Beint í efni

26. fundur

07.12.2020
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

26. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

07.12.2020

Kl. 16:00 - 17:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Ólöf Breiðfjörð

Dagskrá

Málsnúmer 2010050

01

Fjárhagsáætlun 2021.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri Garðabæjar, greindi frá helstu niðurstöðum fjárhagsáætlunar 2021 sem samþykkt var á síðasta fundi bæjarstjórnar 3. desember 2020.Fjármálastjóri útskýrði sérstaklega þann þátt áætlunarinnar sem snýr að menningarmálum.

Málsnúmer 2012071

02

Innleiðing sameiginlegs útlánakerfis bókasafna

Margrét Sigurgeirsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Garðabæjar, kynnti hugmyndir um sameiginlegt bókasafnsskírteini fyrir allt höfuðborgarsvæðið. Kópavogur, Hafnarfjörður og Garðabæ hafa verið með sameiginlegt kerfi en nú er lagt upp með að gestir á öllu höfuðborgarsvæðinu geti notað sama skírteinið. Menningar- og safnanefnd leggur til við bæjarráð að Garðabær verði þátttakandi í að taka upp nýtt sameiginlegt bókasafnsskírteini fyrir allt höfuðborgarsvæðið enda hafi það ekki aukinn kostnað í för með sér fyrir sveitarfélagið.

Margrét greindi auk þess frá framkvæmdum á bókasafninu sem hófust í desember en þessi breyting mun skila bókasafninu nokkrum tugum fermetra í aukið húsnæði sem mun nýtast í minni viðburði og bæta aðstöðu gesta.

Málsnúmer 2012079

03

Endurskoðun menningarstefnu

Rætt um endurskoðun menningarstefnu Garðabæjar sem er frá árinu 2005 og innleiðingu rafrænnar menningar.

Menningar- og safnanefnd leggur til við bæjarráð að hafin verði vinna við endurskoðun núgildandi menningarstefnu bæjarins, m.a. með heimsmarkið Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi og með tilliti til stafrænnar þróunar sem orðið hefur frá því stefnan var sett.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2012073

04

Kvennakór Garðabæjar, endurnýjun samnings

Rætt um endurnýjun samstarfssamnings Garðabæjar og Kvennakórs Garðabæjar. Menningarfulltrúi, Ólöf Breiðfjörð, skýrði frá því að í gangi séu viðræður við Kennakórinn um nýjan samning sem borinn verður undir bæjarráð til afgreiðslu þegar hann verður tilbúinn.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2012072

05

Gróska, endurnýjun samnings

Formaður og menningarfulltrúi munu í næstu viku funda með forsvarsfólki Grósku um endurnýjun samstarfssamnings bæjarins og félagsins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2010503

06

Rafrænir menningarviðburðir - Menning í Garðabæ

Menningarfulltrúi greindi frá lokaþætti Menningar í Garðabæ á þessu ári og hugsanlegu framhaldi af upptökum á rafrænu efni á næsta ári.

Málsnúmer 2011101

07

Styrkbeiðni vegna tónleika í Garðakirkju í desember 2020

Fyrir fundinum ná umsókn, dags. 2.11.2020 frá tónlistarhópnum Camerarctica, um styrk vegna tónleika eða streymis frá Garðakirkju á Mozart við kertaljós.

Menningar- og safnanefnd samþykkir umsóknina og tekur jákvætt í þá tillögu menningarfulltrúa að upptaka af tónleikunum verður notuð á næsta ári sem hluti af þætti um Hallfríði Ólafsdóttur, stofnanda Camerarctica og fyrrum bæjarlistamann Garðabæjar, sem liður í rafrænni Menningu í Garðabæ.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2010505

08

Vetrarhátíð 2021

Áframhaldandi umræður frá síðasta fundi. M.a. rætt um samstarf við forsetaskrifstofuna um Bessastaði á Safnanótt og vörpun á listaverki á Garðatorgi.

Málsnúmer 2008671

09

Önnur mál menningarmála

a)Héraðsskjalavörður Kópavogs hafði samband við menningarfulltrúa vegna málefna skjalavörslu Garðabæjar. Skjalavarsla rædd almennt.

b)Rætt um að menningardagskrá vegna vígslu fjölnota íþróttahús verði á dagskrá næsta fundar.