Beint í efni

21. fundur

14.05.2020
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

21. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

fjarfundar samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. mars 2020

14.05.2020

Kl. 16:30 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Gestur fundarins var Ólöf Breiðfjörð nýr menningarfulltrúi Garðabæjar sem kemur til starfa á næstu vikum.

Dagskrá

Málsnúmer 1911213

01

Umsókn um styrk vegna viðburða á árinu 2020

Erindi félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla um styrk vegna viðburða á árinu 2020 tekið fyrir.

Bréf Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla með umsókn um styrk vegna viðburða á árinu 2020, móttekið 13. nóvember 2019, lagt fram. Bæjarráð fjallaði um erindið á fundi sínum 19. nóvember 2019 og vísaði því til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020. Á fundi bæjarráðs Garðabæjar 28. apríl sl. var samþykkt að vísa erindinu til afgreiðslu menningar- og safnanefndar.

Menningar- og safnanefnd felur nýjum menningarfulltrúa að hafa samband við félagið til að fá nánari upplýsingar um fyrirhugaða dagskrá og starfsemi félagsins á þessu ári áður en styrkbeiðnin verður afgreidd.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2001326

02

Hvatningarsjóður ungra listamanna 2020

Umsóknir lagðar fram og ræddar.

Auglýst var eftir umsóknum úr Hvatningarsjóði ungra listamanna í apríl. Listi með umsóknum var lagður fram og ræddur. Umfjöllun verður haldið áfram á næsta fundi nefndarinnar.

Málsnúmer 2001327

03

Bæjarlistamaður Garðabæjar 2020

Ábendingar um bæjarlistamann Garðabæjar lagðar fram og ræddar.

Auglýst var eftir ábendingum um tilnefningu til bæjarlistamanns Garðabæjar 2020 í apríl. Listi með framkomnum ábendingum var lagður fram og ræddur. Umræðu verður haldið áfram á næsta fundi.

Málsnúmer 2001328

04

Menningaruppskeruhátíð 2020

Umræðu haldið áfram frá síðasta fundi.

Umræðu frá síðasta fundi haldið áfram. Í skoðun er að vera með menningarhátíðina í júní fyrir 17. júní. Áfram verður unnið að undirbúningi hátíðarinnar.

Málsnúmer 2005166

05

Menningarviðburðir- sumar 2020

Farið yfir möguleika á menningarviðburðum í sumar, m.a. á Garðatorgi.

Upplýsingastjóri greindi frá því að stjórn myndlistarfélagsins Grósku hafi ákveðið að fresta Jónsmessugleðinni til ársins 2021. Einnig var greint frá umræðum sem hafa átt sér stað varðandi 17. júní hátíðarhöld og með hvaða hætti hægt verði að halda viðburði í sumar með tilliti til þeirra fjöldatakmarkana sem verða í gildi.

Ólöf Breiðfjörð, nýr menningarfulltrúi Garðabæjar, greindi frá ýmsum hugmyndum um viðburði og fleira sem hefur komið til tals í tengslum við eflingu miðbæjarins í sumar á Garðatorgi.

Umræður voru um viðburði sumarsins.

Ný sumarstörf tengd menningu og listum fyrir ungmenni á aldrinum 18-25 ára voru auglýst á vef Garðabæjar í dag.