Hlið, deiliskipulagsbreyting 2017
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
16. (838). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsstjóra um óverulega breytingu á deiliskipulagi Hliðs vegna færslu á byggingarreit. Grenndarkynning fellur niður þar sem breytingin varðar ekki aðra en umsækjanda og sveitarfélagið sbr. 1. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þá liggur fyrir jákvæð afstaða Umhverfisstofnunar.
Bæjarráð Garðabæjar
03
41. (1856). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsstjóra um óverulega breytingu á deiliskipulagi Hliðs vegna færslu á byggingarreit. Grenndarkynning fellur niður þar sem breytingin varðar ekki aðra en umsækjanda og sveitarfélagið. Þá liggur fyrir jákvæð afstaða Umhverfisstofnunar.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
9. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu á lóð ferðaþjónustunnar að Hliði. Tillagan gerir ráð fyrir því að byggingarreitur, merktur c, fyrir hús undir gistirými í suðvesturhorni lóðar færist til norðurs og verður vestan við íbúðarhús. Um er að ræða sömu tillögu og var auglýst fyrir ári síðan.Engar athugasemdir bárust en í umsögnum Umhverfisstofnunar komu fram ýmis atriði sem hafa verið til skoðunar. Í skoðun kom í ljós að mörk umhverfis starfsemi ferðaþjónustunnar í deiliskipulagi hafa hnikast til í hnitsetningu. Það gerir það að verkum að hluti bygginga stendur nú inni í fólkvanginum að Hliði. Lögð fram fundargerð frá fundi Garðabæjar og Umhverfisstofnunar þann 2.nóvmeber sl. Þar kom fram að Umhverfisstofnun mun sjá til þess að tillaga Garðabæjar að stækkun fólkvangsins og breytingu marka umhverfis ferðaþjónustuna muni ná fram að ganga.
Skipulagsstjóri samþykkir áður auglýsta deiliskipulagsbreytingu sem óverulega breytingu deiliskipulags Hliðs sbr. 2.mgr.43.gr. og 1.mgr.44.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Með vísan til heimildar í 3.mgr.44.gr.sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem að fyrir liggur að Umhverfisstofnun sem hagsmunaðili, gerir ekki athugasemd við tillögu að deiliskipulagsbreytingunni sbr.framlagða fundargerð.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
8. (830). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Hliðs á Álftanesi, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna færslu byggingarreitar.
Bæjarráð Garðabæjar
06
16. (1831). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Hliðs á Álftanesi, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna færslu byggingarreitar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
7. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hliðs sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur fyrir gistihús færist til innan lóðar að lokinni auglýsingu.
Skipulagstjóri gerir grein fyrir samráði við Umhverfisstofnun vegna tillögunnar.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
15. fundur
Lagt fram erindi Umhverfisstofnunar þar sem gerðar eru ýmsar athugasemdir við framkvæmdir í Hliði sem brjóti í bága við reglur og markmið friðslýsingar.
Bæjarverkfræðingi, byggingarfulltrúa og skipulagsstjóra falið að funda með hlutaðeigandi og sjá til þess að ekki sé unnið gegn markmiðum friðlýsingar.
Bæjarráð Garðabæjar
09
45 (1811). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi Hliðs á Álftanesi verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
14. fundur
Tillaga að deiliskipulagi Hliðs lögð fram að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir því að byggingarreitur c færist til norðurs og verður við vestan við núverandi íbúðarhús.
Tillagan var í auglýsingu frá 1.september til 16.otkóber. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem deiliskipulagbreyting í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd minnir á að ráðast þarf í fornleifakönnun áður en að framkvæmdir hefjast.
Bæjarráð Garðabæjar
11
26. (1792). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hliðs á Álftanesi. Leita skal eftir umsögnum frá Minjastofnun og Umhverfisstofnun.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
12
8. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hliðs. Tillagan gerir ráð fyrir því að byggingarreitur c færist til norðurs og verður við vestan við núverandi íbúðarhús. Umsögn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings lögð fram. Ljóst að ráðast verður í fornleifaskoðun áður en framkvæmdir hefjast hvort sem byggingarreitur verður á núverandi stað eða þar sem tillagan gerir ráð fyrir að hann verði. Tillögunni vísað til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010. Afla skal umsagnar Minjastofnunar og Umhverfisstofnunar á auglýsingartíma.