Rafrænir menningarviðburðir - Menning í Garðabæ
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
27. fundur
Menningarfulltrúi sagði frá hugmyndum um áframhaldandi gerð rafræns efnis með yfirskriftinni Menning í Garðabæ en á döfinni er þáttur um Hallfríði Ólafsdóttur flautuleikara og höfund Maxímús sem lést í sumar. Þá verður arkitektúr í Garðabæ gerð skil í samvinnu við Pétur Ármannsson. Nefndarmeðlimir bentu á góðar hugmyndir, t.d. þátt um Krók á Garðaholti.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
26. fundur
Menningarfulltrúi greindi frá lokaþætti Menningar í Garðabæ á þessu ári og hugsanlegu framhaldi af upptökum á rafrænu efni á næsta ári.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
25. fundur
Menningarfulltrúi kynnti rafræna viðburði sem fjalla um tónlist, hönnun, bæjarlistamenn Garðabæjar, myndlist, bókmenntir, útilistaverk, arkitektúr o.fl. Nokkrir viðburðir hafa verið teknir upp og eru aðgengilegir á heimasíðu bæjarins og á http://vimeo.com/menningigardabae. Aðrir eru í vinnslu og enn aðrir á undirbúningsstigi. Menningarfulltrúi birtir viðburðina á vimeo rásinni í kjölfar upptöku og tæknivinnslu þeirra. Efnið hefur fengið fastan samastað á heimasíðu Garðabæjar auk þess sem menningarfulltrúi deilir þeim á facebook síðu bæjarins.