Beint í efni

31. (1892). fundur

20.08.2019
Bæjarráð Garðabæjar

31. (1892). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

20.08.2019

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1906178

01

Kynning á starfsemi Strætó bs.

Á fund bæjarráðs mættu Jóhannes S. Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó bs. og Björg Fenger, formaður stjórnar Strætó bs. og kynntu þau starfsemi félagsins og vinnu við stefnumótun.

Málsnúmer 1510003

02

Frjóakur 7 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Nova Buildings ehf., kt. 521112-1660, leyfi til að skrá og taka í notkun áður lokað rými í einbýlishúsinu að Frjóakri 7.

Málsnúmer 1801153

03

Hliðsvegur 1 (Hlið)- Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Landnámi ehf., kt. 640295-2529, leyfi fyrir byggingu gistihúss með sex gistiherbergjum að Hliði á Álftanesi.

Málsnúmer 1907048

04

Vífilsstaðavegur 123 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Bak-Hjöllum ehf., kt. 480609-1150, leyfi til að reisa þrjár færanlegar kennslustofur að Vífilsstöðum.

Málsnúmer 1802372

05

Erindi Samgöngustofu varðandi málþing í Garðabæ um börn og samgöngur, dags. 15.08.19.

Bæjarráð tekur jákvætt í að verða við erindi um að leggja til húsnæði fyrir málþing um börn og samgöngur. Bæjarráð felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1904184

06

Gjaldskrá fyrir starfsemi frístundar fyrir nemendur í 5.-10. bekk.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja gjaldskrá fyrir starfsemi frístundar.

Málsnúmer 1811131

07

Bréf Skipulagsstofnunar um athugasemdir varðandi tillögur að deiliskipulagi Breiðumýrar, Helguvíkur, Króks og Kumlamýrar á Álftanesi, dags. 16.08.19.

Bæjarráð vísar bréfinu til skipulagsnefndar og felur nefndinni að gera nauðsynlegar breytingar hvað varðar athugasemdir um form á tillögu deiliskipulags fyrir miðsvæði Álftaness sem samþykkt hefur verið í bæjarstjórn.

Fylgiskjöl