14. fundur
14. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu
06.09.2019
Kl. 08:15 -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1812061
01
Fundargátt nefndarmanna - breytt innskráning - rafræn skilríki - netföng
Bæjarfulltrúar og nefndarmenn fá netföng frá Garðabæ sem notuð eru til að senda fundarboð og önnur samskipti vegna starfa sinna fyrir Garðabæ.
Gerð var grein fyrir breyttu verklagi þar sem allir nefndarmenn Garðabæjar fá nú Garðabæjarnetföng sem verða notuð í útsendingu fundarboða.
Málsnúmer 1909069
02
Verkefni menningar- og safnanefndar 2019-2020
Starfsáætlun 2019-2020 lögð fram og rædd. Farið yfir stöðu fjárhags menningarmála.
Starfsáætlun 2019-2020 lögð fram og rædd. Farið var yfir stöðu fjárhags á sviði menningarmála samkvæmt fjárhagsáætlun ársins 2019. Á næsta fundi nefndarinnar verður fjallað um fjárhagsáætlun næsta árs.
Málsnúmer 1902220
03
Fræðslu- og sögugöngur 2019
Lýðheilsugöngur í september kynntar.
Þriðja árið í röð tekur Garðabær þátt í verkefni Ferðafélags Íslands um lýðheilsugöngur alla miðvikudaga í september. Um leið er þetta áframhald sögu- og fræðslugangna sem menningar- og safnanefnd hefur staðið að í samstarfi við umhverfisnefnd og fleiri. Fyrsta gangan var farin miðvikudaginn 4. september sl. og greint var frá næstu göngum sem verða 11., 18. og 25. september nk.
Málsnúmer 1909068
04
Vinnuaðstaða í Króki veturinn 2019-2020
Farið yfir umsóknir um vinnuaðstöðu í Króki.
Auglýst var í ágúst eftir umsóknum listamanna/fræðimanna um vinnuaðstöðu í Króki fyrir haustið 2019 og vorið 2020.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að úthluta eftirtöldum listamönnum vinnuaðstöðunni í Króki.
Henný Júlía Herbertsdóttir, kt. 140555-24299, tímabilið 1.-31. október 2019 til að vinna að myndlist.
Alexandra Kjeld, kt. 010683-4919, tímabilið 1.-31. mars 2020, fyrir tónlistarverkefni.
Málsnúmer 1711209
05
Hofsstaðir - minjagarður - hugmyndahönnun
Áframhaldandi umræða.
Umræður voru um hugmyndaskjal frá Gagarín um minjagarðinn á Hofsstöðum sem var kynnt á fundi nefndarinnar í byrjun júní. Frumkostnaðaráætlun fyrir þeim hugmyndum sem þar koma fram er í vinnslu og verður kynnt á næsta fundi nefndarinnar.
Málsnúmer 1909071
06
Tónlistarveisla í skammdeginu 2019
Stefnt er að því að halda næstu tónlistarveislu á Garðatorgi fimmtudagskvöldið 7. nóvember nk. Sama kvöld hefur myndlistarfélagið Gróska sett upp samsýningu félagsmanna í Gróskusalnum og ýmsar verslanir hafa verið með opið lengur.
Umræður voru um tónlistaratriði og upplýsingastjóra falið að vinna áfram að málinu.
Málsnúmer 1909070
07
Listadagar barna og ungmenna 2020
Listadagar barna og ungmenna hafa verið haldnir annað hvert ár að vori eða í kringum síðustu vikuna í apríl. Greint var frá því hvernig hefur verið staðið að listadögunum á liðnum árum í samstarfi við skóla bæjarins en undirbúningur að næstu listadögum er að fara hefjast með haustinu.
Málsnúmer 1906157
08
Beiðni um styrk vegna leiksýningar
Lagt var fram erindi frá leikfélaginu Verðandi í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, dags. 13. júní 2019, með ósk um styrk fyrir leiksýningu félagsins sem verður frumsýnd í byrjun næsta árs. Bæjarráð fjallaði um erindið á fundi sínum 18. júní sl. þar sem tekið var jákvætt í erindið og samþykkt að vísa því til afgreiðslu bæjarstjóra og menningar- og safnanefndar.
Menningar- og safnanefnd tekur jákvætt í erindið en óskar eftir nánari upplýsingum um sýninguna, s.s. hvaða verk verður sett upp og hver heildarkostnaður er við uppsetningu sýningarinnar.
Útfærsla á styrkveitingu verður skoðuð með það í huga að bjóða nemendum úr 10. bekk í Garðabæ frítt á sýninguna.