Beint í efni

17. (857). fundur

21.11.2019
Bæjarstjórn Garðabæjar

17. (857). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

21.11.2019

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - forseti bæjarstjórnar
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Guðfinnur Sigurvinsson - varamaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Gunnar Einarsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Valborg Ösp Á. Warén - varamaður

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Fundurinn er hljóðritaður.

Sigurður Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 7. nóvember 2019 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 1911014F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 12/11 ´19.

Enginn tók til máls.

Fundargerðin sem er 10. tl., er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

Málsnúmer 1911027F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 19/11 ´19.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 4.-7. tl., afgreiðslur skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna þróunarsvæðis B - Vífilsstaðaland og tillögur að deiliskipulagsáætlunum fyrir norðurhluta Hnoðraholts, Vetrarmýri og Rjúpnadal. Sigurður vakti athygli á kynningarfundi sem verður í Sveinatungu 10. desember nk. Þá ræddi Sigurður 8.-13. tl., afgreiðslur skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness.

Björg Fenger ræddi 2. tl., byggingarleyfi fyrir útilífsmiðstöð skáta í Heiðmörk og óskaði Hjálparsveit skáta í Garðabæ til hamingju með 50 ára afmælið.

Fundargerðin sem er 24. tl., er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

Málsnúmer 1910028F

03

Fundargerð fjölskylduráðs frá 16/10 ´19.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., kynningu Þroskahjálpar varðandi rekstur íbúakjarna og 6. tl., áskorun til sveitarfélaga um að fara eftir ákvæðum reglugerðar varðandi framkvæmd notendastýrðar persónulegrar aðstoðar.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., kynningu Þroskahjálpar varðandi rekstur íbúakjarna og 5. tl., tillögu Garðabæjarlistans um virkjun til atvinnuþátttöku.

Almar Guðmundsson, ræddi að nýju 1. tl., kynningu Þroskahjálpar varðandi rekstur íbúakjarna og 5. tl., tillögu Garðabæjarlistans um virkjun til atvinnuþátttöku.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1911015F

04

Fundargerð fjölskylduráðs frá 13/11 ´19.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1911023F

05

Fundargerð skipulagsnefndar frá 15/11 ´19.

Ingvar Arnarson, ræddi 21. tl., drög að breytingum á reglugerð um mat á umhverfisáhrifum og reglugerð um framkvæmdaleyfi.

Ingvar Arnarsson, kvaddi sér hljóðs að nýju um sama mál.

Gunnar Einarsson, ræddi 21. tl., drög að breytingum á reglugerð um mat á umhverfisáhrifum og reglugerð um framkvæmdaleyfi.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1910057F

06

Fundargerð skólanefndar tónlistarskóla frá 1/11 ´19.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., starfsemi Tónlistarskólans, 4. tl., sameiginleg verkefni menningar- og safnanefndar og skólanefndar Tónlistarskólans, 2. tl., menningar og fræðamiðstöð í Garðabæ. Gunnar Valur vék að tónlistarveislu í skammdeginu sem var hér á Garðatorgi sl. fimmtudag sem tókst einstaklega vel og þakkaði Gunnar öllum sem komu að undirbúningi og framkvæmd fyrir þeirra framlag.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 4. tl., sameiginleg verkefni menningar- og safnanefndar og skólanefndar Tónlistarskólans.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1911018F

07

Fundargerð skólanefndar tónlistarskóla frá 14/11 ´19.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1905006F

08

Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 17/5 ´19.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi sameiginlegan fund stjórnar Hönnunarsafn Íslands og menningar- og safnanefndar.

Gunnar Einarsson, ræddi sameiginlegan fund stjórnar Hönnunarsafn Íslands og menningar- og safnanefndar og velti fyrir sér hugmynd um sameiginlegan fund allra fastanefnda bæjarstjórnar.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi sameiginlegan fund stjórnar Hönnunarsafn Íslands og menningar- og safnanefndar

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1911013F

09

Fundargerð umhverfisnefndar frá 13/11 ´19.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 1. tl., tillögu að skipulagi á norðurnesi Álftaness, 4. tl., styrkumsókn vegna hleðslubúnaðar fyrir rafbíla.

Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., niðurstöður mengunarmælinga 2019.

Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., niðurstöður mengunarmælinga 2019.

Björg Fenger, ræddi 1. tl., tillögu að skipulagi á norðurnesi Álftaness og sagði frá opnun nýs leiksvæðis við Norðurtún á Álftanesi.

Ingvar Arnason, ræddi 2. tl., niðurstöður mengunarmælinga 2019.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1901375

10

Fundargerð stjórnar SSH frá 4/11 ´19.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 6. tl. fjárhagsáætlanir byggðasamlaganna 3. tl., notendastýrða persónulega aðstoð og 12. tl., frístundastarf fatlaðra ungmenna í Hinu húsinu.

Björg Fenger, ræddi 8. tl., ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., aðalfund SSH og 5. tl., skilavegi ? yfirfærslu vega til sveitarfélaga.

Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., aðalfund SSH, 6. tl., fjárhagsáætlanir byggðasamlaganna, 3. tl., notendastýrða persónulega aðstoð, 5. tl., skilavegi ? yfirfærslu vega til sveitarfélaga, 8. tl., ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk og 12. tl., frístundastarf fatlaðra ungmenna í Hinu húsinu

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1911304

11

Tillaga um skipun starfshóps til að vinna að framgangi stafrænnar framþróunar og þjónustu hjá Garðabæ.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu um skipun starfshóps til að vinna að framgangi stafrænnar framþróunar og þjónustu hjá Garðabæ.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að setja af stað starfshóp til að vinna að framgangi stafrænnar framþróunar og þjónustu hjá Garðabæ. Starfshópurinn skal skipaður þremur fulltrúum tilnefndum af bæjarráði. Bæjarráð skal setja starfshópnum erindisbréf þar sem m.a. kemur fram markmið, ábyrgðaraðili og skil á greinargerð og tillögum. Starfsmaður hópsins verður verkefnastjóri á bæjarskrifstofunum auk annarra starfsmanna Garðabæjar sem starfa með hópnum eftir þörfum.“

Greinargerð:

Bæjarstjórn Garðabæjar vill stuðla að því að Garðabær verði í fararbroddi stafrænnar framþróunar og þjónustu fyrir íbúa og viðskiptavini sveitarfélagsins. Á undanförnum árum hefur mikil tækniþróun átt sér stað og ferlar og vinnubrögð tekið breytingum. Framundan er enn meiri þróun á sviði upplýsingatækni og fjórða iðnbyltingin er hafin sem gengur m.a. út á að tengja saman þá tækni sem nú er til staðar m.a. með gervigreind og sjálfvirknivæðingu. Þessi þróun mun hafa mikil áhrif á samfélagið í heild á næstu árum. Mikilvægt er að Garðabær móti sér stefnu og sýn um hvernig stafræn framtíð getur aukið lífsgæði íbúa Garðabæjar. Það er meðal annars hægt með því að gera stafræna þjónustu aðgengilega og sniðna að þörfum notenda. Með skilvirkari og bættum vinnuferlum í stafrænni þjónustu er hægt að bæta afgreiðslu mála og upplýsingagjöf. Stafræn vegferð sveitarfélagins er samstarfsverkefni þvert á svið og byggja þarf upp þekkingu stjórnenda og starfsmanna til að vinna að stafrænni framþróun.

Sveitarfélög eiga í auknum mæli eftir að nýta sér þjónustu island.is sem er miðlæg stafræn þjónustugátt sem hefur það meginmarkið að auðvelda samskipti einstaklinga og atvinnulífs við hið opinbera. Ísland hefur einnig hafið innleiðingu á Straumnum (X-Road) sem er gagnaflutningslag sem er ætlað að auðvelda samskipti milli upplýsingakerfa á öruggan hátt. Sveitarfélög, opinberar stofnanir og fyrirtæki í landinu geta í framtíðinni nýtt sér Strauminn til að flytja gögn sín á milli með það að markmiði að bæta þjónustu við almenning.

Hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga er starfandi breytingastjóri stafrænnar þjónustu sem vinnur að miðlægu samstarfi sveitarfélaga til að auðvelda þeim að verða virkir þátttakendur í stafrænni framþróun. Það eru tækifæri fólgin í því að taka þátt í samstarfsverkefnum sveitarfélaga um hvernig nýta megi nútímatækni til að bæta þjónustu og samskipti við íbúa.

Vorið 2019 var lagt fram minnisblað í bæjarráði Garðabæjar um snjalllausnir og snjallvæðingu sveitarfélagsins. Snjalllausnir og nýsköpun þeim tengd er hluti af stafrænni framþróun og ætti að skoða samhliða.

Kortlagning stafrænnar framþróunar og þjónustu hjá Garðabæ er mikilvægt veganesti inn í framtíðina til að öflug og góð þjónusta verði enn betri.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls og lýsti stuðningi við tillöguna. Sara Dögg lagði fram eftirfarandi bókun.

„Garðabæjarlistinn leggur til að umræddur starfshópur tryggi að unnið verði að samræmdri stafrænni stefnu fyrir leik- og grunnskóla sveitarfélagsins. Að skilja tungumál tækninnar er lykill að frekari nýsköpun og þróun. Því skiptir máli að bæði ríki og sveitarfélög taki málið til sín og forgangsraði í þágu bættrar þjónustu og aðgengi allra að því stafræna samfélagi sem hefur áhrif á hvert einasta mannsbarn.“

Áslaug Hulda Jónsdóttir , tók til máls.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framkomna tillögu.

Málsnúmer 1909205

12

Jafnréttisstefna Garðabæjar 2019-2022

Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og fylgdi úr hlaði jafnréttisstefnu Garðabæjar 2019-2022. Almar gerði grein fyrir vinnu í fjölskylduráði og hjá starfmönnum á bæjarskrifstofum við undirbúning og gerð stefnunnar. Almar gerði grein fyrir helstu meginþáttum stefnunnar og framkvæmdaáætlun sem fylgir stefnunni.

Almar þakkaði öllum þeim sem komu að málinu fyrir þeirra vinnu.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls og lagði fram eftirfrandi bókun.

„Garðabæjarlistinn telur afar brýnt að verði útlistað betur og leggjum til að verði vísað áfram inn í nefndina til úrvinnslu.

Fyrst markmið 1.3 sem kallar eftir að við öflum kyngreinanlegra tölfræðiupplýsinga við þjónustukönnun. Hér þyrfti að okkar mati ekki síður að greina m.a. aðra jaðarhópa; hinsegin, fatlaða, innflytjendur og einstæða foreldra. Þannig að ná megi betri heildarmynd af stöðu allra viðkvæmustu hópanna sem er mikilvægt að hafa þegar verið er að forgangsraða t.d. þjónustu.

Markmið 1.5 um veitingu jafnréttisviðurkenninga. Hér vantar sannanlega bæði að skilgreina eða ákveða hverjir gætu verið tilnefndir (er það stjórnsýslan sjálf eða mögulega íbúar og fyrirtæki?). Einnig ætti að vera skýrt og tilgreint að fjölskylduráð setji reglur um þessa viðurkenningu.

Markmið 2.4 stefnur og viðbragsáætlanir Garðabæjar um einelti, ofbeldi og áreitni er ekki að finna á heimasíðu sveitarfélagsins þrátt fyrir ítrekaðar og mikla leit. Þetta skiptir máli ekki síst fyrir mögulega eða verðandi starfsmenn bæjarins að geta kynnt sér til dæmis við atvinnuumsókn eða atvinnuleit. Þessu þarf að kippa í liðinn.

Markmið 3. Hér teljum við að í jafnréttisáætlun sé kveðið á um að samningsaðilar bæjarins setji sér jafnréttisstefnu og skili henni inn. Hún megi ekki ganga skemur en stefna bæjarins og að þessi samningsaðilar þurfi einnig að setja sér aðgerðaáætlun sem uppfærð sé árlega.“

Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Björg Fenger, tók til máls.

Almar Guðmundsson, tók til máls.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Gunnar Einarsson, tók til máls og þakkaði fjölskylduráði fyrir góða vinnu við gerð stefnunnar. Gunnar sagði frá vinnu við jafnlaunavottun en forúttekt hefur farið fram þar sem engar athugasemdir komu fram. Lokaúttekt jafnlaunakerfis mun fara fram dagana 27. ? 29. nóvember nk.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða jafnréttisstefnu Garðabæjar 2019-2022.