Forsendur fjárhagsáætlunar 2022
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
35. fundur
Formaður kynnti tímasetningu einstaka verkþátta við gerð fjárhagsáætlunar Garðabæjar2022 og fór yfir skematískt flæðirit sem notast hefur verið við undanfarin ár.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
26. fundur
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri Garðabæjar, greindi frá helstu niðurstöðum fjárhagsáætlunar 2021 sem samþykkt var á síðasta fundi bæjarstjórnar 3. desember 2020.Fjármálastjóri útskýrði sérstaklega þann þátt áætlunarinnar sem snýr að menningarmálum.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
03
24. fundur
Fjármálastjóri Garðabæjar fer yfir vinnuferla og stöðu fjárhagsáætlunagerðar 2021 vegna málaflokks 06
Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri fór yfir forsendur fjárhagsáætlunar 2021. Aðstæður krefjast varfærni enda óvissa mikil um útsvarstekjur og kostnað. Stærsta framkvæmdin á árinu 2021 er áframhaldandi uppbygging á fjölnota íþróttahúsinu við Vetrarmýri. Listi yfir óskir frá ýmsum félögum og ábendingar frá íbúum koma til skoðunar og afgreiðslu milli umræðna.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
04
26. fundur
Umhverfisnefnd leggur fram tillögur til fjárhagsáætlunar 2021.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
05
23. fundur
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, kynnti vinnuferla við gerð fjárhagsáætlunar, stöðu vinnunnar og næstu skref.