39. (1900). fundur
39. (1900). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
15.10.2019
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar varðandi minjagarð að Hofsstöðum.
Á fund bæjarráðs mætti Hringur Hafsteinsson, starfsmaður Gagarín og kynnti nánar greinargerð og frumkostnaðaðáætlun um endurhönnun vegna uppbyggingar á minjagarði o.fl. við Hofsstaði.
02
Golfklúbbur GKG - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, kt. 650394-2089 leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi íþróttamiðstöð GKG.
03
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar varðandi styrk til leiksýningar.
Lögð fram til kynningar samþykkt menningar- og safnanefndar um að veita Verðanda - leikfélagi FG styrk að fjárhæð kr. 300.000.
04
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar varðandi styrk til stuðnings við vefsíðugerð, skráningu upplýsnga o.fl.
Lögð fram til kynningar samþykkt menningar- og safnanefndar um að veita Félagi áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla styrk að fjárhæð kr. 325.000.
05
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi í Urðarbrunni (Kvennakvöld).
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
06
Bréf Bocciu-hóps varðandi þakkir fyrir styrk vegna þátttöku á Landsmót UMFÍ 2019, dags. 02.10.19.
07
Bréf Vegagerðarinnar um yfirfærslu Vífilsstaðavegar, Elliðavatnsvegar, Arnarnesvegar til Garðabæjar, dags. 07.10.19.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfinu og benda á að skilyrði fyrir yfirfærslu vega til sveitarfélaga er að fram hafi farið ástandsmat og kostnaðargreining sem geti verið grundvöllur samkomulags aðila um uppgjör.
Fylgiskjöl
08
Tilkynning frá Reykjavíkurborg um tillögu að breytingu á aðalskipulag Reykjavíkur - færsla Korpulínu, dags. 07.10.19.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
09
Bréf Skipulagsstofnunar varðandi deiliskipulag Lundahverfis, dags. 03.10.19.
Bréfið tekið til umræðu.
Samkvæmt samþykkt bæjarráðs frá fundi 8. okt. sl. hefur verið lagt til við bæjarstjórn að samþykkja að tillaga að deiliskipulagi Lundahverfis verði auglýst að nýju.
Fylgiskjöl
10
Bréf Félags eldri borgara varðandi styrk vegna leikfimi eldri borgara, dags. 09.10.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.
Fylgiskjöl
11
Gjöf á jólatré frá vinabænum Asker.
Bæjarstjóri upplýsti að haft hafi verið samband við yfirvöld í Asker og samkomulag verið gert um að ekki komi framvegis til afhendingar á jólatré sem vinabæjargjöf. Er samkomulagið gert í þeim tilgangi að draga úr kostnaði og óæskilegum umhverfisáhrifum vegna flutnings jólatrésins.
12
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um orlofshúsnæði örorkulífeyrisþega, 35. mál., dags. 11.10.19.
Lagt fram.
13
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum., 41. mál., dags. 11.10.19.
Lagt fram.
14
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um verslun með áfengi og tóbak, nr. 86/2011 (staðsetning áfengisverslunar), 53. mál., dags. 10.10.19.
Lagt fram.