41. (1856). fundur
41. (1856). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
13.11.2018
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðrikssson,
Dagskrá
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2019 (2019-2022)
Bæjarstjóri lagði fram yfirlit yfir útreikninga um áhrif lækkunar á álagningarhlutfalli fasteignagjalda á heildartekjur vegna fasteignagjalda sem sýndar eru í frumvarpi að fjárhagsáætlun.
02
Brekkugata 25 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RK bygg ehf., kt. 560916-1830 leyfi til að byggja raðhús að Brekkugötu 25.
03
Brekkugata 27 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RK bygg ehf., kt. 560916-1830 leyfi til að byggja raðhús að Brekkugötu 27.
04
Brekkugata 29 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RK bygg ehf., kt. 560916-1830 leyfi til að byggja raðhús að Brekkugötu 29.
05
Mosagata 13-15 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Mosagötu ehf., kt. 630317-0530 leyfi til að byggja fjölbýlishús með 25 íbúðum að Mosagötu 13 - 15.
06
Víkurgata 22 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir að veita Anatasíu Alexandersdóttur, kt. 280493-5389 leyfi til að byggja einbýlishús að Víkurgötu 22.
07
Afgreiðsla skipulagsstjóra varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vegna lóða við Urðargötu 1, 3 og 5, dsk breyting
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsstjóra um óverulega breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Urðargötu 1, 3 og 5. Grenndarkynning fellur niður þar sem breytingin varðar ekki aðra en umsækjanda og sveitarfélagið.
08
Afgreiðsla skipulagsstjóra varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Hliðs.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsstjóra um óverulega breytingu á deiliskipulagi Hliðs vegna færslu á byggingarreit. Grenndarkynning fellur niður þar sem breytingin varðar ekki aðra en umsækjanda og sveitarfélagið. Þá liggur fyrir jákvæð afstaða Umhverfisstofnunar.
09
Afgreiðsla skipulagsstjóra varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna dælustöðvar í Kauptúni.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsstjóra um óverulega breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðar fyrir dælustöð. Grenndarkynning fellur niður þar sem breytingin varðar ekki aðra en umsækjanda og sveitarfélagið.
10
Úrskurður umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru á framkvæmdaleyfi vegna ljósabúnaðar fyrir gervigrasvöll, dags. 07.11.18.
11
Bréf stjórnar Villikatta um lóðarskika undir færanleg smáhýsi, dags. 05.11.18.
12
Bréf Sorpu bs. um rekstraráætlun 2019-2023, dags. 26.10.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar.
Fylgiskjöl
13
Bréf Sorpu bs. um stofnframlag sveitarfélaganna vegna byggingar gas- og jarðgerðarstöðvar, dags. 02.11.18.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu um greiðslu stofnframlags til Sorpu bs. að fjárhæð kr. 24.720.692.
Heildarstofnframlag er kr. 350.000.000 og skiptist í samræmi við íbúafjölda aðildarsveitarfélaganna miðað við 1. desember 2017.
Samþykkt um greiðslu stofnframlags á árinu 2019 er vísað til afgreiðslu fjárhagsáætlunar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hlutast til um gerð viðauka við fjárhagsáætlun 2018 vegna greiðslu stofnframlags á árinu 2018.
Fylgiskjöl
14
Bréf Stígamóta um styrk fyrir árið 2019, dags. 31.10.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.
Fylgiskjöl
15
Bréf SSH um tillögu að fyrirkomulagi samstarfs um sameiginlega ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk, dags. 06.11.18.
Bæjarráð samþykkir að boða til frekari kynningar um málið á næsta fundi bæjarráðs.
Fylgiskjöl
16
Kæra Sporthallarinnar ehf. vegna útboðs á uppbyggingu íþróttamannvirkja við Ásgarð, dags. 08.11.18.
Bæjarráð samþykkir að fela Andra Árnasyni, lögmanni, hrl. að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
17
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun í húsnæðismálum, 5. mál., dags. 08.11.18.
18
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar um styrk vegna tónleika kammerhópsins Camerarctica, dags. 19.10.18.
19
Bréf SEEDS sjálfboðaliðasamtaka um samstarf, dags. 02.11.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.