Umsókn um styrk vegna viðburða á árinu 2020
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
22. fundur
Áframhaldandi umræða um erindi Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla um styrk á árinu 2020.
Áframhaldandi umræða um erindi Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla um styrk vegna starfsemi félagsins á árinu 2020.
Menningarfulltrúi/upplýsingastjóri greindi frá samtali við formann FÁUSB um fyrirhugað starf félagsins á árinu.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð 250 þús fyrir árlegan fræðslufund félagsins og til að fullgera vef. Jafnframt er óskað eftir því að félagið sendi til menningarfulltrúa starfsskýrslu félagsins fyrir síðasta ár.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
21. fundur
Erindi félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla um styrk vegna viðburða á árinu 2020 tekið fyrir.
Bréf Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla með umsókn um styrk vegna viðburða á árinu 2020, móttekið 13. nóvember 2019, lagt fram. Bæjarráð fjallaði um erindið á fundi sínum 19. nóvember 2019 og vísaði því til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020. Á fundi bæjarráðs Garðabæjar 28. apríl sl. var samþykkt að vísa erindinu til afgreiðslu menningar- og safnanefndar.
Menningar- og safnanefnd felur nýjum menningarfulltrúa að hafa samband við félagið til að fá nánari upplýsingar um fyrirhugaða dagskrá og starfsemi félagsins á þessu ári áður en styrkbeiðnin verður afgreidd.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
03
44. (1905). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.