23. fundur
23. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
31.08.2020
Kl. 17:15 -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Ólöf Breiðfjörð
Dagskrá
Málsnúmer 2008541
01
Starfsáætlun menningar- og safnanefndar
Starfsáætlun menningar- og safnanefndar veturinn 2020-2021 lögð fram og rædd. Farið var lítillega yfir stöðu fjármála málaflokksins 0500-Menningarmál og einstakra deilda innan málaflokksins.
Á næsta fundi verður fjallað um fjárhagsáætlun næsta árs.
Málsnúmer 2008518
02
Menningardagskrá fyrir skólahópa á haustönn 2020
Fyrir fundinum lá tillaga menningarfulltrúa að menningardagskrá fyrir skólahópa í Garðabæ haustið 2020. Í tillögunni eru eftirtaldir viðburðir m.a. tilgreindir:
Dúó Stemma í sal Tónlistarskóla Garðabæjar fyrir nemendur elstu deilda leikskóla bæjarins.
Hrekkjavökujazz í sal Tónlistarskóla Garðabæjar fyrir nemendur í 1.-4. bekk grunnskóla.
100% ull í Hönnunarsafni Íslands fyrir nemendur í 5.-7. bekk grunnskóla.
Stefnumót við rithöfund í Sveinatungu í Forvarnaviku Garðabæjar, fyrir nemendur í 8.-9. bekk grunnskóla. Í kjölfarið yrði efnt til smásagnasamkeppni meðal nemenda í kjölfarið þar sem nemendur geta fengið leiðsögn kennara við ritun smásagna og kynna úrslit vorið 2021.
Rafóperan Music and the brain í Tjarnarbíói fyrir nemendur í 10. Bekk grunnskóla.
Að mati menningarfulltrúa er, á þeim tímum þegar menningarviðburðir fyrir fjölskyldur verða ekki með sama sniði og venjulega sökum Covid-19, enn brýnna en áður að bjóða skólahópum upp á innihaldsríka dagskrá.
Menningar- og safnanefnd samþykkir tillögu menningarfulltrúa að menningardagskrá fyrir skólahópa í Garðabæ haustið 2020. Menningarfulltrúi mun við framkvæmd verkefnisins hafa samráð við skólayfirvöld í bænum.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2008591
03
Fundur með mennta-og menningarmálaráðherra um Hönnunarsafnið
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs skýrði frá fundi sem hann átti þann 26. ágúst sl. með mennta- og menningarmálaráðherra og fulltrúum mennta- og menningarmálaráðuneytis um málefni Hönnunarsafns Íslands. Fyrir hönd bæjarins sátu einnig stjórnarformaður og forstöðumaður Hönnunarsafnsins, formaður menningar- og safnanefndar og menningarfulltrúi fundinn.
Málsnúmer 2006079
04
Dagskrá 17. júní 2020
Farið var yfir framkvæmd þjóðhátíðardagsins 17. júní sl.
Í ljósi samkomutakmarkana vegna Codid-19 í sumar voru Garðbæingar hvattir til að halda þjóðhátíðardaginn í ár hátíðlegan í samveru fjölskyldu og vina í sínu nærumhverfi, njóta útivistar, fara í sund og heimsækja söfn.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2007021
05
Sumardagskrá 2020
Samkvæmt kynntri dagskrá um Sumarfjör á Garðatorgi 2020 voru viðburðir áformaðir á torginu 9. júlí, 23. júlí, 6. ágúst og 8. ágúst sl. Niðurstaðan var sú að fjör var á torginu 9. og 23. júlí en aðrir viðburðir féllu niður vegna hertra samkomutakmarkana í sumar.
Stefnt er að því að Sumarfjör á Garðatorgi verði framvegis á meðal fastra menningarviðburða sem boðið er upp á í Garðabæ
Málsnúmer 2001324
06
Jazzhátíð Garðabæjar 2020
Staða viðburðarins í ár rædd í ljósi Covid-19 samkomutakmarkana.
Málsnúmer 1911310
07
Þriðjudagsklassík 2020
Staða viðburðarins í ár rædd í ljósi Covid-19 samkomutakmarkana.
Málsnúmer 2008540
08
Vinnuaðstaða í Króki haust 2020
Samþykkt að fela menningarfulltrúa að auglýsa eftir umsóknum listamanna og fræðimanna um vinnuaðstöðu í Króki um haust 2020.
Málsnúmer 2008671
09
Önnur mál menningarmála
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs skýrði frá verkefni á sviði menningarmála í tengslum við sumarstörf ungmenna á vegum bæjarins í ár. Um var að ræða gerð viðskiptaáætlunar fyrir menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ sem starfshópur skipaður fjórum ungmennum vann undir stjórn menningarfulltrúa í sumar. Unnið er að lokafrágangi greinargerðar verkefnisins.Hönnunarhópur í sumarstarfi kom með tillögur að stöðum þar sem hægt væri að skreyta með veggjalist en hópurinn málaði m.a. regnbogafána á Garðatorgi og bláar doppur sem vísa farþegum strætó að Hönnunarsafni.
Skapandi sumarstörf luku fjölbreyttum verkefni með sóma.
Formaður ræddi endurskoðun menningarstefnu Garðabæjar og samstarf við Hönnunarsafn Íslands og Tónlistarskóla Garðabæjar í kjölfar sameiginlegra funda með stjórnum þessara stofnana bæjarins á síðasta ári en öll þessi mál eru meðal nýrra mála sem tilgreind eru í starfsáætlun menningar- og safnanefndar 2020-2021
300 ára ártíð Jóns biskups Vídalíns var minnst með guðsþjónustu í Garðakirkju að viðstöddum biskupi sl. sunnudag.Jón Vídalín fæddist í Görðum og gegndi þar prestþjónustu þartil hann varð biskup í Skálholti.