14. fundur
14. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
21.11.2018
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1811125
01
Urriðaholt, Austurhluti 2
Framkvæmdastjóri Urriðaholts Jón Pálmi Guðmundsson og Hrafnhildur Brynjólfsdóttir skipulagsráðgjafi hjá Alta ehf kynntu drög að deiliskipulagi 2.áfanga Austurhluta Urriðaholts.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita Urriðaholti heimild til þess að vinna deiliskipulag 2.áfanga Austurhluta Urriðaholts sbr. 2.mgr.38.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Málsnúmer 1811180
02
Hraungata og Kinnargata. Breyting v framlengingar.
Lögð fram tilllaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem gerir ráð fyrir því snúningshausar Hraungötu og Kinnargötu við suðurmörk deiliskipulagssvæðisins verði felldir út og að göturnar tengist götum með sama heiti í deiliskipulagi Austurhluta.
Skipulagsnefnd lítur svo á að deiliskipulagsbreyting þessi hafi verið auglýst og samþykkt með deiliskipulagi Austurhluta og að í deiliskipulagi Vesturhluta kemur fram í kafla 4.2.1.1. deiliskiplagsgreingargerðar sé gert ráð fyrir breytingunni þegar að deiliskipulagningu Suðurhlutans (Austurhlutans) komi. Birta skal auglýsingu um gildistöku þeirrar breytingar í B-deild Stjórnartíðinda um leið og deiliskipulag Austurhluta.
Málsnúmer 1504148
03
Lundahverfi - nýtt deiliskipulag.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Lundahverfis að lokinni auglýsingu. Lagt fram eitt erindi með atuhgasemd.
Skipulagsnefnd lítur á innihald "athugsemdar" sem réttmætar ábendingar sem hafi verið leiðréttar og útskýrðar.
Lögð fram Húsakönnun Lundahverfis en niðurstöður hennar kalla ekki á sérstök ákvæði í deiliskipulagi. Fornleifa innan deiliskipualgssvæðisins er einungis getið á einum stað í Fornleifaskráningu Garðabæjar og eru þær minjar horfnar.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulag Lundahverfis í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 með þeim leiðréttingum sem gerðar voru í kjölfar ofangreindra ábendinga og felur tækni og umhverfissviði að undirbúa staðfestingu deiliskipulagsins.
Við gildistöku deiliskipulagsins fellur deiliskipulag Púttvallar við Vífilsstaðaveg sem tók gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda nr.603/2005 úr gildi.
Málsnúmer 1709351
04
Álftanes-Miðsvæði. Deiliskipulag
Þórhallur Sigurrðsson kynnti tillögur að deiliskipulagi Miðsvæðis á Álftanesi sem hefur verið skift upp í 5 deiliskipulagsáætlanir: 1.Breiðamýri, 2 Krókur, 3 Helguvík, 4 Skógtjörn og 6 Kumlamýri. Þær áætlanir gera ráð fyrir allt að 374 íbúðareiningum í fjölbýli, raðhúsum, parhúsum og einbýlishúsum.
Skipulagsnefnd samþykkir heildarskipulagið sem rammaskipulag svæðisins alls. Að öðru leyti vísast til ofangreindra skipulagsáætlana.
Málsnúmer 1811131
05
Skipulag - Breiðamýri Álftanesi, deiliskipulag.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Breiðumýrar sem afmarkast af Norðurnesvegi, Suðurnesvegi, Breiðumýri, skólalóðum og byggð við Suðurtún og Skólatún.
Gert er ráð fyrir allt að 270 íbúðum í 9 fjölbýliskjörnum. Heiti gatna samkvæmt tillögu Hestamýri, Grásteinsmýri og Lambamýri.
Tillagan hefur tekið nokkrum breytingum frá forkynntir tillögu og hefur verið tekið tillit til ábendinga sem borist hafa eftir því sem unnt var.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samr 1.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Málsnúmer 1811132
06
Skipulag - Krókur Álftanesi, deiliskipulag
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Króks sem afmarkast af Suðurnesvegi, Breiðumýri, Sviðholti og byggð við Klukkuholt og Birkiholt
Gert er ráð fyrir allt að 54 íbúðum í 7 raðhúsalengjum.Heiti gatna samkvæmt tillögu Svanamýri og Gásamýri.
Tillagan hefur tekið nokkrum breytingum frá forkynntir tillögu og hefur verið tekið tillit til ábendinga sem borist hafa eftir því sem unnt var.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samr 1.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Málsnúmer 1811133
07
Skipulag - Helguvík Álftanesi, deiliskipulag
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Helguvíkur sem afmarkast af Suðurnesvegi,Höfðarbraut og byggð við Sviðholtsvör.
Gert er ráð fyrir allt að 23 einbýlishúsum við tvær götur sem hljóta heitin Þórukot og Halakot samkvæmt tillögunni.
Tillagan hefur breyst óverulega frá forkynntri tillögu.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samr 1.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Málsnúmer 1811134
08
Skipulag - Skógtjörn Álftanesi, deiliskipulag
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi svæðisisns sunnar Suðurnesvegar og Hörðabrautar frá landamörkum að Hliði og að Kumlamýri. Samkvæmt tillögu kallast tillagan Deiliskipulag SKógtjarnar. Innan svæðisins er núverandi byggð við Búðarflöt, Lambhaga, Höfðabraut, Miðskóga, Brekkuskóga, Ásbrekku, Bæjarbrekku, Kirkjubrekku og Tjarnarbrekku. Verða gildandi deiliskipulagsákvæði felld að mestu óbreytt inn í deiliskipulagið og við gildistöku þess falla eldir deiliskipulagsáætlanir úr gildi, Auk þess er gert ráð fyrir nýjum sérbýlishúsum sunnan við Bæjarbrekku og samkvæmt tillögu verði sú gata nefnd Holtsbrekka.
Tillagan hefur tekið nokkrum breytingum frá forkynntir tillögu og hefur verið tekið tillit til ábendinga sem borist hafa eftir því sem unnt var.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samr 1.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Málsnúmer 1811135
09
Skipulag - Kumlamýri Álftanesi, deiliskipulag
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Kumlamýrar sem afmarkast af Norðurnesvegi, Álftanesvegi og byggð við Kirkjubrekku og Tjarnarbrekku.
Gert er ráð fyrir allt að 40 íbúðum í 20 parhúsum. Tillagan gerir ráð fyrir því að gatan verði nefnd Kumlamýri eins og örnefni á þessum stað.
Tillagan hefur tekið nokkrum breytingum frá forkynntir tillögu og hefur verið tekið tillit til ábendinga sem borist hafa eftir því sem unnt var.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samr 1.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Málsnúmer 1810324
10
Smáraflöt 11 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Flata sem gerir ráð fyrir bílageymslu fyrir framan þá sem fyrir er. Málinu vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.
Málsnúmer 1811054
11
Staðsetning gestahúsa við Nýjabæ
Lögð fram fyrirspurn eigenda Nýjabæjar um staðsetningu þriggja smáhýsa. 1 hús yrði staðsett inni á lóð Nýjabæjar 2 og 2 austan Garðavegar á svæði sem er á forræði Nýjabæjar 2. Skipulagsnefnd vísar fyrirspurn til umsagnar hjá deiliskipulagshöfundi.
Málsnúmer 1806403
12
Miðhraun 24, breyting á dsk Molduhrauns
Lögð fram tillaga lóðarhafa að breytingum á deiliskipulagi Molduhrauns sem nær til lóðarinnar Miðhraun 24 að lokinn auglýsingu.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir því að lóðin stækki til suðurs, verði 13.888 í stað 12,742 m2. Aðkomur að lóðinni breytast frá Miðrauni og gert verði ráð fyrir bráðabirgðaaðkomu frá Álftanesvegi sem verður hægt að loka þegar að Álftanesvegur verður byggður í samræmi við aðalskipulag.
Engar athugasemdir bárust við tillöguna.
Skipulasnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns sbr.42.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Málsnúmer 1804367
13
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030-Breyting 1-Vífilstaðaland-rammahluti.
Lagðar fram ábendingar og umsagnir sem borist hafa vegna lýsingar verkefnisins. Ábendingum vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og hjá skipulagsráðgjöfum.
Málsnúmer 1810120
14
Ljósakur 6-breytingar á geymslum
Lögð fram umsókn um breytingu á fjölbýlishúsinu að Ljósakri 6. Samkvæmt tillögu verður húsið 3 hæða í stað tvegjja hæða og kallar á deiliskipulagsbreytingu. Þeirri deiliskipulagsbreytingu er hafnað þar sem að breytingin hefur áhrif á hús við Hjálmakur en eigendur þeirra hafa áður lýst sig andsnúna þeirri útfærslu.
Málsnúmer 1810393
15
Breyting á ASK Hafnarfjarðar 2013-2015, Suðurhöfn
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við breytingartillöguna.
Málsnúmer 1810394
16
Breyting á ASK Hafnarfjarðar 2013-2015, Hamranes
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við breytingartillöguna.
Málsnúmer 1811008F
17
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 9
Fundargerð lögð fram. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við afgreiðslu þeirra mála sem fram koma í fundargerð.