Minjagarðurinn að Hofsstöðum
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
35. fundur
Kynning frá Gagarín og Tvíhorf arkitektum
Hringur Hafsteinsson frá hugbúnaðarfyrirtækinu Gagarín og Katla Maríudóttir frá Tvíhorf arkitektum kynntu stöðu verkefnisins „Aftur til Hofsstaða“, verkþættina Garðabæjarlandið, Fortíðargluggi og Ratleikur. Farið var yfir upprunalegar hugmyndir og hvernig verkefnið stendur nú. Fyrirhugað er að hugbúnaðarvinnu og öðru sem snýr að Gagarín verði lokið um næstu áramót.
Samþykkt að menningarfulltrúi boði til fundar með Gagarín og bæjarverkfræðingi svo að áætla megi verktíma og kostnað við framangreinda þætti verkefnisins „Aftur til Hofsstaða“ fyrir gerð fjárhagsáætlunar Garðabæjar 2022.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
34. fundur
Á næsta fundi nefndar mun Hringur Jóhannesson hjá Gagarín kynna stöðu verkefnisins.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
33. fundur
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs sagði frá stöðu mála en Gagarín vinnur nú að margmiðlunarefni í tengslum við minjagarðinn, arkitektar vinna að tillögum á útfærslu og sumarstarfsmenn sem munu vinna að textagerð handrits eru komnir til starfa.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
04
31. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
05
30. fundur
Samningur liggur fyrir
Rætt um fyrirhugað verkefni tengt Minjagarðinum við Hofsstaði sem nú er að hefjast.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
06
22. fundur
Formaður greindi frá þeirri ákvörðun bæjarráðs að fresta uppbyggingu í minjagarðinum á Hofsstöðum sem var áætluð skv. fjárhagsáætlun vegna efnahagslegra aðgerða Garðabæjar í tengslum við Covid-19.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
07
18. fundur
Formaður greindi frá fundi með fyrirtækinu Gagarín þar sem farið var yfir með hvaða hætti væri hægt að gera samning um fyrsta fasa uppbyggingar í tengslum við minjagarðinn á Hofsstöðum skv. greinargerð og frumkostnaðaráætlun verkefnisins sem lá fyrir síðasta haust. Stefnt er að því að samningur verði tilbúinn í mars þar sem framkvæmdir og tímasetningar fyrsta fasa eru skilgreindar og að uppbygging hefjist á þessu ári.
Fylgiskjöl
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
08
6. fundur
Farið yfir hugmyndaskjal frá Gagarín um minjagarðinn á Hofsstöðum.
Farið var yfir greinargerð frá fyrirtækinu Gagarín um minjagarðinn á Hofsstöðum sem var unnin á þessu ári og kynnt í bæjarráði í október 2019.
Umræður voru um minjagarðinn á Hofsstöðum sem er staðsettur við hliðina á húsnæði Tónlistarskólans í Kirkjulundi.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
09
16. fundur
Farið yfir hugmyndaskjal frá Gagarín um minjagarðinn á Hofsstöðum.
Farið var yfir greinargerð frá fyrirtækinu Gagarín um minjagarðinn á Hofsstöðum sem var unnin á þessu ári og kynnt í bæjarráði í október 2019.
Umræður voru um minjagarðinn á Hofsstöðum sem er staðsettur við hliðina á húsnæði Tónlistarskólans í Kirkjulundi.
Bæjarráð Garðabæjar
10
39. (1900). fundur
Á fund bæjarráðs mætti Hringur Hafsteinsson, starfsmaður Gagarín og kynnti nánar greinargerð og frumkostnaðaðáætlun um endurhönnun vegna uppbyggingar á minjagarði o.fl. við Hofsstaði.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
11
15. fundur
Hringur Hafsteinsson frá Gagarín mætir og fer yfir
hugmyndaskjal um Hofsstaði og frumkostnaðaráætlun.
Hringur Hafsteinsson frá fyrirtækinu Gagarín var gestur fundarins undir þessum lið.
Fyrirtækið Gagarín hefur unnið tillögu að svokölluðum hönnunarfasa í tengslum við minjagarðinn á Hofsstöðum sem var kynnt fyrir nefndarmönnum á síðasta og þarsíðasta fundi. Hringur kynnti frumkostnaðaráætlun Gagarín í tengslum við greinargerðina/hugmyndaskjalið um Hofsstaði.
Umræður voru um málið og samþykkt að vísa greinargerð og frumkostnaðaráætlun Gagarín til kynningar í bæjarráði.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
12
14. fundur
Áframhaldandi umræða.
Umræður voru um hugmyndaskjal frá Gagarín um minjagarðinn á Hofsstöðum sem var kynnt á fundi nefndarinnar í byrjun júní. Frumkostnaðaráætlun fyrir þeim hugmyndum sem þar koma fram er í vinnslu og verður kynnt á næsta fundi nefndarinnar.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
13
13. fundur
Fyrirtækið Gagarín er nú að vinna að tillögu að 1. áfanga eða svokölluðum hönnunarfasa í tengslum við minjagarðinn á Hofsstöðum. Þar verður gert grein fyrir markmiðum verkefnisins, möguleg frásagnarleið fyrir gesti garðsins samin og mögulegri heildarupplifun þeirra lýst. Gagarín tekur um leið að sér frumhönnun sýningaratriða í samvinnu við verkkaupa og sérfræðinga með greinargóðum lýsingum og skissum ásamt því að útbúa tíma og kostnaðaráætlun fyrir framleiðslu þeirra.
Hringur Hafsteinsson og Lemke Meijer frá Gagarín mættu á fund nefndarinnar og kynntu stöðu mála varðandi hugmyndavinnu í tengslum við minjagarðinn á Hofsstöðum.
Umræður voru um stöðu hugmyndavinnunnar. Nefndarmenn beðnir um að fara yfir drögin sem lögð voru fram og senda inn ábendingar ef einhverjar eru.
Áætlað er að niðurstöður með tillögum að hugmyndahönnun og mögulega áfangaskiptingu verði tilbúnar fljótlega.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
14
12. fundur
Greint var frá hugmyndavinnu sem farin er af stað hjá Gagarín í tengslum við minjagarðinn á Hofsstöðum. Stefnt er að fundi í byrjun júní þar sem fulltrúar Gagarín mæta á fund menningar- og safnanefndar og fara yfir stöðu verkefnisins.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
15
9. fundur
Hringur Hafsteinsson frá Gagarín mætir á fundinn.
Hringur Hafsteinsson frá fyrirtækinu Gagarín var gestur fundarins undir þessum lið. Hringur fór yfir aðkomu Gagarín að margmiðlunarefni Hofsstaða sem var sett upp þegar minjagarðurinn opnaði. Einnig kynnti hann starfsemi Gagarín og hugmyndafræði við vinnslu verkefna og hugmyndafræði að sk. hönnunarfasa við að endurskoða margmiðlunarefni Hofsstaða og framsetningu þess. Rætt var um vinnu við hönnunarfasann sem ætlunin er að fari af stað með vorinu.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
16
8. fundur
Farið var yfir málefni minjagarðsins að Hofsstöðum og eldri samþykkt um að ganga til samninga við margmiðlunarfyrirtækið Gagarín um hugmyndahönnun þar sem í fyrsta áfanga verður unnið hönnunarskjal þar sem farið verður í endurskoðun á því efni sem var búið til fyrir garðinn á sínum tíma. Nýjar frásagnarleiðir verða skoðaðar og hugmyndir þar um varpaðar fram með tíma- og kostnaðaráætlun í lok fyrsta fasa. Stefnt að því að koma þessari vinnu af stað sem fyrst með vorinu.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
17
28. fundur
Hringur Hafsteinssson frá Gagarín mætir á fundinn.
Hringur Hafsteinsson frá Gagarín var gestur fundarins undir þessum lið. Hringur kynnti starfsemi fyrirtækisins og hugmyndafræði við vinnslu verkefna.
Hringur kynnti hugmyndir að sk. hönnunarfasa eða tillögu að 1. áfanga í að endurskoða margmiðlunarefni á Hofsstöðum og framsetningu þess með því að gera grein fyrir markmiðum verkefnisins, fara yfir mögulega frásagnarleið og heildarupplifun gesta. Hringi var þakkað fyrir greinargóða kynningu.
Umræður voru um málið. Menningar- og safnanefnd samþykkir að fela upplýsingastjóra að leita samninga við Gagarín um vinnslu á sk. hönnunarfasa eða tillögu að 1. áfanga vegna minjagarðsins á Hofsstöðum skv. fyrirliggjandi drögum.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
18
27. fundur
Formaður greindi frá fundi sínum og upplýsinga- og menningarfulltrúa með fulltrúa fyrirtækisins Gagarín þann 18. október sl. um minjagarðinn á Hofsstöðum. Minnisblað frá Gagarín, dags. 18.10.2017, með tillögu að 1. áfanga eða sk. hönnunarfasa í að endurhanna margmiðlunarefnið á Hofsstöðum og koma með heildarhugmynd að minjagarðinum lagt fram.
Umræður voru um málið og upplýsinga- og menningarfulltrúa falið að ræða áfram við Gagarín fram að næsta fundi þar sem tillögur Gagarín að vinnu við hönnunarfasa yrðu kynntar.