22. fundur
22. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
02.06.2020
Kl. 16:00 -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Formaður bauð Ólöfu Breiðfjörð nýjan menningarfulltrúa Garðabæjar velkomna til starfa.
Dagskrá
Málsnúmer 1911213
01
Umsókn um styrk vegna viðburða á árinu 2020
Áframhaldandi umræða um erindi Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla um styrk á árinu 2020.
Áframhaldandi umræða um erindi Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla um styrk vegna starfsemi félagsins á árinu 2020.
Menningarfulltrúi/upplýsingastjóri greindi frá samtali við formann FÁUSB um fyrirhugað starf félagsins á árinu.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð 250 þús fyrir árlegan fræðslufund félagsins og til að fullgera vef. Jafnframt er óskað eftir því að félagið sendi til menningarfulltrúa starfsskýrslu félagsins fyrir síðasta ár.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2001326
02
Hvatningarsjóður ungra listamanna 2020
Áframhaldandi umræða og afgreiðsla.
Umræðu haldið áfram frá síðasta fundi um umsóknir í Hvatningarsjóð ungra listamanna.
Samþykkt var að veita eftirtöldum aðilum styrk úr Hvatningarsjóði ungra listamanna 2020:
Einstaklingar:
Daníela Ehmann, tónlistarverkefni, 50 000 kr
Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir, tónlistarverkefni, 50 000 kr
Magnús Stephensen, tónlistarverkefni, 75 000 kr
Hópar:
Helga Sigríður E. Kolbeins, Anna Katrín Hálfdanardóttir, tónlistarverkefni, 150 000 kr
Alexandra Rós Norðkvist, Salóme Sól Norðkvist, tónlistarverkefni, 50 000 kr
Bryndís Ásta Magnúsdóttir, Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir og Tinna Margrét Hrafnkelsdóttir, tónlistarverkefni, 150 000 kr
Askur Hrafn Hannesson, Hákon Hjartarson, kvikmyndalist, 100 000 kr
Samtals er úthlutun úr hvatningarsjóði ungra listamanna 625 000 kr.
Viðurkenningar fyrir úthlutun úr Hvatningarsjóði ungra listamanna verða afhentar á menningaruppskeruhátíð Garðabæjar í júní.
Hannes Ingi Geirsson vék af fundi undir þessum lið.
Málsnúmer 2001327
03
Bæjarlistamaður Garðabæjar 2020
Áframhaldandi umræða og ákvörðun.
Framhald umræðu frá síðasta fundi.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að leggja til við bæjarráð Garðabæjar að einn listamaður verði útnefndur bæjarlistamaður Garðabæjar 2020.
Nefndin leggur til að útnefningin á bæjarlistamanni Garðabæjar verði tilkynnt með formlegum hætti á menningaruppskeruhátíð Garðabæjar 16. júní nk. og fer þess jafnframt á leit við þá sem að málinu koma að nafni viðkomandi listamanns verði haldið leyndu þangað til.
Málsnúmer 2005169
04
Heiðursviðurkenning vegna menningarmála 2020
Áframhaldandi umræða og ákvörðun.
Framhald umræðu frá síðasta fundi.
Umræður voru um heiðursviðurkenningar fyrir framlag til menningar og lista og ákvörðun tekin þar um. Tilkynnt verður um viðurkenningu fyrir merkt framlag til menningar og lista á menningaruppskeruhátíðinni.
Málsnúmer 2001328
05
Menningaruppskeruhátíð 2020
Áframhaldandi umræða.
Áframhaldandi umræða frá síðasta fundi um dagskrá menningaruppskeruhátíðar sem verður haldin í Sveinatungu á Garðatorgi þriðjudaginn 16. júní nk. kl. 17:30-19.
Málsnúmer 2005455
06
Ársskýrsla Bókasafns Garðabæjar
Ársskýrsla Bókasafns Garðabæjar fyrir árið 2019 lögð fram.
Málsnúmer 2005421
07
Hönnunarsafn Íslands - Ársskýrsla 2019
Ársskýrsla Hönnunarsafn Íslands fyrir árið 2019 lögð fram.
Málsnúmer 1904167
08
Leiklistarstarfsemi á Garðatorgi
Áframhaldandi samningur um afnot af sal á Garðatorgi fyrir leiklistarstarfsemi Senuþjófsins.
Greint var frá starfsemi leiklistarhópsins Senuþjófsins á vegum Trausta Ólafssonar og fyrirhuguðum verkefnum hópsins næsta vetur. Upplýsingastjóra falið að ganga frá áframhaldandi samningi um afnot af sal á Garðatorgi fyrir starfsemi Senuþjófsins veturinn 2020-2021.
Málsnúmer 1711209
09
Hofsstaðir - minjagarður - hugmyndahönnun
Formaður greindi frá þeirri ákvörðun bæjarráðs að fresta uppbyggingu í minjagarðinum á Hofsstöðum sem var áætluð skv. fjárhagsáætlun vegna efnahagslegra aðgerða Garðabæjar í tengslum við Covid-19.
Málsnúmer 2005166
10
Menningarviðburðir- sumar 2020
Áframhaldandi umræður voru um menningarviðburði í sumar með tilliti til þeirra fjöldatakmarkana sem eru í gildi.
Eiríkur Björn Björgvinsson greindi frá nýjum sumarstörfum fyrir ungmenni sem voru auglýst nýverið.