Hvatningarsjóður ungra listamanna 2020
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
22. fundur
Áframhaldandi umræða og afgreiðsla.
Umræðu haldið áfram frá síðasta fundi um umsóknir í Hvatningarsjóð ungra listamanna.
Samþykkt var að veita eftirtöldum aðilum styrk úr Hvatningarsjóði ungra listamanna 2020:
Einstaklingar:
Daníela Ehmann, tónlistarverkefni, 50 000 kr
Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir, tónlistarverkefni, 50 000 kr
Magnús Stephensen, tónlistarverkefni, 75 000 kr
Hópar:
Helga Sigríður E. Kolbeins, Anna Katrín Hálfdanardóttir, tónlistarverkefni, 150 000 kr
Alexandra Rós Norðkvist, Salóme Sól Norðkvist, tónlistarverkefni, 50 000 kr
Bryndís Ásta Magnúsdóttir, Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir og Tinna Margrét Hrafnkelsdóttir, tónlistarverkefni, 150 000 kr
Askur Hrafn Hannesson, Hákon Hjartarson, kvikmyndalist, 100 000 kr
Samtals er úthlutun úr hvatningarsjóði ungra listamanna 625 000 kr.
Viðurkenningar fyrir úthlutun úr Hvatningarsjóði ungra listamanna verða afhentar á menningaruppskeruhátíð Garðabæjar í júní.
Hannes Ingi Geirsson vék af fundi undir þessum lið.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
21. fundur
Umsóknir lagðar fram og ræddar.
Auglýst var eftir umsóknum úr Hvatningarsjóði ungra listamanna í apríl. Listi með umsóknum var lagður fram og ræddur. Umfjöllun verður haldið áfram á næsta fundi nefndarinnar.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
20. fundur
Auglýst hefur verið úr hvatningarsjóði og frestur til að skila inn hefur verið framlengdur til og með 3. maí nk.
Auglýst var eftir umsóknum í Hvatningarsjóð ungra listamanna um mánaðamótin mars/apríl í Garðapóstinum og á vef Garðabæjar. Frestur til að skila inn ábendingum er til og með 3. maí nk.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
04
19. fundur
Samþykkt var að auglýsa eftir umsóknum í Hvatningarsjóð ungra listamanna í mars og miðað við að umsóknir verði til umfjöllunar á fundi nefndarinnar í apríl. Tilkynnt verður um úthlutun úr Hvatningarsjóði ungra listamanna á menningaruppskeruhátíð Garðabæjar í lok maí.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
05
18. fundur
Farið yfir reglur um Hvatningarsjóð ungra listamanna.
Farið var yfir reglur um Hvatningarsjóð ungra listamanna. Stefnt er að því að auglýsa eftir umsóknum í mars og tilkynnt verður um úthlutun úr hvatningarsjóðnum á menningaruppskeruhátíð í maí.