Skipulag - Skógtjörn Álftanesi, deiliskipulag
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
17. (857). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að deiliskipulagi fyrir Skógtjörn á Álftanesi verði auglýst að nýju samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41.gr. sömu laga.
Bæjarráð Garðabæjar
02
44. (1905). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að deiliskipulagi fyrir Skógtjörn á Álftanesi verði auglýst að nýju samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41.gr. sömu laga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
16. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi íbúðarbyggðar sunnan Suðurnesvegar. Lagt fram erindi Skipulagsstofnunar dags.16.ágúst sl. Skipulagsnefnd telur athugasemdir Skipulagsstofnunar þess eðlis að nauðsynlegt sé að endurskoða tillöguna og auglýsa hana að nýju.
TIllögu vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og tækni-og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
6. (846). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Skógtjörn á Álftanesi samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og deiliskipulagið með eftirfarandi áorðnum breytingum frá auglýstri tillögu:
Heiti Holtsbrekku verði breytt í Dalsbrekku.
Tenging Dalsbrekku verði í beinu framhaldi af Tjarnarbrekku.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu um þær.
Bæjarráð Garðabæjar
05
13. (1874). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Skógtjörn á Álftanesi samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Skipulagsnefnd samþykkti eftirfarandi breytingar á upphaflegri tillögu.
Heiti Holtsbrekku verði breytt í Dalsbrekku.
Tenging Dalsbrekku verði í beinu framhaldi af Tjarnarbrekku.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Bæjarstjórn Garðabæjar
08
17. (839). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Skógtjarnar á Álftanesi. Í tillögunni er gert ráð fyrir að núverandi byggð við Búðarflöt, Lambhaga, Höfðabraut, Miðskóga, Brekkuskóga, Ásbrekku, Bæjarbrekku, Kirkjubrekku og Tjarnarbrekku verði hluti skipulagssvæðisins ásamt nýjum sérbýlishúsum sunnan við Bæjarbrekku.
Bæjarráð Garðabæjar
09
44. (1859). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Skógtjarnar á Álftanesi. Í tillögunni er gert ráð fyrir að núverandi byggð við Búðarflöt, Lambhaga, Höfðabraut, Miðskóga, Brekkuskóga, Ásbrekku, Bæjarbrekku, Kirkjubrekku og Tjarnarbrekku verði hluti skipulagssvæðisins ásamt nýjum sérbýlishúsum sunnan við Bæjarbrekku.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
14. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi svæðisisns sunnar Suðurnesvegar og Hörðabrautar frá landamörkum að Hliði og að Kumlamýri. Samkvæmt tillögu kallast tillagan Deiliskipulag SKógtjarnar. Innan svæðisins er núverandi byggð við Búðarflöt, Lambhaga, Höfðabraut, Miðskóga, Brekkuskóga, Ásbrekku, Bæjarbrekku, Kirkjubrekku og Tjarnarbrekku. Verða gildandi deiliskipulagsákvæði felld að mestu óbreytt inn í deiliskipulagið og við gildistöku þess falla eldir deiliskipulagsáætlanir úr gildi, Auk þess er gert ráð fyrir nýjum sérbýlishúsum sunnan við Bæjarbrekku og samkvæmt tillögu verði sú gata nefnd Holtsbrekka.
Tillagan hefur tekið nokkrum breytingum frá forkynntir tillögu og hefur verið tekið tillit til ábendinga sem borist hafa eftir því sem unnt var.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samr 1.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.