Beint í efni

Menningardagskrá fyrir skólahópa-staða mála

Málsnúmer 2008518

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

25. fundur

Menningarfulltrúi fór yfir stöðu mála í ljósi hertra Covid-19 samkomutakmarkana. Móttöku skólahópa hefur verið frestað. Dagskrá færist flest til eða er aðlöguð í samráði við viðkomandi listamenn og skólasamfélagið í bænum.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

24. fundur

2008518 - Skóladagskrá,yfirferð.
Nemendur í 5. - 7. bekk hafa nú sótt Hönnunarsafnið í leiðsögn og smiðju og er mikil ánægja meðal nemenda og kennara. Hlé verður gert á fyrirhuguðum heimsóknum skólahópa í október vegna samkomutakmarkana af völdum Covid-19 en sýningin 100% ull sem fræðslan hverfist um stendur til 15. nóvember nk.

Tveir tónleikar með Dúó Stemmu fóru fram þann 2. október í sal Tónlistarskólans. Leikskólanemendur úr öllum leikskólum Garðabæjar hafa skráð sig til leiks en nú verður tónleikum frestað þartil í nóv/desember og hefur komið til tals að tónlistarmenn flytji jóladagskrá í stað Krummasögu.

Gunnar Helgason rithöfundur sem hitta átti nemendur í 8. og 9. bekk í október frestar dagskránni þartil í nóvember nk.

Af Hrekkjavökujazz í nóvember fyrir 1.-4. bekkinga verður vonandi sem og rafóperu þann 2. nóvember fyrir 10. bekkinga.

Menningarfulltrúi kom að undirbúningi á efni fyrir leikskólanema sem sýnt verður í öllum leikskólum í forvarnarvikunni en um rafrænt efni er að ræða.


Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

23. fundur

Fyrir fundinum lá tillaga menningarfulltrúa að menningardagskrá fyrir skólahópa í Garðabæ haustið 2020. Í tillögunni eru eftirtaldir viðburðir m.a. tilgreindir:
Dúó Stemma í sal Tónlistarskóla Garðabæjar fyrir nemendur elstu deilda leikskóla bæjarins.

Hrekkjavökujazz í sal Tónlistarskóla Garðabæjar fyrir nemendur í 1.-4. bekk grunnskóla.

100% ull í Hönnunarsafni Íslands fyrir nemendur í 5.-7. bekk grunnskóla.

Stefnumót við rithöfund í Sveinatungu í Forvarnaviku Garðabæjar, fyrir nemendur í 8.-9. bekk grunnskóla. Í kjölfarið yrði efnt til smásagnasamkeppni meðal nemenda í kjölfarið þar sem nemendur geta fengið leiðsögn kennara við ritun smásagna og kynna úrslit vorið 2021.

Rafóperan Music and the brain í Tjarnarbíói fyrir nemendur í 10. Bekk grunnskóla.
Að mati menningarfulltrúa er, á þeim tímum þegar menningarviðburðir fyrir fjölskyldur verða ekki með sama sniði og venjulega sökum Covid-19, enn brýnna en áður að bjóða skólahópum upp á innihaldsríka dagskrá.

Menningar- og safnanefnd samþykkir tillögu menningarfulltrúa að menningardagskrá fyrir skólahópa í Garðabæ haustið 2020. Menningarfulltrúi mun við framkvæmd verkefnisins hafa samráð við skólayfirvöld í bænum.


Fylgiskjöl