þjónusta sem Dagar bjóða upp á er góð viðbót við þá þjónustu sem fyrir er veitt af sveitarfélaginu og gefur möguleika á að bjóða upp á fjölbreyttari valkosti fyrir notendur þjónustunnar með velferð þeirra og vellíðan að leiðarljósi.