45 (1811). fundur
45 (1811). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
21.11.2017
Kl. 08:00 - 09:40
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - varamaður
- Gísli Geir Jónsson - varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Afgreiðsla nefndar um málefni eldri borgara um aðgerðaráætlun til að framfylgja stefnu í málefnum eldri borgara.
Bæjarráð vísar aðgerðaráætluninni til umfjöllunar í fjölskylduráði og til frekari úrvinnslu á fjölskyldusviði.
Áætlun um kostnað að fjárhæð kr. 1.320.000 til útgáfu á upplýsingarbæklingi, málþingi, þjónustukönnun er vísað til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.
Fylgiskjöl
02
Bréf Kvenfélags Garðabæjar um stækkun á bílastæði við samkomuhúsið að Garðaholti, dags. 10.11.17.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til nánari skoðunar bæjarstjóra og tækni- og umhverfissviðs.
Fylgiskjöl
03
Bréf Þjóðskjalasafns varðandi eftirlitskönnun með skjalavörslu og skjalastjórn, dags. 10.11.17.
04
Bréf Mosfellsbæjar varðandi lýsingu fyrir breytingu á aðalskipulagi, dags. 13.11.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn ÁTVR um opnun vínbúðar í Kauptúni.
Lögð fram afgreiðsla skipulagsnefndar þar sem ekki lagst gegn því að ÁTVR opni vínbúð í Kauptúni
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins fái leyfi í eitt ár, sbr. 2. mgr. 10. gr. áfengislaga nr. 75/1998, til að reka vínbúð í Kauptúni.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við forsvarsmenn ÁTVR um starfsemi sérverslunar í miðbæ Garðaðbæjar.
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna byggðar við Víkurgötu.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóða við Víkurgötu verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Lindarflöt 47.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flatahverfis í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits o.fl. á lóðinni við Lindarflöt 47, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hliðs.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi Hliðs á Álftanesi verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðanna við Suðurhraun 1 og 3.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðanna við Suðurhraun 1 og 3 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi á lóðinni við Hákotsvör 8.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar við núverandi hús við Hákotsvör 8. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Ása vegna lóðarinnar við Steinás 3.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um óverulega breytingu á deiliskipulagi Ása vegna lóðarinnar við Steinás 3 verði send til Skipulagsstofnunar. Tillagan var grenndarkynnt og bárust engar athugasemdir.
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Hæðahverfis vegna lóðarinnar við Rjúpnahæð 13.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Hæðahverfis í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits o.fl. á lóðinni við Rjúpnahæð 13, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
13
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi á lóðinni við Haukanes 16.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga á núverandi húsi við Haukanes 16. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.
14
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur.
Lögð fram.
15
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi verkefnalýsing fyrir breytingar á svæðisskipulagi - vaxtarmörk í Mosfellsbæ.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að samþykkja verkefnalýsingu samkvæmt 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins er varðar vaxtamörk í Mosfellsbæ.
16
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur vegna efnisvinnslusvæðis í Álfsnesvík.
Lögð fram.
17
Bréf Bjarkarhlíðar - miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis um styrk, dags. 16.11.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu við úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2018.
Fylgiskjöl
18
Samrunaáætlun vegna slita á Fasteignafélaginu Löngulínu ehf.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samruna Garðabæjar og Fasteignafélagsins Löngulínu ehf. sem tilkynnt var Ríkisskattstjóra og auglýst í Lögbirtingarblaðinu 24. ágúst 2017, útg. nr. 2017015859.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að veita KPMG umboð til að tilkynna um ofangreinda samrunaáætlun til fyrirtækjaskrár og fara fram á skráningu og leggja fram gögn sem til þarf.