Haukanes 10 -Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
26. (1887). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Brynjari Kjærnested, kt. 121077-4859, leyfi til að breyta áður lokuðu rými í kjallara í íbúðarými í núverandi húsi að Haukanesi 10.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
4. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness að lokinni grenndarkynningu. Með vísan í 3.ml.3.mgr.41.gr.Skipulags-og byggingarlaga nr.123/2010 skoðast tillagan því samþykkt og verður send Skipulagsstofnun sem breyting deiliskipulags Arnarness.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
8. (848). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness í tilefni umsóknar lóðarhafa að Haukanesi 10 um stækkun byggingarreits, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Bæjarráð Garðabæjar
05
18. (1879). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness í tilefni umsóknar lóðarhafa að Haukanesi 10 um stækkun byggingarreits, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
8. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulags Arnarness sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur fyrir svalir stækki til vesturs. Tillagan er umfangsminni en tillaga sem áður hefur verið kynnt.
Lögð fram umsögn arkitektastofunnar Hornsteina sem bendir á að umræddar svalir fara út fyrir byggingarreit og að nýtingarhlutfall hússins sé umfram heimild deiliskipulagsins sem er 0.45 en B-rýmin sem myndast undir svölum reiknast til nýtingarhlutfalls. Í áliti kemur fram að deiliskipulagráðgjafinn telur ekki að stækkun svala hafi áhrif á aðliggjandi lóðir. Bent er á að samkvæmt deiliskipulagi skuli heitir pottar vera innan byggingarreits.
Skipulagsnefnd metur breytinguna, þ.e. stækkun byggingarreits vegna svala, þarafleiðandi hækkun nýtingarhlutfalla og staðsetningu heitapottsins óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum Haukaness 8, 9, 11,12 og 13.
Lúðvík Steinarsson vék af fundi undir þessum fundarlið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
6. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir stækkuðum byggingarreit vegna svala á vesturhlið húss.
Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfunda. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
4. fundur
Lögð fram ný útfærsla á stækkun svala á vesthlið húss.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
09
3. (843). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar að hafna fráviki frá skipulagsskilmálum vegna svala er ná út fyrir byggingarreit en samþykkja frávik frá skipulagsskilmálum vegna útitrappa. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
10
7. (1868). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar að hafna fráviki frá skipulagi vegna svala er ná út fyrir byggingarreit en samþykkja frávik frá skilmálum vegna útitrappa. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
11
2. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags Arnarness sem nær til lóðarinnar Haukanes 10. Núverandi svalir ná 2,7 m út fyrir byggingarreit. Svalir samkvæmt tillögu ná 3,8 m út fyrir byggingarreit. Fjarlægð byggingarreits frá lóðarmörkum er 8 m.
Þar sem að tillagan gerir ráð fyrir því að gengið verði inn á það rými sem gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir að sé óbyggt er tillögu að stækkun svala hafnað. Tillaga að útitröppum út fyrir byggingareit metin sem óveruleg breyting á deiliskipulagi og er henni vísað til grenndarkynningar eigenda Haukaness 8 og 12.
Lúðvík Steinarsson vék af fundi undir þessum lið.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
13
9. fundur
Ekki er deiliskipulag í gildi í hverfinu
Lögð fram tillaga að stækkun svala á aðalhæð á vesturhlið íbúðarhússins að Haukanesi 10. Í Arnarnesi er ekkert gildandi deiliskipulag fyrir hendi.
Svalir á núverandi húsi ná um 3 metra út fyrir byggingarreit en samkvæmt tillögu myndu þær ná 4,10 metra út fyrir byggingareit auk þess sem þær stækka verulega vestan hússins. Svalirnar myndu því taka undir sig verulegt pláss á milli húsanna sem skal vera 10 metrar samkvæmt skipulagi.
Ef tillagan verður óbreytt mælir skipulagsstjóri með því að sótt verði um deiliskipulagsbreytingu um leið og deiliskipulag Arnarness hefur tekið gildi.