35. fundur
35. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
27.09.2021
Kl. 15:00 - 16:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
Ritari
- Ólöf Breiðfjörð
Dagskrá
Málsnúmer 1711209
01
Minjagarðurinn að Hofsstöðum
Kynning frá Gagarín og Tvíhorf arkitektum
Hringur Hafsteinsson frá hugbúnaðarfyrirtækinu Gagarín og Katla Maríudóttir frá Tvíhorf arkitektum kynntu stöðu verkefnisins „Aftur til Hofsstaða“, verkþættina Garðabæjarlandið, Fortíðargluggi og Ratleikur. Farið var yfir upprunalegar hugmyndir og hvernig verkefnið stendur nú. Fyrirhugað er að hugbúnaðarvinnu og öðru sem snýr að Gagarín verði lokið um næstu áramót.
Samþykkt að menningarfulltrúi boði til fundar með Gagarín og bæjarverkfræðingi svo að áætla megi verktíma og kostnað við framangreinda þætti verkefnisins „Aftur til Hofsstaða“ fyrir gerð fjárhagsáætlunar Garðabæjar 2022.
Málsnúmer 2109329
02
Styrkumsókn-Camerartica
Fyrir fundinum lá erindi, dags. 13.09.2021, frá kammerhópnum Camerarctica þar sem óskað er eftir fjárstyrk vegna tónleikanna „Mozart við kertaljós“ sem verða haldnir í 29. sinn í Garðakirkju 21. desember 2021.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að veita Camerarctica 300.000 kr. styrk til tónleikahaldsins í Garðakirkju. Lögð er áhersla á að tónleikarnir verði þegar nær dregur kynntir með áberandi hætti fyrir íbúum Garðabæjar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2010050
03
Forsendur fjárhagsáætlunar 2022
Formaður kynnti tímasetningu einstaka verkþátta við gerð fjárhagsáætlunar Garðabæjar2022 og fór yfir skematískt flæðirit sem notast hefur verið við undanfarin ár.
Málsnúmer 2109503
04
Þjóðfræðiráðstefna í júní 2022-opnun í Álftaneslaug
Menningarfulltrúi sagði frá beiðni skipuleggjenda norrænnar þjóðfræðiráðstefnu, „Norrænt þjóðfræðingaþing“, sem hefst í júní 2022 um að opnunarathöfn ráðstefnunnar fari fram í Álftaneslaug að kvöldi 13. júní 2022.
Menningarfulltrúi og íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúi Garðabæjar hafa fundað með forsvarsmönnum ráðstefnunnar og eru frekari fundahöld ráðgerð þegar fjöldi ráðstefnugesta liggur fyrir. Reiknað er með að mikill fjöldi þjóðfræðinga frá öllum Norðurlöndunum sæki ráðstefnuna næsta sumar.
Menningar- og safnanefnd fagnar því að leitað sé eftir samstarfi við Garðabæ um opnun ráðstefnunnar í Álftaneslaug enda er þjóðfræðideild Háskóla Íslands í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands um sýningu á safninu, samhliða ráðstefnunni, sem fjallar um sundlaugamenningu á Íslandi.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2008671
05
Önnur menningarmál
Tónlistarveisla í skammdeginu rædd.
Samþykkt að fela menningarfulltrúa að hefja undirbúning tónlistarviðburðarins „Tónlistarveisla í skammdeginu 2021“. Viðburðurinn hefur verið árlegur á Garðatorgi mörg undanfarin ár en féll niður í fyrra vegna samkomutakmarkana Covid-19 faraldursins.