Beint í efni

Jazzhátíð Garðabæjar 2020

Málsnúmer 2001324

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

23. fundur

Staða viðburðarins í ár rædd í ljósi Covid-19 samkomutakmarkana.


Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

20. fundur

Jazzhátíð Garðabæjar 2020 fellur niður - rætt um framhald.

Vegna neyðarstigs almannavarna í tengslum við Covid-19 faraldurinn var Jazzhátíð Garðabæjar frestað sem til stóð að halda á vorönn 2020. Skoðað verður hvort hægt sé að vera með einhverja jazztengda viðburði á haustönn í stað hátíðarinnar en að öðru leyti er miðað við að hátíðin verði haldin næsta vor 2021 í kringum Sumardaginn fyrsta eins og fyrri ár.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

19. fundur

Farið yfir fyrstu drög að dagskrá.

Jazzhátíð Garðabæjar verður haldin dagana 23.-26. apríl nk. Dagskrá er í vinnslu en fyrirhugað er að vera áfram með unga tónlistarmenn úr Tónlistarskóla Garðabæjar sem hita upp fyrir kvöldtónleika sem og að hafa vortónleika Big band Tónlistarskóla Garðabæjar sem hluta af hátíðinni og í tengslum við Listadaga barna og ungmenna í Garðabæ. Endanleg dagskrá verður send til nefndarmanna þegar hún liggur fyrir.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

04

18. fundur

Jazzhátíð Garðabæjar verður haldin í fimmtánda sinn 23.-25. apríl nk. með upphaf að kvöldi til sumardaginn fyrsta. Sigurður Flosason er listrænn stjórnandi hátíðarinnar. Drög að dagskrá hátíðarinnar verða kynnt á næsta fundi nefndarinnar í febrúar.