25. fundur
25. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
02.11.2020
Kl. 16:15 -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
Ritari
- Ólöf Breiðfjörð
Dagskrá
Málsnúmer 2010043
01
Fjárhagsáætlun 21-staða mála
Menningarfulltrúi greindi frá stöðu mála varðandi vinnslu fjárhagsáætlunar 2021 en í ljósi Covid-19 hafa sveitarfélög fengið frest til að leggja fram fjárhagsáætlun fyrir árið 2021.
Málsnúmer 2010503
02
Rafrænir menningarviðburðir - Menning í Garðabæ
Menningarfulltrúi kynnti rafræna viðburði sem fjalla um tónlist, hönnun, bæjarlistamenn Garðabæjar, myndlist, bókmenntir, útilistaverk, arkitektúr o.fl. Nokkrir viðburðir hafa verið teknir upp og eru aðgengilegir á heimasíðu bæjarins og á http://vimeo.com/menningigardabae. Aðrir eru í vinnslu og enn aðrir á undirbúningsstigi. Menningarfulltrúi birtir viðburðina á vimeo rásinni í kjölfar upptöku og tæknivinnslu þeirra. Efnið hefur fengið fastan samastað á heimasíðu Garðabæjar auk þess sem menningarfulltrúi deilir þeim á facebook síðu bæjarins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2008518
03
Menningardagskrá fyrir skólahópa-staða mála
Menningarfulltrúi fór yfir stöðu mála í ljósi hertra Covid-19 samkomutakmarkana. Móttöku skólahópa hefur verið frestað. Dagskrá færist flest til eða er aðlöguð í samráði við viðkomandi listamenn og skólasamfélagið í bænum.
Málsnúmer 2010505
04
Vetrarhátíð 2021 - Safnanótt og sundlauganótt
Menningarfulltrúi sagði frá fundum menningarstjórnenda alls höfuðborgarsvæðisins þar sem hefur verið lögð áhersla á lýsingu á byggingar og að veita myndlistarmönnum færi á að skapa og sýna videóverk á byggingum í sveitarfélögum. Bjarndís stakk uppá að skoðað verði að varpa listaverki á gafl á fjölbýlishúsi eða t.d. Ikea. Ekki verður að svo komnu máli skipulögð dagskrá í söfnum einsog venjan er.
Málsnúmer 2011026
05
Umsókn um styrk v. tónlistarverkefnis
Menningarfulltrúi kynnti umsókn sem borist hefur frá ungum Garðbæingi þar sem sótt er um fjárhagslegan stuðning til að fjármagna gerð tónlistarmyndbands og útgáfu tónlistar sem tileinkuð verður börnum. Umsókninni fylgdi tengill á vimeo myndband.
Nefndin telur málið vera í anda rafræns viðburðahalds á vegum menningarfulltrúa á þeim tímum sem hendur listamanna varðandi tónlistarsköpun eru bundnar. Samþykkt að veita umsækjanda kr. 150.000 fjárstyrk til verkefnisins gegn því að menningarfulltrúa verði heimilt að birta myndbandið á vimeorásinni Menning í Garðabæ.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2011031
06
Menningar- og íþróttahátíð í Garðabæ vorið 2022
Menningarfulltrúi hefur rætt málið sem er á frumstigi við íþrótta- og tómstundafulltrúa bæjarins og þau hyggjast leggjast yfir málið á næstunni.
Menningarfulltrúa falið að vinna málið áfram.
Málsnúmer 2008671
07
Önnur mál menningarmála
Rætt um aðventudagskrá á Covid-tímum en ekki er útlit fyrir að unnt verði að halda fjölmenna dagskrá utandyra eða innandyra á aðventu.
Stefnt er að því að bjóða leikskóla- og grunnskólabörnum á jólatrésdagskrá á Garðatorgi ef slíkt samkomuhald verður leyft þegar kemur fram í desember.