Afgreiðsla menningar- og safnanefndar varðandi tillögu að vali á bæjarlistamanni Garðabæjar 2020.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
22. (1930). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu menningar- og safnanefndar um tilnefningu á bæjarlistamanni Garðabæjar árið 2020. Tilnefningin verður tilkynnt á menningaruppskeruhátíð þriðjudaginn 16. júní nk. kl. 17:30 í Sveinatungu.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
22. fundur
Áframhaldandi umræða og ákvörðun.
Framhald umræðu frá síðasta fundi.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að leggja til við bæjarráð Garðabæjar að einn listamaður verði útnefndur bæjarlistamaður Garðabæjar 2020.
Nefndin leggur til að útnefningin á bæjarlistamanni Garðabæjar verði tilkynnt með formlegum hætti á menningaruppskeruhátíð Garðabæjar 16. júní nk. og fer þess jafnframt á leit við þá sem að málinu koma að nafni viðkomandi listamanns verði haldið leyndu þangað til.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
21. fundur
Ábendingar um bæjarlistamann Garðabæjar lagðar fram og ræddar.
Auglýst var eftir ábendingum um tilnefningu til bæjarlistamanns Garðabæjar 2020 í apríl. Listi með framkomnum ábendingum var lagður fram og ræddur. Umræðu verður haldið áfram á næsta fundi.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
04
20. fundur
Farið yfir lista yfir fyrri bæjarlistamenn og þá sem hafa verið tilnefndir á síðustu árum. Frestur til að skila inn ábendingum um bæjarlistamann er til og með 3. maí nk.
Auglýst var eftir ábendingum um bæjarlistamann um mánaðamótin mars/apríl í Garðapóstinum og á vef Garðabæjar. Frestur til að skila inn ábendingum er til og með 3. maí nk. Farið var yfir lista yfir fyrri bæjarlistamenn Garðabæjar og eldri ábendingar.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
05
19. fundur
Farið yfir reglur um bæjarlistamann, auglýsingu o.fl.
Reglur um bæjarlistamann Garðabæjar lagðar fram. Samþykkt að auglýsa eftir ábendingum um bæjarlistamann Garðabæjar í mars og ábendingar verða teknar fyrir á fundi nefndarinnar í apríl. Tilkynnt verður um val á nýjum bæjarlistamanni Garðabæjar á menningaruppskeruhátíð Garðabæjar í lok maí.