Beint í efni

9. fundur

29.06.2018
Skipulagsnefnd Garðabæjar

9. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

29.06.2018

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - formaður
  • Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
  • Guðjón Pétur Lýðsson - varamaður

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Formaður skipulagsnefndar bauð nýja nefndarmenn velkomna til starfa.

Dagskrá

Málsnúmer 1606034

01

Hafnarfjarðarv/Vífilsstaðav. Endurbætur gatnamóta.

Baldur Grétarsson deildarstjóri hjá Vegagerðinni og Ólafur Erlingsson verkfræðingur hjá Verkís, gerðu grein fyrir kostum sem staðið er frammi fyrir varðandi endurbætur gatnamóta Hafnarfjarðarvegar við Vífilsstaðaveg annarsvegar og Lyngás hinsvegar.

Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1709351

02

Álftanes-Miðsvæði. Deiliskipulag

Lagðar fram ábendingar sem borist hafa í forkynningu ásamt úttekt á innihaldi þeirra.

Þórhallur Sigurðsson skipulagsráðgjafi hjá Andersen&Sigurdsson kynnti nokkrar hugleiðingar um útfærslu tillögunnar sem eru innblásnar af þeim hugmyndum sem fram koma í ábendingum almennings.

Tillögunni ásamt ábendingum og hugleiðingum vísað til umsagnar umhverfisnefndar. Sérstaklega er óskað eftir afstöðu nefndarinnar til sorphirðumála.

Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1702322

03

Bessastaðir. Dsk breyting vegna aðkomu.

Lögð fram að nýju, að lokinni forkynningu, tillaga að breytingu að deiliskipulagi Bessastaða. Ein athugasemd barst þar sem óskað er eftir að gert verði ráð fyrir reiðleið um túnið við hlið heimreiðarinnar að Bessastöðum.

Skipulagsnefnd bendir á að gildandi aðalskipulag og Aðalskipulag Álftaness 2005-2024 gera ekki ráð fyrir reiðleið meðfram aðkomu að Bessastöðum. Ekki verður unnt að gera ráð fyrir þeirri tengingu nema með breytingu aðalskipulags og samráði við forsetaembættið.

Skipulagsnefnd vill leggja áherslu á að hugað verði að því við útfærslu á vegstæðinu að ekki verði um 6 metra breiðan malbikaðan aðkomuveg að ásamt 2 metra breiðum bílastæðum ræða sem liggur frá hringtorgi að heimreið Bessastaða. (alls 8 metrar)

Málsnúmer 1802322

04

Reiðskemma Sóta

Lögð fram að nýju tillaga að reiðskemmu á hesthúsasvæði Sóta á Álftanesi. Gert er grein fyrir fundi með tengiliðum Sóta.

Skipulagsnefnd vísar erindinu í grenndarkynningu í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal eigendum í Asparholti 1-14 (sléttar tölur), Lyngholti 6, 8, 10, 15, 17, 19, 13 og 11, Suðurnesvegur 1, 2, 3, 4, 5, og 6, Bakkarvegur og Mýrarkot 6.

Skipulagsnefnd mælir með því að gerðar verði skýringarmyndir í þrívídd sem að skýra tillöguna betur.

Málsnúmer 1806306

05

Hlið, breyting friðlýsingarmarka

Í kjölfar umsagna Umhverfisstofnunar um tillögu að breytingu á deiliskipulags Hliðs þar sem einnig voru gerðar athugasemdir við umgengni við uppbyggingu ferðaþjónustunnar leggur skipulasstjóri fram minnisblað þar sem gerð er tillag að viðbrögðum við þau atriði sem fram koma í umsögn dags 16.nóvember 2017. Skipulagsstjóri kynnti tillögu að breytingu fólkvangsmarka sem gerir ráð fyrir stækkun hans um 1,4 ha.

Tillögunni vísað til umfjöllunar umhverfisnefndar.

Málsnúmer 1802063

06

Blátún 5 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn lóðarhafa um breytingu deiliskipulags Túnahverfis sem gerir ráð fyrir því að heimilt verði að fella út ákvæði um bílageymslu.

Skipulagsnefnd hafnar tillögunni.

Málsnúmer 1504148

07

Lundahverfi - nýtt deiliskipulag.

Lagðar fram að nýju athugasemdir íbúa ásamt drögum að svörum við athugasemdum byggðum á bókun skipulagsnefndar frá síðasta fundi.

Skipulagsnefnd vísar málinu til áframhaldandi úrvinnslu hjá tækni- og umhverfissviði.

Málsnúmer 1612146

08

Arnarnes, endurauglýsing deiliskipulags

Lögð fram tillaga að lagfærðri greinargerð deiliskipulags Arnarness þar sem brugðist hefur verið við ábendingum Skipulagsstofnunar i erindi dags 28.maí sl.

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu húsakönnunar Arnarness og samráðsfundi með Minjastofnun vegna hennar.

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða greinargerð og beinir því til skipulagsstjóra að láta fullvinna húsakönnun þá sem unnin var árið 2014. Ef niðurstaða húsakönnunar kallar á deiliskipulagbreytingu skal skipulagsstjóri leggja fram tillögu þess efnis.

Málsnúmer 1806437

09

Smiðsbúð 6, dsk br, byggingarreitur á baklóð.

Lögð fram umsókn lóðarhafa um breytingu deiliskipulags Iðnbúðar/Smiðsbúðar sem gerir ráð fyrir stækkun byggingareits á baklóð fyrir lágreist lagerrými. Fram kemur í umsókn að brýn þörf sé fyrir aukið lagerrými vegna aukinna umsvifa járnsmiðjunnar sem rekin er í byggingunni.

Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Iðnbúðar/Smiðsbúðar og vísar henni til grenndarkynningar.

Grenndarkynna skal eigendum, íbúum og rekstraraðilum að Smiðsbúð 3,4, 5,7 og 8 og Gilsbúð 3, 5 og 7.

Málsnúmer 1804129

10

Bæjargarður, dsk br

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Bæjargarðs sem gerir ráð fyrir sex 9,15 m háum ljósamöstrum við boltaflöt.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Senda skal dreifibréf í hús á Fitjum þar sem athygli er vakin á auglýsingunni.

Málsnúmer 1806404

11

Stígur í Garðahrauni efra sunnan Flata

Lögð fram umsókn bæjarverkfræðings fyrir lagningu stofnstígs í Garðahrauni efra frá núverandi stíg að Bæjargarði. Hluti stígs er í samræmi við deiliskipulag Bæjargarðs og Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2039. Lögð fram tillaga Landlags ehf að óverulegri tilfærslu stígs í kjölfar vettvangsskoðunar þar sem fulltrúi Umhverfisstofnunar var með í för. Skipulagsnefnd heimilar veitingu framkvæmdaleyfis fyrir lagningu stígsins með fyrirvara um leyfi Umhverfisstofnunar.

Málsnúmer 1804128

12

Ágarður, dsk br, lýsing ofl

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulag Ásgarðs. Tillögunni vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1805268

13

Goðatún 19 - viðbygging - stækkun

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa þar sem óskað er eftir því að byggingarreitur stækki á baklóð sem nemur 12 fermetrum og að ný viðbygging verði allt að 65 cm hærri en hámarkshæð sem er 4,2 m. Viðbygging verði tveggja hæða en neðri hæð niðurgrafin.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stækkun byggingarreits en hafnar því að viðbygging verði hærri en hámarkshæð samkvæmt deiliskipulagi. Skipulagsnefnd metur tillögu að breytingu byggingarreits með óbreyttri hámarkshæð sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns og vísar henni til grenndarkynningar.

Málsnúmer 1804311

14

Bólstaður - Umsókn um rekstrarleyfi

Lögð fram umsókn um rekstrarleyfi fyrir gistiaðstöðu við einbýlishúsið að Bólstað. Bæjarráð óskar eftir umsögn skipulagsnefndar um umsóknina.

"Samkvæmt Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem tók gildi í síðasta mánuði er Bólstaður innan þróunarsvæðis A sem nær til umhverfis Hafnarfjarðaravegar frá Lyngási að Vífilsstaðavegi og til athafnasvæðis við Lyngás. Samkvæmt samþykktu rammaskipulagi Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar verður Bólstaður staðsettur við stórbyggingar sem liggja að Hafnarfjarðarvegi sem verður miðsvæði. Lega hússins er því hagstæð bæði ef litið er til núverandi ástands (miðlæg lega nálægð við stoppstöð flugrútu)og framtíðarsýnar sveitarfélagsins. Skipulagsnefnd er því jákvæð gagnvart umsókninni en mælir með því að tryggt verði að næg bílastæði séu innan lóðar fyrir gistiþjónustuna. Skipulagsnefnd mælir með því að umsóknin verði grenndarkynnt eigendum og íbúum aðliggjandi húsa. Þau hús eru Marargrund 12,14,16 og 18 sem og Hella og Mörk"

Málsnúmer 1806169

15

Kjarrmóar 41 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram byggingaleyfisumsókn fyrir bifreiðageymslu fyrir Kjarrmóa 41. Deiliskipulag Kjarrmóa telst ekki í gildi þar sem það var samþykkt áður en fyrsta aðalskiplag Garðabæjar var staðfest. Það deiliskipulag skilgreinir byggingarreiti fyrir 8 bílageymslur á þessum stað sem er á óbyggðu svæði milli Kjarrmóa og Hrísmóa. Er þessi bílageymsla sú fyrsta sem rís á þessum stað.

Skipulagsnefnd hafnar því að byggingarleyfi verði veitt fyrr en nýtt og endurskoðað deiliskipulag fyrir Kjarrmóa liggur fyrir. Nefndin beinir því til tækni-og umhverfissviðs að móta tillögu að deiliskipulagi fyrir umrætt svæði.

Málsnúmer 1806403

16

Miðhraun 24, breyting á dsk Molduhrauns

Lögð fram hugmynd lóðarhafa að breytingum á deiliskipulagi Molduhrauns sem nær til lóðarinnar Miðhraun 24. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar í átt að Reykjanesbraut auk nýrrar aðkomu frá "Álftanesvegi" sem hugsuð er til bráðabirgða þangað til mislæg gatnamót verða byggð á mótum Álftanesvegar og Reykjanesbrautar.

Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Málsnúmer 1804200

17

Ósk um skipulagsbreytingu að Hraungötu 2-8

Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem gerir ráð fyrir breytingu á byggingarreit bílskýlis og að einnig verði heimilt að byggja þar bílageymslu í stað bílskýlis.

Skipulagsnefnd óskar eftir umsögn deiliskipulagshöfundar. Ef sú umsögn er jákvæð gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að skipulagsstjóri grenndarkynni tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulagsins.

Málsnúmer 1806013

18

Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, Sundahöfn

Lögð fram verklýsing vegna breytinga á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 sem nær til stækkunar á hafnarsvæði (H4) í Sundahöfn með landfyllingum við Klettagarða og Skarfabakka-Kleppsbakka.

Tillagan er í auglýsingu til 28. júní.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna

Málsnúmer 1805167

19

Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, KR-svæði

Lögð fram verklýsing vegna breytinga á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 sem nær til KR ? svæðis. Í breytingunni felst breytt landnotkun, nýjum kjarna í Vesturbæ og fjölgun íbúða.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna.

Málsnúmer 1805169

20

Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, Sjómannaskólareitur og Veðurstofuhæð

Lögð fram verklýsing vegna breytinga á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 sem nær til Sjómannaskólareits og Veðurstofuhæðar. Í breytingunni felst breytt landnotkun og fjölgun íbúða.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna.

Málsnúmer 1806438

21

Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, Iðnaður og önnur landfrek starfsemi

Lögð fram drög að tillögu að breytingu á Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030 ásamt drögum að umhverfisskýrslu varðandi mögulegar breytingar á iðnaðar- og athafnasvæðum í Reykjavík. Í viðauka fylgir einnig greining VSÓ ? ráðgjafa á atvinnusvæðum á höfuðborgarsvæðinu.

Tillagan er nú í auglýsingu (ATH)

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna.