Afgreiðsla menningar- og safnanefndar varðandi styrk til leiksýningar.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
39. (1900). fundur
Lögð fram til kynningar samþykkt menningar- og safnanefndar um að veita Verðanda - leikfélagi FG styrk að fjárhæð kr. 300.000.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
15. fundur
Á síðasta fundi var erindi leikfélagsins Verðandi í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ tekið fyrir þar sem tekið var jákvætt í erindið en óskað eftir nánari upplýsingum.
Leikfélagið Verðandi óskar eftir styrk vegna uppsetningar á söngleiknum REIMT eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson og Karl Ágúst Úlfsson í leikstjórn hins síðarnefnda. Frumsýning verksins er í byrjun mars á næsta ári.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að veita 300 þús kr styrk til uppsetningar á sýningunni sem verður nýttur til að bjóða nemendum úr 10. bekk í Garðabæ á sýninguna. Útfærsla á boðinu verður í samráði við skóla bæjarins og leikfélagið Verðandi.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
14. fundur
Lagt var fram erindi frá leikfélaginu Verðandi í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, dags. 13. júní 2019, með ósk um styrk fyrir leiksýningu félagsins sem verður frumsýnd í byrjun næsta árs. Bæjarráð fjallaði um erindið á fundi sínum 18. júní sl. þar sem tekið var jákvætt í erindið og samþykkt að vísa því til afgreiðslu bæjarstjóra og menningar- og safnanefndar.
Menningar- og safnanefnd tekur jákvætt í erindið en óskar eftir nánari upplýsingum um sýninguna, s.s. hvaða verk verður sett upp og hver heildarkostnaður er við uppsetningu sýningarinnar.
Útfærsla á styrkveitingu verður skoðuð með það í huga að bjóða nemendum úr 10. bekk í Garðabæ frítt á sýninguna.
Bæjarráð Garðabæjar
04
23. (1884). fundur
Bæjarráð tekur jákvætt í verkefnið og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjóra og menningar- og safnanefndar.