Beint í efni

Skipulag - Breiðamýri Álftanesi, deiliskipulag.

Málsnúmer 1811131

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

17. (857). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um lagfæringar og uppfærslur gagna sem fylgja tillögu sem samþykkt hefur verið sem nýtt deiliskipulag fyrir Breiðumýri á Álftanesi. Deiliskipulagið skal sent til áframhaldandi meðferðar Skipulagsstofnunar samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

02

44. (1905). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um lagfæringar og uppfærslur gagna sem fylgja tillögu sem samþykkt hefur verið sem nýtt deiliskipulag fyrir Breiðumýri á Álftanesi. Deiliskipulagið skal sent til áframhaldandi meðferðar Skipulagsstofnunar samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

16. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi blandaðrar byggðar í Breiðumýri sem hefur verið lagfærð í kjölfar ábendinga Skipulagsstofnunar. Lagt fram erindi Skipulagsstofnunar dags.16.ágúst sl. Skipulagsnefnd telur að lagfæringarnar varði ekki efnislegt innihald tillögunanr og því ekki ástæða til þess að auglýsa tillöguna að nýju. Skipulagsnefnd gerir ekki athugsemdir við lagfæringar og telur þær bæta framsetningu tillögunnar verulega.

Bæjarráð Garðabæjar

04

31. (1892). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til skipulagsnefndar og felur nefndinni að gera nauðsynlegar breytingar hvað varðar athugasemdir um form á tillögu deiliskipulags fyrir miðsvæði Álftaness sem samþykkt hefur verið í bæjarstjórn.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

6. (846). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Breiðumýri á Álftanesi samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og deiliskipulagið með eftirfarandi áorðnum breytingum frá auglýstri tillögu:

Íbúðum fækki í Breiðumýri um 18 eða sem nemur 2 íbúðum á hvern húskjarna (úr 270 í 252)
Nýtt ákvæði um að hús í Breiðumýri næst Suðurnesvegi, Norðurnesvegi og Skólatúni verði ekki hærri en 2 hæðir. Þau hús geta hvort heldur verið útfærð sem raðhús eða fjölbýlishús.
Nýtt ákvæði um að hús í norðvesturhorni Hestamýrar nr. 3 verði ekki hærri en 1 hæð innan þess reits sem næst liggur Suðurtúni.
Sérnotafletir íbúða á jarðhæð verði stækkaðir eins og skipulagsnefnd leggur til.
Skjólveggir á sérnotareitum verði útfærðir eins og skipulagsnefnd leggur til.
Hámarkshæð húsa í Lambamýri lækki um 1m (úr 12m í 11m) og í Grásteinsmýri og Hestamýri um 1,5 m (úr 12 m í 10,5 m).
Byggingarreitir í Breiðumýri breikki úr 10 m í 12,5 m.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Bæjarráð Garðabæjar

06

13. (1874). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Breiðumýri á Álftanesi samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Skipulagsnefnd samþykkti eftirfarandi breytingar á upphaflegri tillögu.

Íbúðum fækki í Breiðumýri um 18 eða sem nemur 2 íbúðum á hvern húskjarna (úr 270 í 252)
Nýtt ákvæði um að hús í Breiðumýri næst Suðurnesvegi, Norðurnesvegi og Skólatúni verði ekki hærri en 2 hæðir. Þau hús geta hvort heldur verið útfærð sem raðhús eða fjölbýlishús.
Nýtt ákvæði um að hús í norðvesturhorni Hestamýrar nr. 3 verði ekki hærri en 1 hæð innan þess reits sem deiliskipulagsráðgjafi lagði til á fundinum.
Sérnotafletir íbúða á jarðhæð verði stækkaðir eins og deiliskipulagsráðgjafi leggur til.
Skjólveggir á sérnotareitum verði útfærðir eins og deiliskipulagsráðgjafi leggur til.
Hámarkshæð húsa í Lambamýri lækki um 1m (úr 12m í 11m) og í Grásteinsmýri og Hestamýri um 1,5 m (úr 12 m í 10,5 m).
Byggingarreitir í Breiðumýri breikki úr 10 m í 12,5 m.
(Gildandi deiliskipulag sem staðfest var árið 2007 gerir ráð fyrir allt að 307 íbúðum á landnotkunarreit 1.23 í aðalskipulagi. Eftir breytingu á auglýstri tillögu sem lögð er til þá fækkar íbúðum um 19 og verða þá 264 íbúðir innan landnotkunarreitsins.)

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

4. fundur

Sjá bókun við fundarlið 1.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

2. fundur

Sjá bókun við fundarlið nr. 1.

Bæjarstjórn Garðabæjar

09

17. (839). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Breiðumýrar á Álftanesi. Í tillögunni er gert ráð fyrir 270 íbúðum í 9 fjölbýlishúsakjörnum.

Bæjarráð Garðabæjar

10

44. (1859). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Breiðumýrar á Álftanesi. Í tillögunni er gert ráð fyrir 270 íbúðum í 9 fjölbýlishúsakjörnum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

14. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Breiðumýrar sem afmarkast af Norðurnesvegi, Suðurnesvegi, Breiðumýri, skólalóðum og byggð við Suðurtún og Skólatún.
Gert er ráð fyrir allt að 270 íbúðum í 9 fjölbýliskjörnum. Heiti gatna samkvæmt tillögu Hestamýri, Grásteinsmýri og Lambamýri.
Tillagan hefur tekið nokkrum breytingum frá forkynntir tillögu og hefur verið tekið tillit til ábendinga sem borist hafa eftir því sem unnt var.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samr 1.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.