44. (1859). fundur
44. (1859). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
04.12.2018
Kl. 08:00 - 08:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1806461
01
Frumvarp að fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022)
Lögð fram tillaga um álagningu fasteignagjalda á árinu 2019 ásamt yfirliti um breytingar á öðrum gjaldskrám.
Lögð fram tillaga um breytingar á einstaka liðum við A og B - hluta frumvarps.að fjárhagsáætlun ásamt breytingu á tillögu að framkvæmdayfirliti.
Bæjarráð samþykkir að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2019-2022 ásamt tillögum að breytingum og tillögu um álagningu gjalda til síðari umræðu í bæjarstjórn fimmtudaginn 6. desember nk.
Málsnúmer 1710169
02
Bréf RÓ ehf. ásamt skýrslu um mat á áhrifum fjárfestingar í fjölnota íþróttahúsi, dags. 29.11.18.
Lögð fram skýrsla Jón Arnar Baldurssonar, löggilts endurskoðanda um mat á áhrifum fjárfestingar í fjölnota íþróttahúsi á fjárhags sveitarfélagsins, sbr. 66. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Niðurstaða matsins er að Garðabær geti ráðist í fjárfestingu í fjölnota íþróttahúsi að fjárhæð 4.850 mkr. án þess að hún hafi veruleg neikvæð áhrif á fjárhagsstöðu og rekstur bæjarins.
Ingvar Arnarson, lagði fram eftirfarandi bókun.
„Garðabæjarlistinn telur mikilvægt að Garðabær fari vel yfir alla þætti sem tengjast framkvæmdum og fjárfestingu við fjölnota knatthúsi. Í skýrslu RÓ er talað um lóðarsölu og að sú sala eigi að standa undir stórum hluta fjárfestingarinnar. Hvergi er hægt að sjá hvaða lóðir um ræðir eða hvenær þessar lóðir eigi að fara í sölu.
Til að hægt sé að taka mark á skýrslu sem þessari þurfa allar breytur að vera til staðar. Við í Garðabæjarlistanum teljum því að það ríki veruleg óvissa um hvaða áhrif þessi framkvæmd muni hafa á fjárhag Garðabæjar og óskum eftir því að fá að sjá áætlun um fyrirhugaða lóðarsölu.“
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1811274
03
Bæjargarður - Umsókn um byggingarleyfi - Ljósamöstur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita tækni- og umhverfissviði leyfi til uppsetningar á ljósamöstrum við gervigrasvöll í Bæjargarði.
Málsnúmer 1807103
04
Holtsbúð 45 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Benedikt Arasyni, kt. 040479-5899 leyfi til að endurbæta og breyta núverandi einbýlishúsi við Holtsbúð 45.
Málsnúmer 1709351
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um rammaskipulag fyrir miðsvæði Álftanes þar sem verða fimm deiliskipulagsáfangar, sbr. tölulið 6 - 9 í fundargerð.
Málsnúmer 1811131
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að nýju deiliskipulagi Breiðumýrar á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Breiðumýrar á Álftanesi. Í tillögunni er gert ráð fyrir 270 íbúðum í 9 fjölbýlishúsakjörnum.
Málsnúmer 1811132
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að nýju deiliskipulagi Króks á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Króks á Álftanesi. Í tillögunni er gert ráð fyrir 54 íbúðum í raðhúsum.
Málsnúmer 1811133
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að nýju deiliskipulagi Helguvíkur á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Helguvíkur á Álftanesi. Í tillögunni er gert ráð fyrir 23 einbýlishúsum.
Málsnúmer 1811134
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að nýju skipulagi Skógtjarnar á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Skógtjarnar á Álftanesi. Í tillögunni er gert ráð fyrir að núverandi byggð við Búðarflöt, Lambhaga, Höfðabraut, Miðskóga, Brekkuskóga, Ásbrekku, Bæjarbrekku, Kirkjubrekku og Tjarnarbrekku verði hluti skipulagssvæðisins ásamt nýjum sérbýlishúsum sunnan við Bæjarbrekku.
Málsnúmer 1811135
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að nýju deiliskipulagi Kumlamýrar á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Kumlamýrar á Álftanesi. Í tillögunni er gert ráð fyrir 40 íbúðum í parhúsum.
Málsnúmer 1811308
11
Bréf þorrablótsnefndar Lionsklúbbs Álftaness varðandi þorrablót í íþróttamiðstöðinni á Álftanesi, dags. 27.11.18.
Í bréfinu er farið fram á leyfi til að halda þorrablót Kvenfélags og Lionsklúbbs Álftaness í íþróttamiðstöðinni á Álftanesi laugardaginn 9. febrúar nk. Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1811315
12