Dælustöð í Kauptúni
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
16. (838). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsstjóra um óverulega breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðar fyrir dælustöð. Grenndarkynning fellur niður þar sem breytingin varðar ekki aðra en umsækjanda og sveitarfélagið sbr. 1. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
03
41. (1856). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsstjóra um óverulega breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðar fyrir dælustöð. Grenndarkynning fellur niður þar sem breytingin varðar ekki aðra en umsækjanda og sveitarfélagið.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
9. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns sem gerir ráð fyrir breyttri aðkomu að dælustöð OR sem gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir að verði frá bensínstöðvarlóðinni Kauptúni 2. Tillagan gerir ráð fyrir aðkomunni beint frá aðalgötunni.
Hér er um að ræða aðkomu sem verður sjaldan notuð en nokkur umferð verður um á meðan á byggingu stendur.
Skipulagsstjóri samþykkir breytinguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Kauptúns og fellir grenndarkynningu niður þar sem að breytingin varða ekki aðra en umsækjanda og sveitarfélagið.