44. (1905). fundur
44. (1905). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
19.11.2019
Kl. 08:00 - 08:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1904109
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 (2020-2023).
Bæjarstjóri gerði grein fyrir hugmyndum að tillögum að breytingum við frumvarp að fjárhagsáætlun.
Málsnúmer 1910093
02
Útilífsmiðstöð Vífils við Grunnuvötn - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Skátafélaginu Vífli, kt. 530576-0439, leyfi til að byggja útilífsmiðstöð við Grunnuvötn í Heiðmörk.
Málsnúmer 1911090
03
Keldugata 13 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Burstabæ ehf., kt. 500300-2210, leyfi til að stækka lagnarými húss í byggingu að Keldugötu 3.
Málsnúmer 1804367
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna þróunarsvæðis B - Vífilsstaðaland.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til þróunarsvæðis B, Vífilstaðalands. Tillagan, forsendur hennar og umhverfismat skal kynnt íbúum og öðrum hagsmunaðilum á almennum fundi samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd. Samhliða skal kynna tillögur að nýju deiliskipulagi Vetrarmýrar, norðurhluta Hnoðraholts og Rjúpnadals.
Málsnúmer 1910293
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Vetrarmýri. Tillagan, forsendur hennar og umhverfismat skal kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða skal kynna tillögur að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til þróunarsvæðis B, Vífilstaðalands og nýju deiliskipulagi, norðurhluta Hnoðraholts og Rjúpnadals.
Málsnúmer 1906192
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir norðurhluta Hnoðraholts. Tillagan, forsendur hennar og umhverfismat skal kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða skal kynna tillögur að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til þróunarsvæðis B, Vífilstaðalands og nýju deiliskipulagi Vetrarmýrar og Rjúpnadals.
Málsnúmer 1910294
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi kirkjugarðs og meðferðarstofnunar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir kirkjugarðs og meðferðarstofnunar í Rjúpnadal. Tillagan, forsendur hennar og umhverfismat skal kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða skal kynna tillögur að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til þróunarsvæðis B, Vífilstaðalands og nýju deiliskipulagi Vetrarmýrar og norðurhluta Hnoðraholts.
Málsnúmer 1709351
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag miðsvæðis Álftaness.
Gögn vegna Álftaness
https://wetransfer.com/downloads/3b68944acb2b7653f2b6ec70102a604c20191114163402/31a086e1d50fc8bdebef6810dbc3466b20191114163402/d3bbfd
Lögð fram.
Málsnúmer 1811131
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir Breiðumýri á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um lagfæringar og uppfærslur gagna sem fylgja tillögu sem samþykkt hefur verið sem nýtt deiliskipulag fyrir Breiðumýri á Álftanesi. Deiliskipulagið skal sent til áframhaldandi meðferðar Skipulagsstofnunar samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1811132
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir Krók á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um lagfæringar og uppfærslur gagna sem fylgja tillögu sem samþykkt hefur verið sem nýtt deiliskipulag fyrir Krók á Álftanesi. Deiliskipulagið skal sent til áframhaldandi meðferðar Skipulagsstofnunar samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1811133
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir Helguvík á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um lagfæringar og uppfærslur gagna sem fylgja tillögu sem samþykkt hefur verið sem nýtt deiliskipulag fyrir Helguvík á Álftanesi. Deiliskipulagið skal sent til áframhaldandi meðferðar Skipulagsstofnunar samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1811135
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir Kumlamýri á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um lagfæringar og uppfærslur gagna sem fylgja tillögu sem samþykkt hefur verið sem nýtt deiliskipulag fyrir Kumlamýri á Álftanesi. Deiliskipulagið skal sent til áframhaldandi meðferðar Skipulagsstofnunar samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1811134
13
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir Skógtjörn á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að deiliskipulagi fyrir Skógtjörn á Álftanesi verði auglýst að nýju samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41.gr. sömu laga.
Málsnúmer 1702322
14
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Bessastaði.
Bæjarráð samþykkir samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Bessastaða. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr 41. gr. og bárust engar athugasemdir. Í umsögn Minjastofnunar er lagt til að forkönnun verði gerð á svæðinu áður en jarðvinna hefst. Skipulagsnefnd samþykkti að gera breytingar á greinargerð þannig að fram komi að forkönnun fornleifa fari fram áður en ráðist er í jarðvegsvinnu.
Málsnúmer 1804199
15
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að synja tillögu um óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna umsóknar lóðareiganda að Blikanesi 14 um byggingu utan byggingarreits. Tillagan var grenndarkynnt og bárust athugasemdir þar sem umsókninni var mótmælt. Þá liggur fyrir neikvæð afstaða deiliskipulagsráðgjafa.
Málsnúmer 1910311
16
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Kjóavelli.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi hesthúsabyggðar að Kjóavöllum en um er að ræða sameiginlegt skipulag með Kópavogi. Fallið er frá forkynningu samkvæmt heimild í 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1911165
17
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að nýju deiliskipulagi við Krýsuvíkurbeg í Krýsuvík.
Lögð fram.
Málsnúmer 1910423
18
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi skipulags- og matslýsing vegna breytinga á skipulagi skíðasvæðis Bláfjalla.
Lögð fram.
Málsnúmer 1911213
19
Bréf Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla um styrk, dags. 10.11.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1904302
20
Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis varðandi ákvörðun vatnsgjalds, dags. 13.11.19.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að láta vinna samantekt um atriði og gögn sem lögð eru til grundvallar ákvörðun vatnsgjalds og senda ráðuneytinu til upplýsingar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1911254
21
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um almannatryggingar almennar íbúðir (hækkun tekju- og eignamarka leigjenda, sérstakt byggðaframlag, veðsetningu), 320. mál., dags. 14.11.19.
Lagt fram.
Málsnúmer 1911232
22
Bréf Alþings varðandi frumvarp til laga um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, 319. mál., dags. 14.11.19.
Lagt fram.
Málsnúmer 1911195
23
Bréf Alþings varðandi frumvarp til laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, 317. mál., dags. 11,11,19.
Lagt fram.
Málsnúmer 1909205
24
Drög að nýrri jafnréttisstefnu Garðabæjar 2019-2022.
Bæjarráð samþykkir að vísa jafnréttisstefnu Garðabæjar 2019-2022 til afgreiðslu bæjarstjórnar.