Lundahverfi - nýtt deiliskipulag.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
3. (862). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Lundahverfi samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og deiliskipulagið með eftirfarandi áorðnum breytingum frá auglýstri tillögu.
Byggingarreitir raðhúsanna við Reynilund 11, 13, 15 og 17 eru stækkaðir þannig að byggingarreitur við suðurhlið húsanna (baklóð) verður dreginn sem bein lína og getur þá komi til stækkunar bílskúrs um 10 m2.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Bæjarráð Garðabæjar
03
6. (1915). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Lundahverfi samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og deiliskipulagið með eftirfarandi áorðnum breytingum frá auglýstri tillögu:
Byggingarreitir raðhúsanna við Reynilund 11, 13, 15 og 17 eru stækkaðir þannig að byggingarreitur við suðurhlið húsanna (baklóð) verður dreginn sem bein lína og getur þá komi til stækkunar bílskúrs um 10 m2.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Lagður fram tölvupóstur Albínu Tordarson, íbúa að Reynilundi 17 þar sem afgreiðslu skipulagsnefndar er mótmælt, dags. 10.02.2020.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
2. fundur
Lögð fram tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Lundahverfi að lokinni auglýsingu skv. 1.mgr.41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan var auglýst 4. nóvember 2019 og gefinn frestur til 16. desember 2019 til að koma með athugasemdir við tillöguna.
Innan athugsemdarfrests bárust þrjú erindi með athugasemdum frá eigendum og íbúum raðhúsanna að Reynilundi 11, 13 og 15. Athugasemdirnar eru samhljóða þar sem því er mótmælt að byggingarreitur húsanna sé afmarkaður við húsin sjálf og þess krafist að byggingarreitur húsanna verði stækkaður. Einnig var gerð athugasemd við varðveislumat húsakönnunar Lundahverfis.
Lagt fram erindi dags. 5.febrúar 2020 frá Hildi Sólveigu Pétursdóttir hrl.fyrir hönd eiganda Reynilundar 17 Albínu Thordarson sem er um leið arkitekt raðhúslengjunnar.
Á deiliskipulagsuppdrætti samkvæmt auglýstri tillögu má sjá að almenna reglan, hvað einbýlishús varðar, er að byggingarreitur er ekki afmarkaður við húsin sjálf heldur gefur hann möguleika á stækkun húsanna að uppfylltum skilmálum deiliskipulagsins. Hvað raðhús varðar að þá er það ýmist hvort byggingareitur afmarkast við húsin sjálf eða ekki. Almennt var við afmörkun byggingarreita byggt á eldri mæliblöðum.
Í tilviki raðhúslengjunnar Reynilundur 11, 13, 15 og 17 þykir með vísan til sjónarmiða sem fram koma í athugasemdum eigenda raðhúsanna nr. 11, 13 og 15 fellst skipulagsnefnd á að rýmka byggingarreit húsanna þannig að byggingarreitur við suðurhlið húsanna verði dreginn sem bein lína. Með því móti skapast möguleiki til að stækka bílskúr húsanna um 10 m2.
Umrædd breyting á byggingarreit ofangreindrar raðhúsalegnju sem getur heimilað stækkun húsa á baklóð um 10 m2 er minniháttar þegar horft er til deiliskipulagsins í heild sinni. Breytingin hefur á engan hátt áhrif á yfirbragð eða götumynd viðkomandi húsa. Það er því ekki um að ræða breytingu í grundvallaratriðum sem hefði gert kröfu um endurauglýsingu tillögunnar samkvæmt 4. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu að deiliskipulagi Lundahverfis með ofangreindri breytingu í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Eldra deiliskipulag Lundahverfis sem samþykkt var í bæjarstjórn telst ekki í gildi sbr. úrskurð úrskurðarnefndar umhverfis-og auðindamála 23/2010 og því ekki ástæða til að fella það sérstaklega úr gildi.
Skipulagsstjóri vék af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
1. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Lundahverfis að lokinni auglýsingu. Athugasemdir sem borist hafa lagðar fram. Vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
15. (855). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa að nýju tillögu að deiliskipulagi Lundahverfis, samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Bæjarráð Garðabæjar
07
39. (1900). fundur
Bréfið tekið til umræðu.
Samkvæmt samþykkt bæjarráðs frá fundi 8. okt. sl. hefur verið lagt til við bæjarstjórn að samþykkja að tillaga að deiliskipulagi Lundahverfis verði auglýst að nýju.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
08
38 (1899.). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa að nýju tillögu að deiliskipulagi Lundahverfis, samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
14. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Lundahverfis ásamt húsakönnun, fornleifaskráningu og umsögn Minjastofnunar.
Deiliskipulagið hefur hlotið auglýsingar ferli og verið samþykkt í bæjastjórn í nóvember á síðasta ári. Þá lág fyrir ófullgerð húsakönnun sem að mati skipulagsnefndar ekki kallaði á breytingar á deiliskipulaginu.
Síðan hefur húsakönnun verið unnin til fullnustu í samráði við Minjastofnun. Niðurstaða húsakönnunarinnar er sú að lögð er til vernd á húsunum Einilundur 10, Gígjulundur 7 og Reynilundur 11-17 enda hafa þau hús hlotið hæstu einkun í varðveislumati.
Skipulagsnefnd telur að ekki sé æskilegt að setja ákvæði um hverfisvernd einstakra eigna í deiliskipulagi nema að undangenginni stefnumótun þar sem tekin er afstaða til samráðs við eigendur og til samspils þeirrar verndar við aðalskipulag.
Skipulagsnefnd vísar því til tækni-og umhverfissviðs að móta stefnum um húsvernd í deiliskipulagi og aðalskipulagi.
Bæta skal við eftirfarandi umfjöllun í fyrsta kafla í deiliskipulagsgreinargerðar.
1.8. Húsvernd. Niðurstaða húsakönnunar er sú að lögð er til vernd á húsunum Einilundur 10, Gígjulundur 7 og Reynilundur 11-17 enda hafa þau hús hlotið hæstu einkun í varðveislumati. Í þessu deiliskipulagi eru ekki sett ákvæði um hverfisvernd eða aðrar ráðstafanir umfram það varðveislumat sem kemur fram í húsakönnun. Skoðað verður sérstaklega hvernig standa megi að húsvernd í framhaldi af niðurstöðu húsakannanna í grónum hverfum í Garðabæ og ef ástæða þykir til að leggja á hverfisvernd í deiliskipulagi verður það gert með sérstakri deiliskipulagsbreytingu.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni með ofangreindri breytingu í auglýsingu í samræmi við 1.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Við gildistöku deiliskipulagsins mun deiliskipulag Púttvallar við Vífilsstaðaveg sem tók gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda nr.603/2005 falla úr gildi. Ákvæði þess deiliskipulags hafa verið felld óbreytt inn í deiliskipulagstillögu Lundahverfis.
Bæjarstjórn Garðabæjar
10
18. (840). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag Lundahverfis, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst og barst ein athugasemd sem tekið hefur verið tillit til. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Bæjarráð Garðabæjar
11
45. (1860). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag Lundahverfis, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst og barst ein athugasemd sem tekið hefur verið tillit til. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
12
14. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Lundahverfis að lokinni auglýsingu. Lagt fram eitt erindi með atuhgasemd.
Skipulagsnefnd lítur á innihald "athugsemdar" sem réttmætar ábendingar sem hafi verið leiðréttar og útskýrðar.
Lögð fram Húsakönnun Lundahverfis en niðurstöður hennar kalla ekki á sérstök ákvæði í deiliskipulagi. Fornleifa innan deiliskipualgssvæðisins er einungis getið á einum stað í Fornleifaskráningu Garðabæjar og eru þær minjar horfnar.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulag Lundahverfis í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 með þeim leiðréttingum sem gerðar voru í kjölfar ofangreindra ábendinga og felur tækni og umhverfissviði að undirbúa staðfestingu deiliskipulagsins.
Við gildistöku deiliskipulagsins fellur deiliskipulag Púttvallar við Vífilsstaðaveg sem tók gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda nr.603/2005 úr gildi.
Bæjarstjórn Garðabæjar
14
11. (833). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar að nýju tillögu að deiliskipulagi Lundahverfis, samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Bæjarráð Garðabæjar
15
31. (1846). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar að nýju tillögu að deiliskipulagi Lundahverfis, samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
16
10. fundur
Lögð fram ný tillaga að deiliskipulagi Lundahverfis þar sem að nú er gert ráð fyrir ákvæðum um bílageymslur sem eru óbreyttar frá því sem verið hefur. Ekki er gert ráð fyrir fjölgun deilda í leikskólanum Lundabóli. Lögfræðiálit mælir með því að tillagan verði auglýst að nýju. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Ljúka skal gerð húsakönnunar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
17
9. fundur
Lagðar fram að nýju athugasemdir íbúa ásamt drögum að svörum við athugasemdum byggðum á bókun skipulagsnefndar frá síðasta fundi.
Skipulagsnefnd vísar málinu til áframhaldandi úrvinnslu hjá tækni- og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
18
8. fundur
Lagt fram að nýju, að lokinni annarri auglýsingu, tillaga að deiliskipulagi Lundahverfis. Á fundi skipulagsnefndar 16. janúar sl. var samþykkt með tilvísan í 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi fyrir Lundahverfi. Samþykktin var staðfest í bæjarstjórn 1. febrúar 2018. Auglýsingin stóð frá 26.mars til 7. maí. Alls bárust 27 erindi með athugasemdum sem lögð eru fram.
Skipulagnefnd vísar málinu til tækni- og umhverfissviðs og skipulagshönnuða til úrvinnslu.
Skipulagsnefnd leggur áherslu á að við þá úrvinnslu verði unnið að því að halda lóð, byggingareit og bílstæðum við leikskólann Lundaból eins og þær eru í dag þannig að komið verði til móts við óskir íbúa um að ekki verði þar frekari stækkun. Hvað varðar athugasemdir um bílskúra er lögð áhersla á að ákvæði sem festi í sessi upphaflega byggingarskilmála skuli tekið upp í deiliskipulagið. En samkvæmt þeim var ýmist kveðið á um bílskúra fyrir einn eða tvo bíla og telur skipulagsnefnd mikilvægt við úrvinnslu málsins að ásýnd hverfisins haldist miðað við upphaflega byggingarskilmála.
Bæjarstjórn Garðabæjar
19
2. (824). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga að nýju tillögu að deiliskipulagi Lundahverfis.
Bæjarráð Garðabæjar
20
3. (1818). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar að samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga að nýju tillögu að deiliskipulagi Lundahverfis.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
21
2. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Lunda að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum sem borist hafa.
Skipulagsnefnd leggur til að komið verði til móts við athugasemdir varðandi ákvæði um bifreiðageymslur og fyrsta málsgrein greinar 2.2.4. hljóði svo: Á hverri lóð fyrir einbýlishús, raðhús eða parhús skal gert ráð fyrir 2 bílastæðum á lóð og bifreiðargeymslu fyrir a.m.k. eina bifreið. Fella skal út síðustu málsgrein greinarinnar.
Koma skal til móts við ábendingu um göngustíg framan við raðhúsalóðir við Reynilund, Hörgslund og Hofslund og gera ráð fyrir göngustíg þar.
Komið skal til móts við athugasemdir með eftirfarandi breytingum á ákvæðum um lóð fyrir samfélagsþjónustu (Lundaból) með eftirfarandi breytingum:
Grein 3.1.4 Bílastæði hljóði svo: Á lóðinni verði heimilt að koma fyrir allt að 30 bílastæðum en fjölda bílastæða skal að öðru leyti ákvarða í samræmi við starfsemi á lóðinni á hverjum tíma. Við lóðarhönnun skal með gróðri, skjólveggjum og landlagsmótun dregið úr áhrifum bílaumferðar á bílastæðum á lóðum aðliggjandi húsa við Einilund.
Eftirfarandi grein bætist við og hljóði svo. 3.1.6. Leikskólalóð og opið svæði. Tillögur að breytingum á útfærslu leikskólalóðar og hins opna svæðis á Hofstaðahæð skulu kynntar eigendum og íbúum aðliggjandi lóða ef sótt verður um byggingarleyfi fyrir stækkun leikskólans og áður en slíkt leyfi yrði veitt.
Grein 3.2.3. hljóði svo: Hámarksbyggingarmagn verði 1000 m2 á einni hæð.
Á deiliskipulagsuppdrætti skal aðeins sýna núverandi bílastæði en lóðaruppdrættir vegna byggingarleyfisumsóknar skal grenndarkynna sbr, grein 3.1.6.
Skipulagsnefnd samþykkir að gera ofangreindar breytingar á tillögu að deiliskipulagi Lunda og vísar tillöunni til auglýsingar að nýju þar sem um grundvallar breytingu á áður auglýstri tillögu er að ræða.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
22
1. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipuagi Lunda að lokinni auglýsingu sem stóð frá 6.nóvember til 18.desember sl. Alls bárust 11 erindi undirrituð af um 230 íbúum í Lundum. Athugasemdir lagðar fram og innhald þeirra rætt. Flestar lúta athugasemdir að ákvæðum um bílageymslur og um leiksskólann Lundaból. Vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
23
16. (818). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Lundahverfi.
Bæjarráð Garðabæjar
24
39. (1805). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Lundahverfi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
25
13. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Lunda sem hefur verið forkynnt.
Skipulagsnefnd leggur til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni:
-að gert verði ráð fyrir rými fyrir 3 bíla á hverri einbýlishúsalóð
-að gert verði ráð fyrir rými fyrir 2 bíla á rað-og parhúslóðum
-að á uppdrætti verði sýnd 2 bílastæði fyrir hvert íbúðarhús (einbýlishús/rað-og parhús)
-að bygging bílageymslu á íbúðarhúsalóð verði valkvæð
-rafhleðslutenginar bifreiða skal staðsetja innan íbúðarhúslóða og hleðsla bifreiða skal fara fram innan lóðarmarka
-að eftirfarandi tilmælum verði bætt við um gróður: "Mælst er til þess að ekki verði plantað hávöxnum trjátegundum (öspum eða grenitrjám) í görðum íbúðarhúsa innan deiliskipulagssvæðisins. Mælst er til að trjágróður fari ekki upp fyrir mænishæð bygginga og áhersla sé lögð á lágvaxnar gróðurtegundir. Á lóðarmörkum er mælst til þess að eigendur gróðursetji runna sem ekki nái hærri hæð en 1,8 m.
Skipulagsnefnd samþykkir að vísa deiliskipulagtillögunni til auglýsingar með ofangreindum breytingum í samræmi við 1.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
26
10. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Lundahverfis í kjölfar forkynningar. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
28
6. (808). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna nýtt deiliskipulag Lunda samkvæmt 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fallið er frá gerð lýsingar samkvæmt heimild í 3. mgr. sömu greinar. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.
Bæjarráð Garðabæjar
29
10. (1776). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna nýtt deiliskipulag Lunda samkvæmt 4.mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fallið er frá gerð lýsingar samkvæmt heimild í 3. mgr. sömu greinar. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
30
3. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi íbúðarbyggðar í Lundum. Deiliskipulag Lunda var samþykkt í Garðahreppi áður en að fyrsta aðalskipulagsáætlun tók gildi árið 1987 telst því hverfið án deiliskipulags. Gert er ráð fyrir stækkunar-og breytingarmöguleikum á lóð Lundabóls þannig að þar verið hægt að reka 5 deilda leikskóla.
Skipulagsnefnd leggur til að sett verði ákvæði um að dregið verði úr áhrifum bílaumferðar við Leiksskóla á aðliggjandi byggð með skjólgirðingum og gróðri.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar. Boða skal til íbúafundar þar sem tillagan verður kynnt, innihald hennar rætt og kallað eftir ábendingum almennings.
Undirbúa skal gerð húsakönnunar fyrir byggð innan skipulagssvæðisins.