20. fundur
20. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
fjarfundar samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. mars 2020
22.04.2020
Kl. 15:00 -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Hrannar Bragi Eyjólfsson var í tæknilegum vandræðum á meðan á fjarfundinum stóð en telst hér með sem fundarmaður.
Gestir fundarins undir 1. lið voru Margrét Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Garðabæjar, og Sigríður Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands.
Dagskrá
Málsnúmer 2001444
01
Kórónaveira - COVID-19 - starfsemi safna
Margrét Sigurðardóttir, forstöðumaður Bókasafns Garðabæjar, og Sigríður Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands, eru gestir fundarins undir þessum lið og fara yfir starfsemi safnanna á undanförnum vikum.
Farið verður yfir stöðu mála varðandi Covid-19 og menningarstarfsemi á höfuðborgarsvæðinu.
Margrét Sigurgeirsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Garðabæjar, og Sigríður Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands, greindu frá með hvaða hætti söfnin hafa starfað eftir að samkomubann var sett á. Fyrirhugað er að söfn og menningarstofnanir geti opnað aftur að nýju 4. maí en virða þarf fjöldatakmarkanir, uppfylla kröfur um þrif og sótthreinsun almenningsrýma og 2 metra fjarlægð á milli manna.
Hulda Hauksdóttir upplýsingastjóri greindi frá starfi neyðarstjórnar Garðabæjar og samvinnu við almannavarnir höfuðborgarsvæðisins um það sem varðar starfsemi og þjónustu sveitarfélaga á neyðarstigi almannavarna í tengslum við Covid-19 faraldurinn.
Málsnúmer 1909070
02
Listadagar barna og ungmenna 2020
Listadagar barna og ungmenna þetta ár falla niður.
Vegna neyðarstigs almannavarna í tengslum við Covid-19 faraldurinn verða engir Listadagar barna og ungmenna í lok apríl eins og til stóð. Kanna þarf í samráði við skólastjórnendur hvort fresta skuli listadögum um ár eða hafa þá vorið 2022.
Málsnúmer 1911310
03
Þriðjudagsklassík 2020
Þriðjudagsklassík vorið 2020 frestað - rætt um framhald.
Vegna neyðarstigs almannavarna í tengslum við Covid-19 faraldurinn var tónleikaröðinni Þriðjudagsklassík frestað sem til stóð að halda á vorönn 2020. Í skoðun er hvort hægt er að halda Þriðjudagsklassík í haust. Upplýsingastjóra falið að vera í sambandi við Ingibjörgu Guðjónsdóttur, listrænan stjórnanda tónleikaraðarinnar, um framhaldið.
Málsnúmer 2001324
04
Jazzhátíð Garðabæjar 2020
Jazzhátíð Garðabæjar 2020 fellur niður - rætt um framhald.
Vegna neyðarstigs almannavarna í tengslum við Covid-19 faraldurinn var Jazzhátíð Garðabæjar frestað sem til stóð að halda á vorönn 2020. Skoðað verður hvort hægt sé að vera með einhverja jazztengda viðburði á haustönn í stað hátíðarinnar en að öðru leyti er miðað við að hátíðin verði haldin næsta vor 2021 í kringum Sumardaginn fyrsta eins og fyrri ár.
Málsnúmer 2001328
05
Menningaruppskeruhátíð 2020
Farið yfir stöðu mála og með hvaða hætti hægt verður að halda menningaruppskeruhátíð.
Umræður voru um með hvaða hætti hægt er að halda menningaruppskeruhátíð Garðabæjar með breyttu sniði vegna fjöldatakmarkana og sóttvarna. Fyrirhuguð menningarhátíð átti að vera miðvikudaginn 27. maí en í skoðun er að vera með hátíðina í júní í staðinn. Upplýsingastjóra falið að vinna áfram að undirbúningi uppskeruhátíðarinnar í samræmi við umræður á fundinum.
Málsnúmer 2001327
06
Bæjarlistamaður Garðabæjar 2020
Farið yfir lista yfir fyrri bæjarlistamenn og þá sem hafa verið tilnefndir á síðustu árum. Frestur til að skila inn ábendingum um bæjarlistamann er til og með 3. maí nk.
Auglýst var eftir ábendingum um bæjarlistamann um mánaðamótin mars/apríl í Garðapóstinum og á vef Garðabæjar. Frestur til að skila inn ábendingum er til og með 3. maí nk. Farið var yfir lista yfir fyrri bæjarlistamenn Garðabæjar og eldri ábendingar.
Málsnúmer 2001326
07
Hvatningarsjóður ungra listamanna 2020
Auglýst hefur verið úr hvatningarsjóði og frestur til að skila inn hefur verið framlengdur til og með 3. maí nk.
Auglýst var eftir umsóknum í Hvatningarsjóð ungra listamanna um mánaðamótin mars/apríl í Garðapóstinum og á vef Garðabæjar. Frestur til að skila inn ábendingum er til og með 3. maí nk.
Málsnúmer 2003036
08
Styrkbeiðni vegna útgáfu bókar um Eyþór Þorláksson
Bréf Þórarins Sigurbergssonar og Péturs Jónassonar um styrk vegna útgáfu bókar um gítarleikarann Eyþór Þorláksson, dags. 3. mars 2020 tekið fyrir.
Bréf Þórarins Sigurbergssonar og Péturs Jónassonar um styrk vegna útgáfu bókar um gítarleikarann Eyþór Þorláksson, dags. 3. mars 2020 tekið fyrir.
Menningar- og safnanefnd telur eigi unnt að verða við styrkbeiðninni en tekur jákvætt í að skoða kaup á nokkrum eintökum af bókinni til að eiga í menningarstofnun bæjarins þegar hún kemur út.
Málsnúmer 1906094
09
Innleiðing Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, Heilsueflandi Garðabæ, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
Tillaga starfshóps um val á yfirmarkmiðum heimsmarkmiða sameinuðu þjóðanna fyrir Garðabæ tekið fyrir.
Tillaga starfshóps um val á yfirmarkmiðum heimsmarkmiða sameinuðu þjóðanna fyrir Garðabæ lögð fram.
Tillagan var lögð fram í bæjarráði Garðabæjar til kynningar í byrjun mars. Bæjarráð samþykkti að unnið yrði áfram með þau verkefni sem starfshópurinn valdi og vísaði tillögu starfshópsins til umfjöllunar í fastanefndum bæjarstjórnar.
Eiríkur Björn Björgvinsson, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs, greindi stuttlega frá vinnu starfshópsins.
Málsnúmer 1909069
10
Verkefni menningar- og safnanefndar 2019-2020
Önnur verkefni framundan rædd.
Umræður voru um verkefni framundan í sumar og næsta vetur þegar samkomubanni verður aflétt í áföngum.
Upplýsingastjóri greindi frá samráði menningarfulltrúa á höfuðborgarsvæðinu við almannavarnir á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við viðburði í sumar, eins og 17. júní hátíðarhöld og fleiri viðburði. Einnig greindi upplýsingastjóri frá samtali við Gunnar Júlíusson, nýjan formann myndlistarfélagsins Grósku, í tengslum við árlega Jónsmessugleði Grósku og hvort og með hvaða hætti Jónsmessugleðin færi fram í ár.