9. fundur
9. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
06.11.2018
Kl. 16:00 - 16:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson
- Anna María Guðmundsdóttir
- Eysteinn Haraldsson
- Guðjón Erling Friðriksson
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1706330
01
Hlið, deiliskipulagsbreyting 2017
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu á lóð ferðaþjónustunnar að Hliði. Tillagan gerir ráð fyrir því að byggingarreitur, merktur c, fyrir hús undir gistirými í suðvesturhorni lóðar færist til norðurs og verður vestan við íbúðarhús. Um er að ræða sömu tillögu og var auglýst fyrir ári síðan.Engar athugasemdir bárust en í umsögnum Umhverfisstofnunar komu fram ýmis atriði sem hafa verið til skoðunar. Í skoðun kom í ljós að mörk umhverfis starfsemi ferðaþjónustunnar í deiliskipulagi hafa hnikast til í hnitsetningu. Það gerir það að verkum að hluti bygginga stendur nú inni í fólkvanginum að Hliði. Lögð fram fundargerð frá fundi Garðabæjar og Umhverfisstofnunar þann 2.nóvmeber sl. Þar kom fram að Umhverfisstofnun mun sjá til þess að tillaga Garðabæjar að stækkun fólkvangsins og breytingu marka umhverfis ferðaþjónustuna muni ná fram að ganga.
Skipulagsstjóri samþykkir áður auglýsta deiliskipulagsbreytingu sem óverulega breytingu deiliskipulags Hliðs sbr. 2.mgr.43.gr. og 1.mgr.44.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Með vísan til heimildar í 3.mgr.44.gr.sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem að fyrir liggur að Umhverfisstofnun sem hagsmunaðili, gerir ekki athugasemd við tillögu að deiliskipulagsbreytingunni sbr.framlagða fundargerð.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1810220
02
Vesturtún 28 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn raðhússins að Vesturtúni 28 þar sem sótt er um að breyta bifreiðargeymslu í íbúðarherbergi. Byggingarfulltrúi vísar málinu til skoðunar hjá skipulagsstjóra.
Samkvæmt grein 3.1. í deiliskipulagsskilmálum Vesturtúns þá er heimilt að hafa bifreiðargeymslu í raðhúsum en ekki eru um skyldu að ræða. Skipulagsstjóri gerir þar af leiðandi fyrir sitt leyti ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt fyrir íbúðarrými þar sem nú er bifreiðargeymsla.
Málsnúmer 1808283
03
Svalalokun Blátún 6 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn frá byggingarfulltrúa um það hvort tillaga að lokun svala undir kvisti sé í samræmi við deiliskipulag.
Svar: Heildarflatarmál hússins er 223,1 m2 og lóð 792 m2. Nýtingarhlutfall er því um 0.28. Heimilað er nýtingharhlutfall 0.3. Á meðan að viðbótargólfflötur eru undir 14 m2 þá er stækkun innan marka deiliskipulags. Tillagan er því innan heimilda deiliskipulags.
Málsnúmer 1810070
04
Þrastanes 11 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram fyrirspurn um það hvort að leyfilegt sé að breyta helmingi tveggjabifreiða bílageymslu til íbúðarnota.
Svar: Í tillögu sem samþykkt hefur verið sem nýtt deiliskipulag fyrir Arnarnes en hefur ekki verið stafest með birtingu í B-deild stjórnartíðinda er gert ráð fyrir því að bifreiðageymslur geti verið fyrir einn eða tvo bíla. Umrædd breyting eins og hún er sett fram í fyrirspurn virðist ekki vera byggingarleyfisskyld og því ekki þörf á grenndarkynningur. Þegar staðfest hefur verið staðfest nýtt deiliskipulag fyrir Arnarnes er hægt að veita byggingarleyfi fyrir framkvæmdum sem eru í samræmi við deiliskipulag.
Málsnúmer 1805161
05
Haukanes 10 -Umsókn um byggingarleyfi
Ekki er deiliskipulag í gildi í hverfinu
Lögð fram tillaga að stækkun svala á aðalhæð á vesturhlið íbúðarhússins að Haukanesi 10. Í Arnarnesi er ekkert gildandi deiliskipulag fyrir hendi.
Svalir á núverandi húsi ná um 3 metra út fyrir byggingarreit en samkvæmt tillögu myndu þær ná 4,10 metra út fyrir byggingareit auk þess sem þær stækka verulega vestan hússins. Svalirnar myndu því taka undir sig verulegt pláss á milli húsanna sem skal vera 10 metrar samkvæmt skipulagi.
Ef tillagan verður óbreytt mælir skipulagsstjóri með því að sótt verði um deiliskipulagsbreytingu um leið og deiliskipulag Arnarness hefur tekið gildi.
Málsnúmer 1801168
06
Smáraflöt 18 - viðbygging
Lögð fram tillaga að lengingu bifreiðargeymslu um 2,5 metra sem er 2 m umfram þá 7,5 m sem deiliskipulag heimilar.
Skipulagsstjóri samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulag Flata og vísar tillögunni til grenndakynningar í samræmi við 44.gr.skipulagslaga. Grenndarkynna skal eigendum Smáraflatar 16, 17 og 20 sem og Stekkjarflatar 21.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1808155
07
Hæðarbyggð 22 -Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir breytingu á einbýlishúsinu að Hæðarbyggð 22 sem gerir ráð fyrir því að yfirbyggðum svölum verði lokað og að byggðar verði svalir á aðalhæð á vestur og norðurhlið ásamt stiga niður í garð. Nýjar svalir ná út fyrir byggingarreit að hluta. Viðbygging yrði innan byggingarreits.
Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar samkvæmt 44.gr. skipulagslaga nr,123/2010 þar sem breytingin er í samræmi við byggðarmynstur osfv. Grenndarkynna skal tillögu eigendum Hæðarbyggðar 20, 23, 24, 25 og 27. Ef samþykki allra viðeigandi liggur fyrir er heimilt að stytta tíma grenndarkynningar. Ef engar athugasemdir verða gerðar við umsóknina gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1810131
08
Dælustöð í Urriðaholti
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns sem gerir ráð fyrir breyttri aðkomu að dælustöð OR sem gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir að verði frá bensínstöðvarlóðinni Kauptúni 2. Tillagan gerir ráð fyrir aðkomunni beint frá aðalgötunni.
Hér er um að ræða aðkomu sem verður sjaldan notuð en nokkur umferð verður um á meðan á byggingu stendur.
Skipulagsstjóri samþykkir breytinguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Kauptúns og fellir grenndarkynningu niður þar sem að breytingin varða ekki aðra en umsækjanda og sveitarfélagið.
Málsnúmer 1810369
09
Urðargata 1, 3 og 5, dsk breyting
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir aukningu byggingarmagns raðhúsanna Urðargata 1,3 og 5 sem nemur gluggalausum rýmum á neðri hæð húsanna. Breytingin hlýst af landlagsmótun lóðanna og undirbyggingu húsanna. Þar sem um er að ræða gluggalaus rými sem nýtast sem geymslur og tæknirými og eru án grenndaráhrifa samþykkir skipulagsstjóri breytinguna sem óverulega. Grenndarkynning felld niður þar sem að áhrif breytingarinnar hafa engin grenndaráhrif og varða því aðeins umsækjanda og sveitarfélagið.